Hin Hliðin - Igor Pesic (ÍA)
Tvisvar í viku sýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina hér á Fótbolti.net. Að þessu sinni er það Igor Pesic miðjumaður ÍA en þessi knái leikmaður frá Serbíu og Svartfjallalandi er á sínu öðru tímabili hjá liðinu. Hann hefur komið við sögu í öllum leikjum Skagamanna í Landsbankadeildinni í sumar og skorað í þeim eitt mark, gegn Val. Kíkjum á hina hliðina á Igor.
Fullt nafn: Igor Pesic
Gælunafn: Pesa
Aldur: 23 ára
Giftur/sambúð: Ég á kærustu
Börn: Ég á enginn börn
Hvað eldaðir þú síðast? Fisk
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Skinku, ost og beikon.
Hvernig gemsa áttu? Nokia
Besta Bíomyndin? Braveheart
Hvaða tónlist hlustar þú á? Allt
Uppáhaldsútvarpsstöð? Engin sérstök
Uppáhaldsdrykkur? Appelsínusafi
Uppáhaldsvefsíða? Fotbolti.net
Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?)? Ég er ekki hjátrúarfullur
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Ég veit það ekki, hef aldrei hugsað út í það.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Ég ber virðingu fyrir öllum liðum.
Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Fabio Cannavaro
Erfiðasti andstæðingur? Partizan í Serbíu en Valur og FH á Íslandi.
EKKI erfiðasti andstæðinur? Ég hef aldrei spilað auðveldan leik á Íslandi.
Besti samherjinn? Enginn uppáhalds en það er mjög gott að spilu með öllum í ÍA
Sætasti sigurinn? Ég er enn að bíða eftir honum.
Mestu vonbrigði? Fyrstu fjórir leikirnir á þessu tímabili.
Uppáhalds lið í enska? Í gamla daga var það Man Utd en í dag á ég ekkert uppáhalds lið.
Uppáhaldsknattspyrnumaður? Pirlo,Xavi,Deco
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Ég veit ekki en Eiður Smári er allaveganna sá besti í dag.
Efnilegasti knattspyrnumaðurinn? Það eru margir efnilegir í ÍA
Fallegasti knattspyrnumaðurinn? Hef ekki hugmynd.
Grófasti leikmaður deildarinnar? Ég hef ekki skoðun á því.
Besti íþróttafréttamaðurinn? Veit ekki
EKKI besti íþróttamaðurinn? Veit ekki
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Dino (Dean Martin)
Hefurðu skorað sjálfsmark? Já fyrir 6 árum síðan
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég man ekkert í augnablikinu en það er alltaf að gerast eitthvað skemmtilegt að gerast í búningsklefanum.
Spilarðu Championship Manager tölvuleikinn? Manager er uppáhaldsleikurinn minn og þar er Juve mitt lið.
Hversu gamall varstu þegar þú byrjaðir að æfa fótbolta? 12 ára gamall
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbola, hverju myndir þú breyta? Hef ekki hugmynd
Hvern vildir þú sjá á sviði (tónleikum)? Robbie Williams
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingum? Að hlaupa auðvitað
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Kærastan mín
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Heima auðvitað því ég hef verið í burtu frá fjölskyldunni minni mest allt lífið. Ég fór að heiman 14 ára gamall og ég sakna alltaf fjölskyldunnar.
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnana? Ekki lengi, kannski svona 20 mínútur
Hver er UppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Predrag Mijatovic og Aleksandar Djordjevic (körfuboltamaður)
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Ég fylgist mikið með körfubolta
Hver er uppáhaldsplatan þín? Ég á enga uppáhaldsplötu
Hvenær borgaðirðu þig seinast inná fótboltaleik? Á síðasta ári þegar ég sá gamla liðið mitt í Serbíu spila í bikarnum
Í hvernig fótboltaskóm? Adidas predator
Í hverju varstu lélegastur í skóla? Ég var frábær nemandi og lauk skóla sem einn af bestu nemendunum
Hvað ætlarðu að gera þegar ferillinn er búinn? Markmið mitt er að verða þjálfari

