Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 05. júlí 2006 08:00
Magnús Már Einarsson
Ég er yfirburða tæknitröll: Hemmi Hreiðars svarar lesendum
Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Fyrir nokkrum vikum gafst lesendum tækifæri á að senda inn spurningar á Hermann Hreiðarsson, varnarjaxlinn hjá Charlton. Hermann svaraði á dögunum þessum spurningum og eru svör hans við þeim hér að neðan. Ótal spurningar komu inn og því var ekki hægt að spyrja hann þeirra allra auk þess sem margir voru með sömu spurningarnar.

Við skulum kíkja á svörin frá Hermanni en þar er hann meðal annars spurður út í sjálfsmörk, mótorhjól, golf, kvennaklósett, fögn, counter strike, boccia, Blönduós, tveggja fóta tæklingar. Þá lýsir hann einnig yfir áliti sínu á Craig Bellamy á hreinskilinn máta.


Tryggvi Guðmundsson, 31 árs, 107 Reykjavík
Á ekkert að fara að heyra í kallinum?
You know I love you son


Maggi og Valli Rauðhausar, aldur breytist árlega, Vestmannaeyjar
Hvor okkar telurðu að séu betri í knattspyrnu og heldurðu að við eigum einhverja möguleika í atvinnumenskuna þrátt fyrir að vera komnir yfir þrítugt?
Að sjálfsögðu Valli þar sem hann er vinstrifótar. Hann á framtíðina fyrir sér en Maggi er að verða búinn.


Friðrik Már Sigurðsson, 14 ára, Vestmannaeyjar
Segðu einn framherja, einn miðjumann og einn varnarmann sem þú myndir vilja hafa með þér í liði?
Ronaldinho, Cantona, Tony Adams.


Kári Örn Hinriksson, 18 ára, Mosfellsbær
Er einhver leikmaður í Man Utd í uppáhaldi hjá þér? og ef svo er,hver?
Það var alltaf Cantona


Gylfi Hans Gylfason, 24 ára, Reykjavík
Hvor finnst þér betri Lampard eða Gerrard?
Gerrard


Sindri Kristjánsson, 14 ára, Patreksfjörður
Hver finnst þér vera bestur í Charlton?
Ég er yfirburðamaður í Charlton.


Sigurður Egill Lárusson, 14 ára, Reykjavík
Með hverjum helduru í íslenska boltanum?
ÍBV


Þórhallur Valsson, 14 ára, Kópavogur
Hvor er strangari þjálfari Ian Dowie eða Alan Curbishley?
Hér er Ian Dowie ekki byrjaður að starfa þannig að það kemur í ljós.


Davið Hilmar Haukdal Blessing, 14 ára, FH
Hvað finnst þér um Michael Ballack?
Frábær leikmaður og gott move fyrir Chelsea og hann.


Kristján Már Ólafs, 12 ára, Reykjavík
Hvernig leið þér þegar þú skoraðir sjálfsmark á móti Man Utd um árið?
Bara frábærlega. Ég er Manchester United aðdáandi og er eini Íslendingurinn sem hefur skorað fyrir þá.


Kristófer Páll Lentz, 15 ára, Garðabær
Nú þegar þú og Eiður bjugguð í sömu borg, eruð þið góðir vinir?
Hittist þið stundum? Já já við hittumst stundum, spilum golf og hittumst með krakkana og annað.


Davíð Þór Jónsson, 25 ára, Keflavík
Nú er ég mikill mótórhjólaáhugamaður, átt þú mótórhjól og þá hvernig?
Ég átti alltaf skellinöðru. Svo klessukeyrði ég mótorhjólið hans Stjána (félagi Hermanns) og eftir það hef ég ekki verið að kaupa mér mótorhjól.


Hrannar Björn Stengrímsson, 14 ára, Húsavík
Hver finnst þér fallegastur í ensku úrvalsdeildinni?
Ian Dowie


Marko Valdimar Stefánsson, 16 ára, Grindavík
Hvort fannst þér skemmtilegara. stelpurnar eða fótboltinn?
Fótboltinn


Arnar Dór Hlynsson, 26 ára, Akranes
Er Ingi Fannar Eiríksson mikið betri en þú í golfi. Ef svo er afhverju æfirðu þig þá ekki meira?
Hann er alltaf að monta sig af því að vera betri en þú! Síðast þegar að ég og Ingi Fannar spiluðum var það algjört morð. Ég rústaði honum en hann er ágætur.


Victor Jóhann Pálsson, 13 ára, Rvk
Hver er besti sóknarmaðurinn á Englandi, varnarmaðurinn og miðjumaður?
Thierry Henry, varnarmaður Terry og Gerrard.


Jökull Steinn Ólafsson, 11 ára, Reykjavík
Hver á flottasta bílinn í Charlton og hvernig gerð er hann?
Rúrik, Citroen.


Magnús Sigurbjörnsson, 19 ára, Reykjavík
Ertu mikill tippari í þér? Semsagt ertu að veðja á leiki sem þú spilar eða aðra knattspyrnuleiki?
Nei það er ég alls ekki.


Alexander Áki Felixson, 13 ára, Seltjarnarnes
Hvernig finnst þér að vera hjá Charlton? Hefur þér langað að fara í annað lið meðan?
Þetta er búinn að vera fínn tími hjá Charlton.


Hafsteinn Hafsteinsson, 20 ára, Kópavogur
Ef þú mættir fara til hvaða liðs sem er í heiminum, hvert myndirðu fara? Hver myndirðu segja að væri besti varnarmaður allra tíma?
Manchester United sem gamall aðdándi. Maldini var alltaf í uppáhaldi, vinstrifótar.


Haukur Már Ólafsson, 19 ára, Kópavogur
Finnst þér peningar Abromovic hjá Chelsea, hafa góð eða slæm áhrif á knattspyrnu?
Þetta er mjög gott held ég. Gott fyrir fótboltann, hann er að kaupa menn úr öðrum klúbbum og fá smá peninga inn í þetta.


Ívar Pétursson, 20 ára, Ísafjörður
Hvað finnst þér um fyrrverandi samherja þinn hjá Crystal Palace, Attilio Lombardo?
Hann var frábær karakter og frábær leikmaður og það var frábært að spila með honum.


Haukur Már Ólafsson, 19 ára, Kópavogur
Finnst þér ekki Marlon Harewood frekar eiga heima í boxhringnum heldur en á fótboltavellinum?
Bara í geimbúning.


Lárus Gunnarsson, 15 ára, Reykjavík
Hefur þú einhvern tíman farið óvart inn á kvennaklósettið?
Ekkert óvart (segir Hemmi og hlær)


Bragi Bragason, 24 ára, Rvk
Getur þú ekki komið á ÍBV fögnum hjá Charlton? Koma inn þessari stemmningu sem var til staðar þegar þú varst í Eyjum?
Jú það væri gaman af því að rifja upp gamla takta þannig að það er aldrei að vita.


Kristján Valdimarsson, 17 ára, Hveragerði
Hvert var uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum þegar þú varst lítill? Og hefur þú einhvern tímann vonað að þeir vinni?
Manchester United og nei.


Davíð Helgi Davíðsson, 13 ára, Húsavík
Spilarðu Counter strike eða Football Manager?
Nei hef aldrei spilað það.


Smári Jökull Jónsson, 23 ára, Vestmannaeyjar
Hefðir þú áhuga á að koma heim til Eyja að spila eftir að atvinnumannaferlinum lýkur?
Já já það er aldrei að vita.


Davíð Helgi Davíðsson, 13 ára, Húsavík
Ertu góður í boccia?
Já það eru allar líkur á því.


Atli F. Scheving, 16 ára, Höfn
Myndir þú vilja fara til Liverpool og spila við hliðina á Carragher?
Já að sjálfsögðu


Nói Björnsson, 15 ára, Norðurþing (Húsavík)
Heiðar Helguson tekur um 90 kg í bekkpressu. Hvað tekur þú?
Ég tek hann í nefið!


Sigurdur Davíð Stefánsson, 12 ára, Reykjavík
Hvaða lið mundur mest langa til að fara í? A: Chelsea B: Real Madrid C: Barcelona, D: Eitthvað annað?
Manchester United, það er ekkert annað.


Sigurður Davíð Stefánsson, 12 ára, Reykjavík
Hver er loðnastur í Charlton?
Bryan Hughes


Hafsteinn Briem, 15 ára, Kópavogur
Helduru að þú og Rúrik verði í náðinni hjá nýráðnum stjóra ykkar, Ian Dowie og hvenær ætlar Ísland á HM?
Ísland fer á HM 2010 að sjálfsögðu. Það er vonandi að hann verði í náðinni.


Frans Elvarsson, 15 ára, Höfn í Hornafirði
Hvernig var að hafa Atla Eðvalds sem þjálfara þegar þú varst í ÍBV?
Það var flott. Hann hentaði vel inn í hálvitana í Eyjum. Nei nei það var mjög gaman og það var góður tími að hafa Atla þarna.


Hafsteinn Þórðarson, 15 ára, Rvk
Drekkurðu gos?
Já stundum, ekki mikið.


Nói Björnsson, 15 ára, Norðurþing (Húsavík)
Er það að flytja til Húsavíkur og spila með Völsungi ekki framtíðardraumurinn?
Jú jú, þetta hugsa ég um á hverju kvöldi.


Pálína Axelsdóttir, 15 ára, Sveit.
Hvað er asnalegasti hluturinn sem þú hefur áritað? Og færðu aðdáendabréf eða eitthvað þannig og svararu þeim?
Ætli það sé ekki sérvetta. Ég fæ aðdáendabréf og ég svara þeim öllum.


Davíð Ben Guðmundsson, 18 ára, Reykjavík
Hvernig líst þér á Iain Dowie sem nýjan stjóra Charlton?
Ágætlega, hann virkar vel á mig.


Ólafur Haukur Tómasson, 15 ára, Akureyri
Hver er besti leikmaðurinn sem þú hefur spilað með og af hverju?
Daði Pálsson í körfubolta, skemmtilegt keppnisskap.


Lúkas Björn Bogason, 9 ára, Fjarðarbyggð
Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir að æfa fótbolta?
Fimm ára


Tryggvi Vífilsson, 31 ára, Dalvík
Hvernig meturu möguleika Blackburn Rovers á komandi árum og er Mark Hughes efnilegasti stjóri deildarinnar?
Ég hef trú á Mark Hughes en tel þá eiga enga möguleika.


Kristín Freyja Óskarsd, 18 ára, Reykjavík ,Vesturbær
Mín spurning er myndiru segja já við tilboði frá Man United?



Hrannar Björn Stengrímsson, 14, Húsavík
Hélstu með einhverju liði áður en þú fórst til Charlton? Ef svo er, hvernig er tilfinningin að fara að keppa á móti átrúnaðargoðinu þínu og á heimavelli þeirra?
Manchester United. Ég á ekki neitt átrúnaðargoð lengur þannig að það fer lítið fyrir því.


Sigurður Einarsson, 24 ára, VE 900
Hvað er sterkasta lið sem þú hefur spilað með að þínu mati? p.s Fyrir utan ÍBV 1997
Það er Charlton engin spurning. Þrátt fyrir að ég hafi spilað gott tímabil með Ipswich þegar við náðum í Evrópukeppni þá er hópurinn sterkari hjá Charlton.


Hrannar Björn Stengrímsson, 14 ára, Húsavík
Hverjum af öllum knattspyrnumönnum í heiminum langar þér mest til þess að spila á móti?
Enginn sérstakur. Bara einhver leiðinlegur eins og Bellamy.


Jón Fannar Árnason, 10 ára, Mosfellsbær
Hvað ertu gamall?
31 árs


Hrannar Björn Stengrímsson, 14 ára, Húsavík
Varstu góður námsmaður á yngri árum?
Já alveg yfirburða


Hrannar Björn Stengrímsson, 14 ára, Húsavík
Langar þér ekki í enskan ríkisborgararétt til að hafa einhvern möguleika á HM?
Ísland og ekkert annað!


Ásgeir Ögmundarson, 17 ára, Garðabær
Gerist það oft að Íslendingar þekkja þig á götunni úti í Englandi og ef til vill spjalla smá við þig?
Það kemur fyrir


Arnór Pétur Marteinsson, 16 ára, Kópavogur
Var einhver leikmaður sem þú leist upp til þegar þú varst lítill?
Já já það var fullt.


Magnús Magnússon, 10 ára, Þórshöfn, Langanesi
Ef þú mættir ráða hvaða félags myndiru vilja fara í ensku deildinni og spænsku deildinni?
Manchester United og Barcelona eða Madrid


Hrannar Björn Stengrímsson, 14 ára, Húsavík
Hver er uppáhaldshljómsvetin þín?
Stertimenni sem fóru í Músíktilraunir 1989,


Grímur Rúnar Lárusson, 14 ára, Blönduós
Hvað finnst þér um Blönduós og af hverju?
Blönduós rules!


Guðjón Ingibergur Ólafsson, 11 ára, Hornafjörður
Hvað getur maður gert þegar maður er veikur á leikdag til að ná leik? Er Gott að vera með tyggjó í leik?
Ferð í takkaskóna og drullar þér út á völl. Það er fínt að vera með tyggjó.


Svanhvít Valtýsdóttir, 16 ára, Grafarvogur
Hver er grófasti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni?
Heiðar


Stefán Orri Ólafsson, 23 ára, Akranes
Hvort er erfiðara fyrir þig sem varnarmann að spila á móti Drogba eða Owen?
Þeir eru báðir léttir


Arnar Þór Ólafsson, 12 ára, Seltjarnarnes
Hver er besti vinur þinn í Charlton?
Rúrik


Hrannar Björn Stengrímsson, 14 ára, Húsavík
Hver er frægasta persóna sem þú hefur hitt?
Elton John


Sigurður Sigurðsson, 22 ára, Reykjavík
Hvað er það versta sem þú hefur gert þegar þú hefur misst stjórn á þér inn á vellinum?
Ég hef nú ekki gert neitt sérstaklega slæmt af mér


Ólafur Gauti Ólafsson, 21 árs, Reykjavík
Sagt er manna á milli að þú sért helsterkur gaur en hvað áttu annars í samanlögðu í kraftlyftingum, semsagt bekk, hnébeygju og réttstöðulyftu?
Ég hef ekkert verið að mæla það og ekki verið mikið í réttstöðulyftunni en þetta eru nokkur tonn.


Ásgeir Þór Ingólfsson, 15 ára, Hafnarfjörður
Hvernig er að verða atvinnumaður?
Þetta er frábært og ekki yfir neinu að kvarta.


Nói Björnsson, 15 ára, Norðurþing (Húsavík)
Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í?
Það er ansi margt.


Jóhann Kári Aðalsteinsson, 36 ára, Kópavogur
Hefuru séð lifandi apa?



Sigurður Einar Traustason, 15 ára, Reykjavík
Hefuru einhvertíman spilað fótboltaleik þunnur?
Nei


Stefán Óskar Gíslason, 15 ára, 190 Vogar
Fyrir hvað félag myndir þú aldrei vilja leika með á Englandi?
Ég hef ekki neitt sérstaklega á móti neinu félagi þannig að ég ætla ekki að drulla á neinn.


Stefán Óskar Gíslason, 15 ára, 190 Vogar
Hvar ætlaru að enda ferilinn?
Á Íslandi


Sigurður Steinar, 13 ára, Seltjarnarnes
Hvort finnst þér betra að vera í hafsent eða bakverði?
Senter


Kristinn Þór Rósbergsson, 13 ára, Akureyri
Hver er fyndnastur í Charlton?
Chris Powell


Sigurbaldur Frímannsson, 20 ára, Grindavík
Af hvaða stjóra hefur þú lært hvað mest af og hver þeirra kanntu best að meta sem persónu?
Ætli Steve Coppell sem var með mig fyrsta árið hafi kennt mér mest. Ég var hrikalega hrár þá þannig að ég lærði mest á fyrsta árinu held ég. Joe Royle er líka frábær.


Sigurbaldur Frímannsson, 20 ára, Grindavík
Segjum svo að þú værir einhleypur, myndir þú taka eina nótt með Jessicu Alba fram yfir það að vinna HM?
Ég hugsa að ég myndi frekar vilja vinna HM


Daníel Freyr Jónsson, 15 ára, Selfoss
Hver er sá frægasti sem þú ert með númerið hjá í gemsanum þínum?
Bjössi Ella


Brynjar Sigurðsson, 12 ára, Kópavogur
Hvern er skemmtilegast að tækla í leik og hvaða lið er sætast að vinna?
Það er skemmtilegast að tækla Bellamy, hann er svo hundleiðinlegur. Sætasti sigurinn í ár var líklega Liverpool heima, 2-0.


Magnús Valur Böðvarsson, 24 ára, Kópavogur
Hefur reiðin verið það mikil að þig langar að fótbrjóta einhvern með 2 fóta?
Já oft


Daði Arnarsson, 12 ára, Reykjavík
Varstu góður þegar þú byrjaðir að æfa, hvaða stöðu splaðir þegar þú varst í sjö manna bolta?
Ég held að ég hafi ekki verið neitt frábær. Ég var allt í lagi og hafði rosalega gaman af fótbolta. Í sjö manna var ég á miðjunni.


Sigurður Stefánsson, 24 ára, Akureyri
Núna er ég harður Blackburn aðdáandi, hefur þér einhvern tímann boðist að fara þangað? Ef ekki myndir þú hafa áhuga á því?
Nei. Já ég myndi skoða það, maður skoðar allt, Blackburn er á góðri leið.


Hákon Guðjónsson, 16 ára, Ísafjörður
Hvernig tilfinning er það að skora sjálfsmark fyrir framan alla áhangendur þína?
Ég skoraði bara fyrir framan alla aðdáendur Manchester United þannig að það var frábært.


Pétur Gunnar Evuson, 6 ára, Höfuðborg.
Hefurðu alltaf verið svona mikið stál? Og hver er á ljótasta bílnum í Charlton?
Nei en bara með svona rembing alltaf. Ljótasti bíllinn, það er kokkurinn.


Sveinn Sveinsson, 21 árs
Hvor er betri varnarmaður Rio Ferdinand eða Jamie Carragher?
Carragher


Jón Hjörtur Emilsson, 15 ára, Hafnarfjörður
Uppáhaldslið á Íslandi fyrir utan ÍBV?
KFS


Hólmbert Friðjónsson, 13 ára, Kópavogur
Hvernig lætur maður sig fá góða snerpu?
Þú ættir að spyrja einhverja fróða menn um það. Einhverja í frjálsum íþróttum kannski.


Jón Gunnar Guðmundsson, 13 ára, Hafnafjörður
Varstu alltaf yfirburðarmaður, eða var það þegar þú varst stór og sterkur sem að þú byrjaðir að skara frammúr?
Ég byrjaði að stækka þegar að ég var 18 eða 19 ára, þannig að ég var seinn á ferðinni og aldrei neinn yfirburðamaður.


Brynjar Hagalín Sævarson, 12 ára, Reykjavík
Ef þú mættir ráða um að fá einn leikmann í Charlton hver væri það og akkuru?
Það væri Ronaldinho og enginn annar.


Davíð Eyjólfsson, 9 ára, Kópavogur
Hvernig æfðir þú þig þegar þú varst yngri?
Maður var alltaf úti í fótbolta með félögunum.


Brynjar Freyr Halldórsson, 16 ára, Kópavogur
Hver á flottustu eiginkonuna/kærustuna?
Ragna Lóa er langflottust


Eyjólfur Eyjólfsson, 13 ára, Kópavogur
Með hvaða liði æfðiru með þegar þú varst lítill og æfðiru einhverjar aðrar íþróttagreinar?
ÍBV. Ég æfði handbolta, var allar stöður, lína, markmaður, horn, miðja, skytta.


Hagalín Baldurson, 14 ára, Akureyri
Hefuru einhverntíman verið að spila mikilvægan leik þurft að pissa?
Nei ég fer yfirleitt á klósettið fyrir leikina


Guðmundur Aron Sigurðsson, 11 ára, Bý í sveit
Hvaða Lið myndi þér langa mest til að fara til af þessum Manchester United, Chelsea eða Liverpool?
United


Hrannar Björn Stengrímsson, 14 ára, Húsavík
Heiðar Helguson er ekki með 11 tær, en ert þú það?
Nei ég er það heldur ekki, þótt ótrúlegt megi virðast.


Ólafur Eyjólfsson, 12 ára, Kópavogur
Hvað er flottasta mark sem þú hefur skorað og hvað hefur þú skorað mörg mörk?
Flottasta markið er í landsleik á móti Litháen úti. Ætli ég hafi ekki skorað allt í allt 30 mörk, ég veit það ekki.


Orri Rafn Sigurðarson, 15 ára, Reykjavik
Hvernig er að spila með Charlton?
Það er flott


Sigþór Magni Eyþórsson, 16 ára, Reykjavík
Er líf atvinnumanns í fótbolta einhvað líkt því sem er í FOOTBALLERS' WIVES þáttunum?
Það er nánast alveg eins. Nei þetta footballers wives gæti alveg eins heitið dopister's wives.


Jón Heiðar Sigurðsson, 15 ára, Akureyri
Leið þér kjánalega eftir skutluna á ruslatunnurnar um daginn?
Nei var bara svekktur að ná ekki boltanum


Haukur Björnsson, 25 ára, Reykjavík
Nú hef ég heyrt að sumir sóknarmenn séu einfaldlega skíthræddir við þig, Hvað segiru eiginlega við þessa bestu sóknar menn í heimi eftir að þú ert búinn að strauja þá flata?
(I´ll be back?) Það er gaman að kljást við menn og það er gaman að fíflast í mönnum og sjá hvað efni er í þeim.


Jón Axelsson, 26 ára, Akureyri
Nú er konan þín algjör bomba. Var erfitt að næla í hana eða var það hún sem að nældi í þig?
Ég nældi í hana


Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir, 17 ára, Akranes
Hvað æfið þið oft á dag og hversu lengi? Eru æfingasvæðin þarna góð?
Það er misjafnt. Æfingasvæðin eru fín en ef það er einn leikur í viku þá eru svona sjö æfingar.


Styrmir Gauti Fjeldsted, 14 ára, Njarðvík
Hvernig er best að hugarfarið manns sé fyrir leikir og hvað er best að borða fyrir leiki?
Það fer eftir því hvað þér finnst best. Það er ágætt að fá sér kjúkling, ristað brauð, pasta eða eitthvað


Jón Unnar Guðmundsson, 12-13 ára, Akranes
Er erfitt að tækla Heiðar Helguson? Það er rosafínt að tækla Heiðar


Kristinn Ingi Jónsson, 12 ára, Seltjarnarnes
Hvort finnst þér skemmtilegra að spila sem miðvörður eða sem vinstri bakvörður?
Senter


Vilhjálmur Siggeirsson, 15 ára, Kópavogur
Helduru að Rúrik verðri kanski í hópnum eða fái að spila eitthvað með aðalliðinu á næsta tímabili? Ég hugsa að hann fái einhvern séns


Dagur Freyr Bjarnason, 12 ára, Álftanes
Hvað geruru annað en fótbolta áttu þér einhvað annað "hobbý"? Golf


Sigurður Steinar Jónsson, 13 ára, Seltjarnarnes
Hver er mest pirrandi leikmaður deildarinnar?
Bellamy, ógeð


Magnús Karl Pétursson, 26 ára, Garðabær
Ertu með eitthvað ráð fyrir mig, ég var efnilegur markmaður en þurfti að fara í brjósklos aðgerð og hef verið hálf þungur og erfitt að komast á stað aftur, er eitthvað sérstakt mataræði eða æfing sem þú mælir með?
Nei ég myndi byrja á að tala við einhvern einkaþjálfara eða einhvern sem hefur töluvert meira vit á þessu en ég


Valur Páll Eiríksson, 12 ára, Reykjavík
Hver er fljótasti "Strikerinn" í deildinni?
Thierry Henry


Ingólfur Árnason, 13 ára, Akureyri
Sæll, Hvor er betri Nistelrooy eða Rooney?
Rooney


Eyjólfur Tómasson, 17 ára, Reykjavík
Hefurðu reynt að tækla í hnéskelina á einhverjum....ef svo er hittiru?
Nei. Ég reyni aldrei að meiða menn


Albert Brynjar Ingasson, 20 ára, Reykjavík
Þú virðist hafa gott tak á Duncan Ferguson þegar þig eigist við. Hvernig ferðu að því að gera hann altaf svona brjálaðan?
Það þarf ekki mjög mikið til reyndar. Ef maður sparkar aðeins í hann eða gefur honum eitt olnbogaskot þá er það búið.


Tómas Gauti Jóhannsson, 13 ára, 170 Seltjarnarnes
Hvað er markmiðið ykkar í úrvalsdeildina næsta vetur?
Topp tíu fyrst og fremst og síðan kannski að reyna að komast í Evrópu


Valur Páll Eiríksson, 12 ára, Reykjavík
Hver finnst þér teknískastur í deildinni af eigin reynslu?
Ég er yfirburða tæknitröll í deildinni


Ingólfur Ragnarsson, 20 ára, Reykjavík
Er það ekki rétt hjá mér að þú sért upprunarlega réttfættur?
Ég er algjörlega jafnfættur


Stefán Óskar Gíslason, 15 ára, 190 Vogar
Þú ert grófastur í deildinni, ekki satt?
Nei alls ekki


Tómas Gauti Jóhannsson, 13 ára, 170 Seltjernarnes
Mestu vonbrigðin?
Man ekki eftir neinu


Atli F. Scheving, 16 ára, Höfn
Áttu einhvern vin/kunningja sem spilar með Liverpool...ef svo er hver er það?
Nei


Lárus Geir Árelíusson, 10 ára, Hafnarfjörður
Hvar hefur þér fundið best að spila á ferlinum?
Ipswich var mjög heimilislegur klúbbur


Valgarð Thoroddsen, 31 árs, Reykjavík
Nú þegar ljóst er að ÍBV mun að öllum líkindum falla um deild, ætlarðu þá ekki bara að koma í Fylki þegar ferillinn er á enda. Við viljum öll ólm fá þig því þín er þörf hér á bæ. Sem fashion designer tel þig vera svolítið mikið vor og gæturðu notið þín vel í appelsínugulu!
Það er aldrei að vita


Hilmar Rafn Emilsson, 19 ára, Hafnarfjörður
Hefurðu hugleitt að safna í kynþokkafullan Múllett?
Nei takk


Arnar Guðmundsson, 17 ára, Reykjavík
Hvenær ætlaru að drífa þig til Íslands og hjálpa Eyjamönnum í þessu rugli sem þeir eru í?
Vonandi ekki alveg strax


Magnús Þór Gunnarsson, 12 ára, Hafnarfjörður
Hvor er erfiðari andstæðingur Rooney eða Henry?
Þeir eru báðir léttir


Jónatan Birgisson, 13 ára, Reykjavík
Varstu alltaf bestur í þínum flokki þegar þú varst svona 13-14 ára?
Nei nei, alls ekki


Jón Gunnar Gunnarsson, 31 árs, Hfj
Ertu jafn góður með hægri og þú ert með vinstri eins og ég?
Ég er ekki alveg jafngóður en ég er mjög góður með hægri


Hilmar Björn Óskarsson, 12 ára, Reykjavík
Hver er besti markvörður í heimi að þínu mati?
(Petr) Cech


Jón Birgir Jónasson, 20 ára, Kópavogur
Hver er mesta kelling sem að þú hefur spilað á móti í íslenska og enska boltanum?
Bellamy og Haukur Úlfarsson


Haukur Heimisson, 18 ára, Reykjavík
Með nýjum þjálfara koma nýjar breytingar ertu hræddur um að þú gætir lent á lista um menn sem verið seldir á næsta leiktímabili?
Nei nei ég er alls ekkert hræddur um það en ef ég verð seldur þá gerist það bara


Brynjólfur Snær Brynjólfsson, 13 ára, Hafnarfjörður
Stundar þú golf og ef svo er hvað ertu með í forgjöf?
Já, svona 16-18, það fer eftir því hverjum ég er að spila á móti


Jóhannes Guðmundsson, 15 ára, Kelduhverfi
Hver af þessum er bestur; Steven Gerrard,Frank Lampard,Roy Keane eða Patrick Viera?
Steven Gerrard


Guðni Magnússson, 20 ára, Kópavogur
Hvenær helduru að Rúrik fái tækifæri með aðalliðinu, og líka með A landsliðinu?
Vonandi í vetur.
Slapp
banner
banner