Ríkisjónvarpið hefur fengið sýningarrétt að HM árið 2010 en keppnin fer fram í Suður-Afríku. Þetta kom fram á vef Morgunblaðsins í gær.
HM 2002 og HM 2006 hafa verið sýnd á Sýn en þar áður var Rúv með réttinn að keppninni. Samtök evrópskra sjónvarps- og útvarpsstöðva hafa núna gert samning um sýningarrétt á keppninni fyrir hönd ýmissa evrópskra sjónvarpsstöðva og var Ísland í hópi þeirra.
Að sögn Páls Magnússonar útvarpsstjóra stendur til að nýta þá möguleika sem stafræn tækni býður upp á og sýna keppnina á annarri tíðni líkt og 365 ljósvakamiðlar geri nú með Sýn og Sýn Extra.
Ekki verði um nýja íþróttastöð að ræða heldur mun Rúv bjóða ákskrifendum sínum upp á útsendingar frá einstökum viðburðum um leið og þeir gerast.



