mið 28.jún 2006 06:20 Hafliði Breiðfjörð,
Úrskurður aganefndar - 8 úr Landsbankadeildum í bann
Sigurður Jónsson þjálfari Grindavíkur fer í eins leiks bann.
Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Aganefnd Knattspyrnusambands Íslands kom saman í gær eins og venja er á þriðjudögum og dæmdi fjölda leikmanna í leikbönn. Alls voru sjö leikmenn og einn þjálfari úr Landsbankadeildum karla og kvenna sem voru dæmdir í bann.

ÍBV verður verst úti í þessum bönnum en þrír leikmanna þeirra fá eins leiks bann. Þá fá tveir FH-ingar leikbann, einn frá Breiðablik og Sigurður Jónsson þjálfari Grindvíkinga.

Þeir leikmenn sem fá leikbann fyrir brottvísun taka út bannið í næstu umferð, sem verður leikin á miðvikudag og fimmtudag en þeir sem fá bann vegna fjögurra gulra spjalda taka það út í næsta leik eftir föstudaginn næsta, sem þýðir að þau bönn verða tekin út í VISA bikarnum.

Hér að neðan má sjá þá leikmenn sem voru dæmdir í bann.

Landsbankadeild karla:
Sigurður Jónsson (Þjálfari Grindavíkur) (1 leikur vegna brottvísunar)
Olgeir Sigurgeirsson Breiðablik (1 leikur vegna 4 áminninga)
Freyr Bjarnason FH (1 leikur vegna 4 áminninga)
Sigurvin Ólafsson FH (1 leikur vegna brottvísunar)
Andri Ólafsson ÍBV (1 leikur vegna brottvísunar)
Atli Jóhannsson ÍBV (1 leikur vegna 4 áminninga)
Páll Þorvaldur Hjarðar ÍBV (1 leikur vegna 4 áminninga)

Landsbankadeild kvenna:
Harpa Þorsteinsdóttir Stjarnan (1 leikur vegna brottvísunar)

1. deild karla:
Davíð Ellertsson Haukar (1 leikur vegna brottvísunar)
Óli Jón Kristinsson Haukar (1 leikur vegna brottvísunar)
Jeton Gorqaj Leiknir R. (1 leikur vegna 4 áminninga)

2. deild karla:
Helgi Þór Guðjónsson Afturelding (1 leikur vegna 4 áminninga)
Brynjólfur Bjarnason ÍR (1 leikur vegna 4 áminninga)
Ólafur Ívar Jónsson Reynir S. (1 leikur vegna 4 áminninga)
Þorkell Máni Birgisson Selfoss (1 leikur vegna 4 áminninga)

3. deild karla:
Dejan Bilic Afríka (2 leikir vegna brottvísunar)
Sigurgeir Sveinn Gíslason BÍ (1 leikur vegna brottvísunar)
Sigþór Snorrason BÍ (1 leikur vegna 4 áminninga)
Leifur Guðjónsson GG (1 leikur vegna brottvísunar)
Þorsteinn Lárus Vigfússon Hamar (1 leikur vegna brottvísunar)
Oddur Helgi Guðmundsson KV (1 leikur vegna brottvísunar)
Ólafur Már Ólafsson KV (1 leikur vegna brottvísunar)
Samir Mesetovic Leiknir F. (1 leikur vegna brottvísunar)
Lisebet Hauksdóttir Magni (1 leikur vegna brottvísunar)
Décio Jóhannsson Reynir Á (1 leikur vegna brottvísunar)
Gunnar Ingi Valgeirsson Sindri (1 leikur vegna 4 áminninga)
Jón Haukur Haraldsson Sindri (1 leikur vegna brottvísunar)
Sigurður Halldórsson (Þjálfari Kára) (1 leikur vegna brottvísunar)
Atli Rúnar Hólmbergsson Víðir (1 leikur vegna 4 áminninga)


Nýjustu fréttirnar