Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 29. júní 2006 13:32
Guðmundur Dagur Ólafsson
Heimild: Skessuhorn 
Framtíð Óla Þórðar ræðst á næstu tveimur dögum
Framtíð Óla Þórðar hjá ÍA ræðst á næstu tveimur dögum. Hér er hann í leiknum gegn Víkingum í gærkvöld.
Framtíð Óla Þórðar hjá ÍA ræðst á næstu tveimur dögum. Hér er hann í leiknum gegn Víkingum í gærkvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Eftir fyrri umferð Landsbankadeildar karla situr ÍA á botni deildarinnar með aðeins 6 stig eftir 9 leiki og er sú staða allt önnur en menn vonuðust eftir fyrir mót. Nú virðist sem framtíð Ólafs Þórðarssonar, þjálfara liðsins ráðist á næstu tveimur dögum en þetta kemur á vefsíðu Skessuhornsins.

Eiríkur Guðmundsson, formaður rekstararfélags meistaraflokks ÍA, segir í viðtali við Skessuhornið að stjórn félagsins muni fara yfir stöðu mála á næstu dögum.

"Við munum fara yfir stöðu mála á næstu dögum og meta til hvað ráða hægt er að grípa til þess að snúa þessari þróun við," sagði Eiríkur og bætti við að niðurstaða í þessu máli muni liggja fyrir á næstu tveimur dögum.

Í viðtali við Fréttablaðið sagði Ólafur að hann myndi fara niður með liðinu ef þess þyrfti en Eiríkur segir það útilokað.

"Það er fráleitt að líta á það sem kost í stöðunni og þetta hljóta að vera orð sem féllu í hita leiksins að óathuguðu máli“ sagði Eiríkur um þessi ummæli Ólafs.
Slapp
banner
banner
banner
banner