Liverpool hefur áhuga á Gordon - Það gæti bundið enda á vonir Arsenal um að fá Isak
   fös 30. júní 2006 16:30
Magnús Már Einarsson
Spurningak. Landsbankadeildarliðanna: Víkingur - ÍBV
Davíð Þór Rúnarsson.
Davíð Þór Rúnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson
Davíð Þór Rúnarsson fulltrúi Víkings í spurningakeppninni á meðal Landsbankadeildarliðanna sigraði Guðjón Magnússon varamarkvörð ÍBV 4-2 í 8-liða úrslitum keppninnar.

,,Það er ekki leiðinlegt að skíta upp á bak en vinna samt. Þetta er frekar óvænt, ég veit ekki neitt um fótbolta. Mér líður svolítið eins og Englendingunum á HM, þeir eru að skíta á sig en samt vinna þeir," sagði Davíð Þór sem ætlar að undirbúa sig aðeins fyrir næstu keppni og fylgjast betur með fótboltafréttum.

,,Ég er dálítið svekktur yfir að detta út en ég veit ekki mikið um fótbolta. Þó maður spili þetta þá er maður enginn séni," sagði Guðjón aftur á móti en hann var ansi svekktur út í sjálfan sig að hafa ekki getað spurningar númer fjögur og fimm. Við skulum kíkja á viðureign hans og Davíðs.

Undirstrikuð svör eru rétt.


1. Hvað heitir þjálfari liðs ÍR í annarri deild karla?
Davíð: Magnús Einarsson
Guðjón: Einar Sigurðsson
Rétt svar: Magnús Þór Jónsson

2. Með hvaða liðið lék Lukas Podolski á síðastliðnu tímabili?
Davíð: Hamar Hveragerði
Guðjón: Köln

3. Hvaða leikmanni fékk þrjú gul spjöld í sama leiknum frá Graham Poll á HM á dögunum?
Davíð: (Josip) Simunic
Guðjón: Dario Simic

4. Hjá hvaða liði hóf Eysteinn Húni Hauksson leikmaður Grindvíkinga ferilinn?
Davíð: Hetti Egilsstöðum
Guðjón: Huginn

5. Hver þjálfaði íslenska karlalandsliðið árið 1994?
Davíð: Ásgeir Elíasson
Guðjón: Logi Ólafsson

6. Hvað heitir landsliðsþjálfari Úkraínu?
Davíð: Ég held ég viti það ekki
Guðjón: Hef ekki hugmynd um það
Rétt svar: Oleg Blokhin

7. Vanda Sigurgeirsdóttir þjálfaði eitt sinn lið í þriðju deild karla. Hvaða lið var það?
Davíð: Neisti Hofsósi, áfram Neisti!
Guðjón: Númi

8. Hvaða spænska lið leikur heimaleiki sína á Manuel Ruiz de Lopera vellinum?
Davíð: Real Zaragoza
Guðjón: Valencia
Rétt svar: Real Betis

9. Hverjir urðu belgískir meistarar í vor?
Davíð: Genk
Guðjón: Club Brugge
Rétt svar: Anderlecht

10. Í vikunni var lið 1-7.umferðar í Landsbankadeild kvenna tilkynnt. Hvað átti Valur marga fulltrúa í liðinu?
Davíð: 5
Guðjón: 5
Rétt svar: 6

11. Hjá hvaða liði á Englandi er markvörðurinn Ali Al Habsi?
Davíð: Portsmouth
Guðjón: Portsmouth
Rétt svar: Bolton

12. Hverjir urðu bikarmeistarar í karlaflokki á Íslandi árið 1996
Davíð: KR
Guðjón: ÍA

13. Hvar á landinu er Hamarsvöllur staðsettur?
Davíð: Hveragerði
Guðjón: Hveragerði
Rétt svar: Hafnarfirði

14. Lilleström mætir Keflavík í Intertoto keppninni um helgina. Hvaða Þjóðverji þjálfar Lilleström í dag?
Davíð: Hef ekki hugmynd um það
Guðjón: Berti Vogts
Rétt svar: Uwe Rösler

15. Fyrir hvaða ítalska lið skoraði Cristiano Lucarelli fimmtán mörk á síðasta tímabili?
Davíð: Pass
Guðjón: Parma
Rétt svar: Livorno


Aðrar keppnir:

Keflavík 9 - 8 Grindavík
Breiðablik 8 - 6 KR
FH 9 - 6 Valur
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner