Tveir leikir fóru fram í áttundu umferð fyrstu deildar karla í dag en umferðinni lýkur með leik Leiknis og Fjölnis á mánudaginn. HK gerði góða ferð til Ólafsvíkur í kvöld og sigraði heimamenn 2-0 þar sem hinn sextán ára gamli Kolbeinn Sigþórsson skoraði í sínum fyrsta mótsleik í meistaraflokki. Þá gerðu Stjarnan og Haukar 1-1 jafntefli í Garðabæ en við skulum kíkja á nánari umfjöllun um þessa leiki.
Víkingur Ó. 0 - 2 HK
0-1 Hörður Már Magnússon (10)
0-2 Kolbeinn Sigþórsson (83)
HK komst yfir eftir tíu mínútna leik eftir fyrstu alvöru sókn leiksins. Stefán Jóhann Eggertsson sendi á Hörð Má Magnússon sem lék á varnarmann og skoraði með fínu skoti. Finnur Ólafsson og Theódór Óskarsson fengu báðir dauðafæri fyrir HK í fyrri hálfleik án þess að ná að skora.
Í síðari hálfleik var Ellert Hreinsson næstum sloppinn inn fyrir hjá heimamönnum en annars var hálfleikurinn frekar tíðindalítill þar til að sjö mínútur voru til leiksloka.
Varamaðurinn Kolbeinn Sigþórsson skoraði þá eftir að hafa komist inn í sendingu varnarmanns til baka á Einar Hjörleifsson í markinu en þetta var fyrsta skot HK á markið síðan á 25.mínútu. Kolbeinn sem er bróðir Andra Sigþórssonar skoraði þarna sitt fyrsta meistaraflokksmark fyrir HK í sínum fyrsta mótsleik með flokknum en hann leikur einnig með öðrum og þriðja flokki félagsins.
Heimasíða HK.
1-0 Guðjón Baldvinsson (37)
1-1 Hilmar Rafn Emilsson (66)
Aðstæður voru mjög góðar sólinn skein skært en það var þó töluveður vindur. Leikurinn var mjög kaflaskiptur og byrjaði Stjarnan mun betur í leiknum í kvöld og sóttu hart að vörn Hauka og áttu nokkur góð færi áður en fyrsta markið leit dagsins ljós á 37.mínútu.
Þar var að verki Guðjón Baldvinsson (Á mynd) með góðu skoti eftir fínan einleik. Staðan hefði geta verið 3–0 í hálfleik fyrir Stjörnuna en staðreyndin var einungis 1–0. Í seinni hálfleiknum var svo anna ð uppá teningnum, en þá komu Haukamenn dýrvitlausir til leiks eftir að hafa gert meðal annars taktíska breytingum í hálfleik.
Þeir byrjuðu á miklum krafti og sköpuðu sér nokkur hættuleg færi áður en þeir náðu loks að skora á 66.mínútu eftir vandræði í vörn Stjörnunar, þar var að verki Hilmar Rafn Emilsson. Eftir makið jafnaðist leikurinn töluvert og lokatölur urðu 1–1 sem eru hugsanlega sanngjörn úrslit þegar á heildina er á litið.
Fótbolti.net, Garðabæ - Sigurður Sveinn Þórðarson
Mynd: Rögnvaldur Már Helgason



