þri 08.ágú 2006 10:00 Hafliði Breiðfjörð,
Vissu ekki að þeir ættu leikmanninn
Salif Diao í leik með Liverpool í síðasta mánuði.
Mynd: NordicPhotos
- Furðulegar hliðar fótboltans
Með auknum fjölda leikmanna í leikmannahópum liðanna kemur það stundum fyrir að stjórnendur liðanna missa töluna og vita ekki nákvæmlega um leikmenn sinna liða. Við ætlum að rifja upp tvær slíkar sögur í dag.

Fyrri sagan er af Salif Diao miðvallarleikmanni frá Senegal sem árið 2002 var keyptur til Liverpool frá Sedan í Frakklandi. Áður en Diao fór til Sedan hafði Mónakó í Frakklandi keypt hann en fyrsta árið var hann lánaður til franska liðsins Epinal.

Er Mónakó mætti Epinal hreifst stjórnarformaður Mónakó svo af frammistöðu Diao að hann sagði við sína menn: ,,Hver er þessi Diao? Við verðum að kaupa hann!

Honum brá hinsvegar við svarið því honum var bent á að þeir þyrftu ekki að kaupa leikamnninn, þeir ættu hann nú þegar. Mónakó fékk Diao í kjölfarið til baka og vann franska titilinn.

Hin sagan er af Harry Redknapp þáverandi og núverandi stjóra Portsmouth en í október mánuði árið 2004 hafði Redknapp hrifist mjög af frammistöðu Diomansy Kamara með liðinu og vildi ólmur kaupa leikmanninn sem hann taldi vera á lánssamningi.

Milan Mandaric formaður félagsins kom þá fram í fjölmiðlum og leiðrétti misskilninginn, Portsmouth hafði keypt Kamara frá Modena fyrr um sumarið. Reyndar stóð fyrst til að fá hann lánaðan en á endanum var hann keyptur á tvær milljónir punda og gerði þriggja ára samning við félagið.

,,Ég bara vissi ekki hvort við hefðum keypt hann eða fengið hann lánaðan. Ég hlýt að hafa tekið mér frí daginn sem hann var keyptur," sagði Redknapp er hann leiðrétti þennan misskilning.

Furðulegar hliðar fótboltans er liður hér á Fótbolta.net þar sem ein óvenjuleg saga tengd fótbolta er sögð alla virka daga. Við tökum ábendingum um slíkar sögur fegins hendi en bendum fólki þá á netfangið fotbolti@fotbolti.net.

Smelltu hér til að sjá yfirlit yfir allar fréttir úr ,,Furðulegar hliðar fótboltans".

Nýjustu fréttirnar