þri 08. ágúst 2006 15:19
Hafliði Breiðfjörð
Landsliðshópur Íslands: Sigurvin, Ármann og Matthías með
Ármann Smári Björnsson var valinn í íslenska landsliðið.
Ármann Smári Björnsson var valinn í íslenska landsliðið.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Sigurvin Ólafsson, Ármann Smári Björnsson og Matthías Guðmundsson hafa verið valdir í íslenska landsliðið sem mætir Spánverjum eftir viku. Þetta kom í ljós nú rétt í þessu þegar hópurinn var tilkynndur en auk þeirra er Daði Lárusson FH og Marel Baldvinsson í hópnum.

Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópnum þrátt fyrir fréttir þess efnis í morgun að hann gæti þurft að missa úr en Kristján Örn Sigurðssons sem hefur farið á kostum með Brann er ekki með vegna meiðsla.

Búist er við að Spánverjar mæti með sterkt lið hingað til lands en þeir munu tilkynna sinn hóp á föstudaginn kl. 10:30 að íslenskum tíma.

Markverðir:
Árni Gautur Arason, Vålerenga IF
Daði Lárusson, FH

Varnarmenn:
Hermann Hreiðarsson, Charlton
Indriði Sigurðsson, KR
Ívar Ingimarsson, Reading
Ármann Smári Björnsson, FH
Grétar Rafn Steinsson, AZ Alkmaar

Miðjumenn:
Brynjar Björn Gunnarsson, Reading
Arnar Þór Viðarsson, Twente
Jóhannes Karl Guðjónsson, AZ Alkmaar
Kári Árnason, Djurgårdens
Sigurvin Ólafsson, FH
Ólafur Ingi Skúlason, Brentford
Matthías Guðmundsson, Valur

Framherjar:
Eiður Smári Guðjohnsen, Barcelona
Heiðar Helguson, Fulham FC
Marel Baldvinsson, Breiðablik
Veigar Páll Gunnarsson, Stabæk IF
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Hannover 96
Hannes Þorsteinn Sigurðsson, Stoke City
Slapp
banner
banner