Á dögunum leyfðum við lesendum að spyrja Rúnar Kristinnsson þeirra spurninga sem þeim langaði að spyrja hann. Rúnar hefur nú svarað spurningunum og þar kemur margt skemmtilegt fram eins og að honum finnist auðvelt að klobba Hermann Hreiðarsson og þá er hann mikið spurður út í framtíð sína eftir að hann mun yfirefa Lokeren. Einnig kemur fram að hann hafnaði Liverpool á sínum tíma en kíkjum á svörin við því og fleiru.
Alexander Harrason, 14 ára, Hrunamannahreppur
Hvað æfðiru margar klst a dag thegar thu varst a 14-15 ara aldri?
Tvær klukkustundir á dag.
Davíð Elvar Másson, 16 ára, Reykjavík
Varst þú alltaf bestur í þínum flokki þegar þú varst 15-16 ára?
Nei það voru margir góðir í mínum flokki t.d Heimir Guðjónss, Þormóður Egils og Hilmar Björnss og fleiri
Ólafur Örn Eyjólfsson, 11 ára
Sæll. Ætlar þú að ljúka ferlinum í Belgiu eða á Íslandi?
Sennilega í Belgíu en sjáum samt til.
Pétur Jónsson, 13 ára, Seltjarnarnes
Hver er besti íslenski leikmaðurinn sem þú hefur spilað með?
Atli Eðvalds, Siggi Jóns, Arnór Guðj, Ásgeir Sig, Pétur Péturs og Eiður Smári.
Sveinn Gunnlaugsson, 20 ára, Reykjavík
Gunni eða Felix?
Gunni.
Ottó B. Arnar, 38 ára, Reykjavík
Hefurðu hugsað þér að koma til Íslands að lokum þíns ferlis og þjálfa lið?
Kem örugglega til Íslands, já en að þjálfa veit ekki.
Ágúst Jóhannesson, 18 ára, Snæfellsbær
Hefuru hug á að ganga til liðs við Víking Ólafsvík þegar þú kemur heim? Ef ekki er Snæfell í 3.deildinni að heilla þig?
Aldrei að vita.
Stefán Ásgeirsson, 25 ára, Reykjavík
Það er alltaf talað um Breiðholtið í KR hverjir eru þetta og voru þessir strákar góðir?
Steinar Ingimundarson, Guðni (í perlunni) Grétarsson, Stefán Guðmundsson og Rúnar Kristinsson. Voru “allir” snillingar.
Steinar Ingólfsson, 34 ára, Akureyri
Kítlaði það aldrei þig að spila(með fullri virðingu fyrir Belgíu og Norðurlöndunum) með liði í einum af stóru deildum Evrópu eins og á Englandi eða Þýskalandi?
Jú vissulega.
Arnar Gauti Grettisson, 10ára, Vestmannaeyjar
Veldu einn markmann, einn varnarmann, einn miðjumann og einn framerja sem þú vildir hafa í liði með þér?
Buffon, Cannavaro, Pirlo og Ronaldinho.
Birgir Már Sigurðarsson, 11 ára, Þórshöfn,Langanes
Með hvaða liði hefur þér fundist best að leika með?
Lokeren.
Arnór Blomsterberg, 25 ára, Reykjavík
Eitt sinn heyrði ég að þú værir ÍR-ingur inni við beinið. Er það ekki alveg öööörugglega rétt?
Alveg örugglega ekki.
Arnór Blomsterberg, 25 ára, Reykjavík
Ef Bolton myndi hafa samband við þig og bjóða þér árs samning.....sem vatnsberi, myndir þú íhuga málið vel?
Nei.
Brynjar Freyr Halldórsson, 16 ára, Kópavogur
Hver á ljótustu fötin í liðinu þínu?
Markmaðurinn.
Ólafur Gauti Ólafsson, 21 árs, Reykjavík
Ég man þegar þú sólaðir Zidane í undankeppni EM árið "99" Þegar þið töpuðuð naumlega 3-2 , hvernig tilfinning var það að sóla einn besta fótboltamann veraladar, er hægt að lýsa því í orðum?
Spáði ekki í því. Hafði meira gaman af því að klobba Didier Deschamps.
Grímur Rúnar Lárusson, 14 ára, 540 Blönduós
Værirðu til í að spila með Hvöt ef þér byðist það. Ef Já þá ertu bara velkominn¨!!!
Takk. Mundi skoða það.
Hilmar Ægir Þórðarson, 28, Hafnarfjörður
Er það rétt að þú hafir hafnað að ganga til liðs við Liverpool á sínum tíma?
Já.
Emil Þór Ragnarsson, 12 ára, Kópavogur
Hver er eftirminnilegasti landsleikurinn þinn ?
Ísland – Frakkland, 1-1.
Sigurður Heiðarr, 26, Akranes
Undir stjórn hvaða landsliðsþjálfara líkaði þér best að leika?
Pass.
Víðir Þorvarðarson, 14, ve
Hver er stærsta stundin á ferlinum þínum?
Bikarmeistari með KR 1994.
Grétar Brynjólfsson, 18 ára, Reykjavík
Hvernig er týpiskur leikdagur hjá þér?
Vakna 9:30, morgunnmatur. Tek því rólega heima, borða klukkan 12:30, mæti í leik 16:00, borða þá með liðinu. Fundur 18:00, leikur 20:00.
Magnús Magnússon, 10 ára, Þórshöfn 680
Hver finnst þér vera besti framherji heims?
Ronaldinho.
Einar Bjarki , 11 ára, Mývatn
Númer hvað er treyjan sem þú spilar í?
10.
Ásgeir G Gíslason, 16, Ísafjörður
Hver er með stærsta delan í íslenska landsliðinu?
Veit ekki er hættur í landsliðinu, það er samt öruglega ekki Hemmi.
Arnar Jóhansson, 19, Rvk
Ætlaru að koma að spila með Leikni aftur eftir að atvinnuferli þínum er lokið?
Hugsanlega.
Sævar Sævarsson, 25, Keflavík
Hversu gamall varst þú þegar þú byrjaðir að æfa fótbolta?
8 ára.
Eyþór Ernir Oddsson, 15, Reykjavík
Hver er besti samherji sem þú hefur spilað með og hvers vegna?!?
Pétur Pétursson. Þegar við vorum í KR kenndi hann mér mikið.
Fanney Magnúsdóttir, 25, Reykjavík
Hvað finnst þér um kvennaknattspyrnu?
Hefur rétt á sér.
Helgi Már Vilbergsson, 13 ára, Njarðvík
Hvað er það skemmtilegasta við það að vera atvinnumaður?
Að geta haft áhugamál að atvinnu.
Reynir Magnússon, 14, Kópavogur
Ertu nokkuð kallaður Rúnki?
Nei, aldrei.
Andri Már Hermannsson, 13, Árbær rvk
Hvað þarf til að verða góður fótbolta maður?
Sjálfsaga, karakter, vilja, og getu.
Sæmundur Hjálmarsson, 32, Garðabær
Ferðu oft á fyllerí?
Nei.
Daniel Ingi Wium, 9, Grafarholt
Ert þú Liverpool fan?
Mikill.
Illugi Jón Árnason, 31, Kópavogur
Ég var efnilegur miðjumaður og oft nefndur næsti Rúnar Kristinsson en hætti fyrir fjórum árum, helduru að ég geti náð fyrra formi ef ég byrja aftur?
Nei.
Kristinn Ingi Jónsson, 13 ára, Seltjarnarnes
Hver er besti leikmaðurinn sem þú hefur spilað á móti?
Zidane.
Einar Freyr Andrésson , 13 ára, Njarðvík
Hver er leiðinlegasti samherji sem þú hefur spilað með?
Leyndó.
Orri Rafn Sigurðarson, 16, 109 reykjavik
Hver var hápunktur ferilsins hja þér og hvers vegna?
Bikarmeistari með kr 1994, fyrsti titill KR í fjölda ára.
Guðmundur Karl, 15, Flúðir
Blessaður hvort eru hnakki eða rokkari?
Hnokkari.
Gísli Magnús Garðarsson, 14, Mosfellsbær
Hjá hvaða Markmanni langar þér mest að skora hjá?
Birkir Kristins.
Gísli Magnús Garðarsson, 14, Mosfellsbær
Hvaða leikmann langar þér mest til að t.d "Klobba"?
Hemma Hreiðars það er svo létt.
Hafþór Jónsson, 18, eyjar
Þegar Ísland spilaði á móti Frökkum '98, miðaðir þú á hausinn á Ríkarði eða bara einhvert inní teiginn?
Miðaði rétt inn fyrir vítateiginn eins og Guðjón þjálfari bað mig um að gera. Rikki var eitt af skotmörkunum ásamt fleirum.
Þorsteinn Bogason, 31, RVK
Nú er frændi þinn hann Andri Sveinsson leikmaður Gróttu. Mun Andri einhvern tímann ná á toppinn eða náði hann kannski toppnum fyrir utan Kínarúlluvagninn á sínum tíma?
Sennilega fyrir utan kínarúlluvagninn.
Einar Daníelsson, 24 ára, Garður
Nú ert þú búinn að vera atvinnumaður í mörg ár. Hver er besti samherjinn sem þú hefur spilað með? Og hvaða ráð áttu handa svona ungum peyjum eins og mér sem eru að reyna að komast út í atvinnumennskuna?
Pétur Péturs í KR og Joao Carlos í Lokeren leggja mikið á sig við æfingar.
Óli Pétur, 12 ára, Reykjavík
Hvað hefuru skorað mörg mörk fyrir landsliðið?
Með hvaða liði mundiru vilja spila með???...Arsenal, Víkingur, Chelsea, Barcelona eða Atletico Madrid???
Barcelona.
Róbert Darri Rafnarsson, 15, Kópavogur
Er ekki málið að koma heim til Íslands og spila með Blikum eins og Marel og Arnar Grétars???
Gæti spilað á Íslandi, en varla með Blikum.
Ívar Björnsson, 16, Reykjavik
Við hvað ertu mest hræddur?
Rottur.
Brimgeir Jónsson, 12 ára, Stöðvafjörður
Hvernig verðuru svona flottur í framan?
Góð spurning.
Ágústus Geirsson, 10 ára, Reykjavík
Hvað áttu marga kodda?
Þrjá.
Steinar Ægisson, 14 ára, Mosfellsbær
Myndir þú koma í íslenska landsliðið ef þér yrði boðið það?
Nei.
Gyða Arnold Guðfreyrssdóttir, 14 ára, Reykjavík
Er það satt að þú notir make-up á sunnudögum?
Nei ekki satt.
Gunnar Pétursson og Elvar Ásgeirsson, 12 ára og 12 ára, Mosfellsbær
Hver er erfiðasti andstæðingur sem þú hefur spilað á móti?
Ég sjálfur.
Þorsteinn Haukur Harðarson, 16 ára, Hafnarfjörður
Sæll Ef þu mættir velja þitt draumalið með 11 mönnum af HM hvaða menn myndirðu velja?
Buffon, Cannavaro, Cichino, Grosso, Materazzi, Pirlo, Gattuso, Kaka, Zidane, Henry og Ronaldinho.
Jóhann Ingi Hjaltason, 15 ára, Breiðholt
Ef þú ákveður að leggja skóna á hilluna myndirpu ekki vilja spila 1-2 tímabil með ekkað með gömlu félögunum?
Jú, í inniboltanum.
Sigþór Snorrason, 21 árs, Ísafjarðarbær
Hvernig er best að koma sér á framfæri á markaðnum erlendis? Er ráðlegt fyrir leikmann sem hefur litla sem enga reynslu af efstu deildarbolta á Íslandi að sækjast eftir umboðsmanni eða þessháttar til að auðvelda sér að komast erlendis á reynslu?
Það er alltaf best að hafa umboðsmann.
Jón Jónsson, 13 ára, Reykjavík
Hvað ertu gamall? Hver er fljótastur í deildinni? Hver er grófastur í deildinni?
36 ára, veit ekki, Ástrali í Gent sem heitir Stephen Laybutt.
Gunnar G Helgason, 17 ára, Reykjavík
Hvernig var tilfinningin að leggja upp markið á móti Frökkum? Ein fallegasta sending sem eg hef séð.
Frábær. Var samt bara löng há sending inn í teig.
Gunnar G Helgason, 17 ára, Reykjavík
Hvort væri skemmtilegra að vinna Belgísku deildina eða Íslensku?
Belgísku.
Sigurjón Hallgrímsson, 16 ára, Ísafjörður
Hvort fannst þér betri Pelé eða Maradona?
Pele.
Guðni Freyr Ómarsson, 15 ára, Mosfellsbær
Sæll Rúnar. Hvernig var þinn fyrsti bíll ?
Nissan Sunny.
Sigurður Einar Traustason, 15 ára,
Finnst þér ekki gaman að skora sjálfsmörk eða hefur ekki skorað nein á ferlinum?
Aldrei skorað sjálfsmark.
Kristinn Ólafsson, 13 ára, Seltjarnarnes
Hver finnt þér besti fótboltamaður fyrr og síðar á Ísland? Hver finnst þér besti fótboltamaður í heimi fyrr og síðar?
Atli Eðvalds, Siggi Jóns, Arnór Guðj, Ásgeir Sig, Pétur Péturs og Eiður Smári. Pele.
Ingólfur Árnason, 13 ára, Akureyri
Hvernig komstu þér á framfæri í boltanum ?
Stóð mig vel á æfingum og í leikjum.
Guðlaugur Víðir Guðlaugsson, 30 ára, Vesturbær
Ættlaðru að landa fyrsta íslandsmeistaratitli með KR er þú kemur heim? Áfram KR.
Væri gaman.
Daníel Smári Magnússon, 16 ára, Vopnafjörður
Hver er besti leikmaður Belgíu um þessar mundir?
Daniel Van Buyten, Bayern Munchen.
Sigurbaldur Frímannsson, 21 árs, Grindavík
Af öllum þínum landsleikjum sem þú hefur spilað, hvaða leikur er eftirminnilegastur og af hverju?
Ísland – Frakkland 98. Góð úrslit og frábær stemmning á Laugardalsvellinum.
Jónas Aðalsteinsson, 25 ára, Egilsstaðir
Ertu látinn taka inn einhver fæðubótaefni hjá Lokeren, ef svo er hvaða efni?
Nei.
Ívar Örn Baldursson, 15 ára, Rangárþing eystra
Hvenar á að koma aftur í Íslenska boltann?
Ef af verður, þá sumar 2007.
Eysteinn Ívarsson, 16 ára, Kópavogur
Er gaman að vera tanaður og svalur?
Átti þessi spurning ekki að fara á Marel Baldvins?
Óskar Smari Harladsson, 14 ára, Varmarhlíð
Hefuru komið til Varmarhlíðar? ef svo er... Hvernig finnst þer Varmarhlíð?
Hef komið þangað, já. Flottur staður.
Lárus Geir Árelíusson, 10 ára, Hafnarfjörður
Hvað er skemmtilegasti leikur sem þú spilað á ferlinum?
Ísland – Frakkland, 98.
Arnar Þór Ólafsson, 12 ára, Seltjarnarnes
Hvað fór á milli þín og Olivers Kahn þegar Þýskaland keppti á Laugardalsvelli?
Held ég hafi ætlað að fá peysuna eða hanskana hans, fyrir son minn. Náði reyndar peysunni hans í Þýskalandi ári seinna.
Sigurður Steinar, 13 ára, Seltjarnarnes
Hvað er uppáhaldsliðið þitt í Ítölsku og Íslensku?
AC Milan og KR.
Lárus Gunnarsson, 16 ára, Reykjavík
Gengur þú í kvennmannsnærbuxum á laugardögum?
Nei.
Águst Freyr Hallsson, 12 ára, Reykjavík
Hvað er flottasta mark sem þú hefur skorað? lýstu því?
Vann boltann við miðjuhring með Lillestrom gegn Tryggva og félögum í Tromsö. Lék að vítateig og lét vaða með vinstri í stöng og inn í hliðar netið hinu meginn í markið. Efst í markvinkilinn.
Stefán Martreinn, 13 ára, Keflavík
Hvaða ráð hefuru fyrir svona unga leikmenn sem eru að reyna fyrir sér í 4.flokk?
Æfa alltaf vel og æfa meira en hinir.
Anton, 11 ára, Hafnarfjörður
Var gaman að spila með Arnari Þór Viðarsyni?
Frábært.
Stefán Harðarson, 25 ára, Reykjavík
Er það satt að þú og Pétur Marteinsson hafið hætt hjá Leikni R. vegna þess að þið fóruð í fýlu útí þáverandi þjálfara flokksins sem var bróðir þinn? Ef ekki hversvegna hættirðu hjá félaginu ?
Ekki satt. Þurfti að komast í betra lið til að bæta mig.
Hilmar Þór Hilmarsson, 15 ára, Garðabær
Ég er einn af bestu mönnunum í mínu liði, en er meiddur núna. Hvaða ráð getur þú gefið mér til að ná góðri leikæfingu?
Erfitt að ná góðri leikæfingu ef þú getur ekki spilað. Getur æft meira en hinir þegar þú byrjar aftur.
Ingimar Elí Hlynsson, 14 ára, Ólafsfjörður
Hver eru þín mestu vonbrigði og Sætasti sigur þinn á þínum fótboltaferli?
Vinna ekki Íslandsmeistaratitilinn með KR – Bikarmeistari með KR 94.
Ingimar Elí Hlynsson, 14 ára, Ólafsfirði
Hvernig finnst þér best að pirra andstæðinginn?
Klobba hann.
Ingimar Elí Hlynsson, 14 ára, Ólafsfirði
Hvaða liði myndiru aldrei spila með?
Manchester United.
Fannar Máni, 7 ára, Reykjavík
Hvort er betra fyrir unga leikmenn að fara í efstu deildir í Noregi og Svíþjóð eða í neðri deildir á Englandi?
Að mínu mati til Norðurlandana.
Davíð Elvar Másson, 16 ára, Reykjavík
Er það ekki erfitt að vera komin á þennan aldur og vera ennþá í atvinnumennsku?
Það reynir meira á líkamann en áður og er erfitt.
Grútur Grímsson, 9 ára, Egilsstaðir
Er gaman að spila fótbolta í útlöndum?
Mjög gaman.
María Sigurðardóttir, 15 ára, 105 Reykjavík
Hvað vastu gamall þegar þú vast að fara spila í atvinnumennsku?
25 ára.
Axel Axelsson, 17 ára, Mosó
Spilaru tölvuspil?, Hvað þá helst?
Bara Tiger Woods í Play Station, kann ekkert annað.
Árni Fannar Kristinson, 12 ára, Reykjavík
Hver er bestur í belgísku deildini að þínu mati?
Joao Carlos, Lokeren.
Leó Ingi Leósson, 29 ára, Siglufjörður / Reykjavík Hefurðu einhverntímann spilað við KS frá Siglufirði. Ef svo er, í hvaða liði varstu þá (sennilega KR), hvenær og hvernig fór leikurinn?
Minnir að ég hafi spilað þar æfingaleik í fjórða flokki með KR. Man ekki meira.
Sigurður Jón Jónsson, 15 ára, Reykjavik
hvað borðarðu fyrir leiki?
Kjúkling og pasta.
Tómas Guðmunsson, 14 ára, Reykjavík
Hvor finnst þér betri, appelsínugulur Doritos eða blár Doritos?
Veit ekki.
Ágúst Bjarki Hilmarsson, 13 ára, Akureyri
Hver er brjálaðasti fótbolta maður sem þú veist um?
Ronaldinho.
Ágúst Bjarki Hilmarsson, 13 ára, Akureyri
Hvernig fannst þér þegar Íslenska landsliðið gerði jafntefli við Frakka 1-1?
Frábært.
Aron Már Smárason, 22 ára, Njarðvík
Rúni finnst þér ég vera góður leikmaður?
Mjög góður.
Jens Olsen, 10 ára, Hornafjörður
Hvenig finnst þér að Eiður Smári fór til Barcelona?
Meiriháttar.
Jens Olsen, 10 ára, Hornafjördur
Með hvaða liði heldur þú með í ensku úrvaldsdeildinni?
Liverpool.
Kristófer Ánason, 12 ára, Hafnafjörður
Hvaða lið hélstu með þegar þú varst lítill og hver var uppáhalds leikmaðurinn þinn?
Liverpool, Michel Platini, Juventus/Frakkland.
Davíð Þór Jónsson, 25 ára, Keflavík
Nú er ég mikill mótórhjólaáhugamaður og þykir fátt skemmtilegra en að þeytast um þjóðvegi landsins á fáknum mínum. Átt þú eitt slíkt og þá hvernig? Og ein að lokum, er það satt að þú sért þekktur undir nafninu "Rúnaldo" í Belgíu?
Á ekki fák.. Rúnaldo hef ég heyrt en er ekki þektur undir því.
Marteinn Elí, 14 ára, Reykjavík
Hversu mörgum liðum hefur Guðni Rúnar Helgason spilað með?
Fleiri en ég.
Jóhann Ingi Guðmundsson, 11 ára, Hafnarfjörður
Hver er besti leikmaður sem þú hefur spilað með?
Atli Eðvalds, Siggi Jóns, Arnór Guðj, Ásgeir Sig, Pétur Péturs og Eiður Smári.
Hallur g Hilmarsson, 37 ára, Reykjavík
Hvort er betra lið Tottenham eða Man Utd ?
Tottenham.
Haraldur Jón Jóhannesson, 25 ára, Grindavík
Nú ert þú ljóshærður eins og ég. Nýlega krúnurakaði ég mig því það er svo þægilegt á sumrin. Hyggst þú gera slíkt hið sama einhverntímann?
Nei, ekki aftur.
Gunnar Flygering, 18 ára, Reykjavík
Ef þú gætir valið þér hvaða lið í heiminum til að spila með, hvaða félag yrði fyrir valinu? Ætlarðu út í þjálfun þegar að þú hættir að spila?
Barcelona, kannski.
Höskuldur Árnason, 32 ára, Reykjavík
Nú las ég það einhverntímann þar sem þú sagðir að þú vildir klára ferilinn þar sem hann hófst. Hverjar eru líkurnar á að við Leiknismenn fáum að njóta óumdeildrar snilli þinnar úr nýju stúkunni á Gettóground 2007?
Góðar.
Trausti Eiríksson, 18 ára, Reykjavík
Hefuru meiðst illa? Og ef svo hvernig vanstu þig út úr þeim málum?
Hef verið skorinn upp í nára og ökkla. Sjúkraþjálfun, styrktaræfingar og miklar æfingar skila alltaf árangri.
Hallgrímur Ólafsson, 22 ára, Borgarfjörður Eystri
Hvað þarf ég að gera til að komast að hjá stórum klúbb?
Æfa vel og standa þig vel í leikjum.
Heimir Dúnn Guðmundsson, 24 ára, Reykjavík
Með hvaða liði hefurðu hugsað þér að spila þegar/ef þú spilar aftur í efstu deild á Íslandi og af hverju?
KR – mitt uppáhaldsfélag.
Birgir Bjarnason, 16 ára, Garðabær
Hver er besti liðsfélagi sem þú hefur spilað á móti?
Birkir Kristinsson.
Baldur Már Stefánsson, 23 ára, Akureyri
Hver er furðulegasti samherji sem þú hefur haft?
Birkir Kristtinsson.
Guðni Grétars, 25 ára, Reykjavík
Hver er besti center sem þú hefur spilað með ?
Guðni (í perlunni) Grétarsson og Pétur Péturs.
Pape Mamadou Faye, 15 ára, Árbær
Hver er betri þú eða Bouba Diop?
Ég.
Eiríkur Már Rúnarsson, 27 ára, Eyrarbakki
Bítlarnir eða Stones?
Stones.
Guðlaugur Viktor Pálsson, 15 ára, Árbær
Hvernig tónlist hlustaru á?
Allt.
Guðni Örvars, 13 ára, Reykjavík
Hvernig er belgíski fótboltinn öðrvuvísi en íslenski?
Hraðari og Teknískari.
Björn Anton Guðmundsson, 13 ára, Sauðárkrókur
Ætlar þú að spila eitthvað meira með landsliðinu?? ef já hvenær??
Nei.
Ólafur Elí Newman, 13 ára, Keflavík
Hver er uppáhalds herbergisfélaginn þinn í útileikjum?
Arnar Viðars.
Ólafur Elí Newman, 13 ára, Keflavík
Hvaða hlut er mest lagt áherslu á æfingum hjá ykkur í Lokeren?
Liðið ekki einstaklinginn.
Aron Ingi Valtýsson, 13 ára, Keflavík
Myndiru vilja enda ferilinn hjá Keflavík?
Hæpið.
Björgvin B, 41 ára, Vesturbærinn
Rúnar hvenær kemur þú heim til að rétta KR skútuna við?
Þurfa ekki á mér að halda til að rétta hana. Hún er á góðu róli.
Ari Bjarnason, 30 ára,Ísafjörður
Á ekkert að ljúka ferlinum á að vinna deildina með Lilleström?
Nei.
Brynjar Guðjónsson, 17 ára, Reykjavík
Lýstu Þorsteini Haldórssyni Neskaupstaðar búa og fyrrum liðsfélaga þínum hjá KR fyrir okkur?
Flottur gaur sem var góðu liðsfélagi og gafst aldrei upp.
Sigurður Egill Lárusson, 14 ára, Reykjavik
Nei Bleller hvað seger kellinn...
Allt gott þakka þér.
Pálína Axelsdóttir, 15 ára, Sveitin
Hvað er fyndnasti hluturinn sem þú hefur áritað?
Hef ekki áritað neitt fyndið.
Alex Birgir Gíslason, 12 ára, Hafnarfjörður
Ætlaðir þú að verða fótbolta maður þegar þú varst lítill? Ef ekki hvað annað?
Já.
Davíð Helgi Davíðsson, 13 ára, Húsavík
Besti samherji?
Pétur Pét í KR
Skemmtilegasti samherji?
Birkir Kristinsson.
Erfiðasti mótherji?
Ég sjálfur
Uppáhalds matur og drykkur?
Lambakjöt og Coke.
Bragi Steinn Eymundsson, 12 ára, Egilsstaðir
Mundur vilja spila með Hetti næsta sumar?
Varla.
Rúnar Alfreðsson, 20 ára, Hafnafjörður
Myndiru vilja spóla allan ferilin á byrjunarreit og byrja upp á nýtt eða bara segja þetta gott?
Segja það gott.
Jens Olsen, 10 ára, Hornafjörður
Hvernig á maður að æfa til að verða góður varnamaður?
Æfa vel og mikið.
Rögnvaldur Þorgrímsson, 14 ára, Reykjavík
Ég gef þér 500kall ef þú endar ferilinn þinn í Víking reykavík en ætlaru :)?
Nei takk.
Viggi, 15 ára, Reykjavík
Í yngri flokkunum kepptiru þá á móti einhverjum sem eru atvinnumenn núna?
Held ekki.
Snorri Páll Sigurðsson, 16 ára, Reykjavík
Hvernig varðstu eiginlega svona góður í fótbolta? og hvað færðu þér að borða fyrir leik?
Æfði mikið og lék mér mikið í fótbolta alla daga. Borða kjúkling og pasta.
Gunnar sigurðsson, 22 ára, Reykjavík
Manstu þegar þú kýldir einhvern Víking upp úr 1990?
Hitti hann ekki.
Jóhann Guðmundsson, 16 ára, Akureyri
Hefuru spilað á móti hinum afar geðþekka Hrein Hringsyni og ef svo er, hversu mikið langaði þig að taka eina tveggja fóta í hnéið BAMM!?
Nei.
Árni Gísli Magnússon, 13 ára, Akureyri
Hvernig er að vera leikjahæsti leikmaður Íslands frá upphafi? er það ekki mikilll heiður?
Jú, mikill heiður og mikil heppni.
Nafn: Geir Guðmundsson
Aldur: 13
Sveitarfélag: Akureyri
1.Hvernig er tilfinningin að vita að þú ert leikjahæsti maðurinn sem ert í landsliðinu?
Skiptir voða litlu en vissulega gaman.
Sverrir Björn Einarsson, 21 ára, Fjarðabyggð
Sæll, notaðir þú ökklabönd í hverjum leik sem þú spilaðir?
Nei, aldrei.
Sindri Örn Elvarsson, 14 ára, Hornafjörður
Hvert er þitt Hobby. Ef Fótbolti telst ekki með?
Golf.
Númi Guðni Sævarsson, 13 ára, Hrunamannahreppur
Hver er erfiðasti leikmaður sem þú hefur spilað við?
Ég sjálfur.
Stefan Haukur Vidarsson, 23 ára, Kopavogi
Ég er ad hita mer grjónagraut, for alveg eftir leiðbeiningunum en þau eru eitthvað skrýtin á bragðið. Er stressadur ad það kvikni í husinu. Geturðu gefið mér einhver góð ráð?
Nei.
Kristján Másson, 26 ára, Garðabær
Sæll Rúnar, mig langar að vita afhverju þú hættir að gefa kost af þér í landsliðið. Ég spilaði með Stjörnunni í mörg ár og ef ég hefði einhverntímann fengið kallið myndi ég ekki hika við það að spila fyrir þjóð mína?
Var búinn að vera í 16 eða 17 ár í landsliðinu og kominn tími á mig. Auk þess þurfti ég að minnka álagið á líkamann til að geta haldið áfram að spila hérna úti.
Jóhann Helgason, 20 ára, Akureyri
Ertu albinói?
Nei.
Almar Ólafsson, 18 ára, Árborg/Selfoss
Hvað er flottasta mark sem þú hefur skorað?
Vann boltann við miðjuhring með Lillestrom gegn Tryggva og félöum í Tromsö. Lék að vítateig og lét vaða með vinstri í stöng og inn í hliðar netið hinu meginn í markið. Efst í markvinkilinn.
Bjarni Pétur Hinriksson, 10 ára, Reykjavík
Fótbolti eða 400 miljónir?
Fótbolti.
Úlfur Ólfasson, 4 ára, Reykjavík
Hvernig takkaskó átt þú?
Mizuno Morelia.
Andri Sveinsson, 12 ára, Siglufjörður
Hver er fallegasti leikmaður sem þú hefur spilað með?
Birkir Kristinsson.
Vífill Atlason, 15 ára, Akranes
Af hverju ertu með svona stóra höku ;D ?
Fékk hana í vöggugjöf.
Jokull Steinn Ólafsson, 12 ára, Katalónía
Hvað áttu mikið inni á bankareikning og hver eru launin þín hjá Lokeren?
Á smávegis í bankanum og er ánægður með launin í Lokeren

