Norskur landsliðsmaður á leiðinni til Kaiserslautern
Azar Karadas, leikmaður Benfica og norska landsliðsins, er á leiðinni til þýska Bundesliga risans Kaiserslautern, en hann mun eiga samningaviðæður við forráðamenn þýska liðsins í dag og gangast undir læknisskoðun í framhaldinu, náist samningar. Þetta staðfesti Jose Vega, yfirmaður íþróttamála hjá Benfica, í morgun.
Karadas, sem er 25. ára gamall sóknarmaður, var keyptur til Benfica sumarið 2004 en hann hefur fengið fá tækifæri til að spreyta sig hjá félaginu. Hann var lánaður til enska úrvalsdeildarliðsins Portsmouth á síðustu leiktíð en olli miklum vonbrigðum þar sem hann náði einungis að skora eitt mark í sautján leikjum.
Ekki er ljóst hvort Karadas verður á láni hjá Kaiserslautern út leiktíðina eða einfaldlega keyptur til félagsins.


