Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 08. september 2006 09:30
Magnús Már Einarsson
U21 árs landsliðið lendir í grímumanninum ógurlega
Guðjón með grímuna.
Guðjón með grímuna.
Mynd: .
Guðjón Baldvinsson framherji Stjörnunnar er mikill prakkari og liðsfélagar hans í íslenska U-21 árs landsliðinu kynntust því á dögunum þegar hann hræddi nokkra leikmennn ansi illa.

Eftir að íslenska liðið hafði gert markalaust jafntefli við Austurríki á útivelli voru leikmennirnir að taka því rólega uppi á hótelherbergi. Guðjón ákvað að hrekkja þá smávegis með því að setja upp grímu og hlaupa öskrandi inn í herbergi.

Hér að neðan eru myndbönd af því þegar hann hræddi þrjá leikmenn með grímunni og er þau brosleg en myndböndin má nálgast á Quicktime og Windows Media formati.

Rúrik Gíslason:
Windows Media
Quicktime

Bjarni Hólm Aðalsteinsson:
Windows Media
Quicktime

Eyjólfur Héðinsson:
Windows Media
Quicktime
Slapp
banner