Garðar Örn Hinriksson var valinn dómari ársins í Landsbankadeildinni á lokahófi KSÍ á laugardagskvöldið. Garðar Örn var einnig valinn besti dómarinn árið 2004 en hann er 35 ára gamall og félagsbundinn Þrótti.
,,Ég lít á þetta sem mikinn heiður og þetta gefur manni í raun auka kraft í það að sanna sig enn betur sem knattspyrnudómari," sagði Garðar við Fótbolti.net í dag en honum fannst hann vera svipaður í ár og í fyrra í dómgæslunni.
,,Mér fannst ég vera svipaður, nema kannski í lok tímabils í ár. Eftir að menn fóru að lofa mann trekk í trekk, þá kom þessi auka kraftur. Hrós skiptir miklu máli í þessum bransa og hjálpar manni mikið," sagði Garðar sem segir ekki einn leik standa upp úr á sumrinu. ,,Ekkert endilega bara einn leikur. Frekar bara seinni hlutinn á tímabilinu."
Aðspurður út í hvaða atvik hafi staðið upp úr á tímabilinu sagði hann: ,,Það koma alltaf upp atvik sem standa upp úr. T.d seinna gula spjaldið sem Grétar Hjartars fékk í ÍA - KR. Það var mikið deilt um hvort það hefði verið rétt ákvörðun eður ei."
Hefur íhugað að leggja flautuna á hilluna:
Gagnrýni á dómara hefur aukist ár frá ári og þá oft meira á fyrri hluta tímabila. Hvernig skyldi Garðari ganga að takast á við gagnrýnina? ,,Það er voðalega misjafnt. Maður er ekki alltaf sáttur við þessa gagnrýni, þegar maður veit annað betur. En stundum á maður hana skilið, þegar maður hefur ekki staðið undir nafni. Ég geri mér grein fyrir því hvenær ég stend mig vel og hvenær ég stend mig illa. Stundum nær þessi gagnrýni inn á mann en ég er að reyna að láta hana ekki hafa mikil áhrif á mig," sagði Garðar sem hefur íhugað að leggja dómaraflautuna á hilluna eftir leiðinlega umræðu.
,,Það hefur nokkrum sinnum komið upp. En þegar maður er búinn að jafna sig eftir erfiðan og jafnvel illa dæmdann leik, þá sér maður þetta í öðru ljósi. Ég kann vel við það sem ég er að gera, þó oft á tíðum sé það erfitt, þannig að knattspyrnumenn koma til með að sitja uppi með mig næstu árin."
Dreymir um HM, EM og Meistaradeildina:
Garðar segist vera búinn að ná toppnum í dómgæslunni hér heima en hversu langt telur hann sig geta náð? ,,Ég er búinn að ná toppnum hér heima. Ég er búinn að dæma báða bikarúrslitaleiki karla og kvenna, ásamt öðrum úrslitaleikjum hjá báðum kynjum. Ég er búinn að dæma alla svokölluðu "stóru" leiki hér heima. Það þýðir samt ekki að ég sé búinn að fá nóg af fótboltanum hér heima."
,,Ég hef náð markmiði mínu hér heima, en engu að síður ætla ég samt að reyna að gera betur. Varðandi útlönd, þá tek ég bara við þeim leikjum sem í mig eru hent. Heimurinn er stór fyrir lítinn íslending, en þrátt fyrir það dreymir mann samt um HM, EM og Meistaradeildina og ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur, til að ná því, þó að það sé mjög fjarlægur draumur."
Eins og fyrr segir hefur Garðar Örn dæmt marga stórleiki. Hverjir skyldu hins vegar vera eftirsóttustu leikirnir að dæma? ,,Eftirsóttustu leikirnir eru t.d KR - ÍA. Þetta er alltaf risaslagur þegar þessi lið eigast við. Hinsvegar finnst mér skemmtilegast að fara út á land og dæma, eins og t.d í neðri deildunum. Það er einhver sjarmi við það. Sérstaklega þegar þegar efstudeildarfélögin koma út á land og spila við smærri liðin í bikarkeppni. Það eru mínir uppáhaldsleikir," segir Garðar.
Eins og fyrr segir hefur Garðar dæmt mikið í meistaraflokkum karla og kvenna og því gefst honum lítill tími til að dæma í yngri flokkunum. ,,Því miður er það svo, að eftir að maður er orðinn landsdómari og ég tala nú ekki um það að verða orðinn einnig alþjóðlegur dómari, þá er lítill tími fyrir yngri flokka. Ég tek reyndar einn og einn 2.fl leik á sumrin, en KSÍ sér um að raða á þá leiki."
Auk þess að dæma hér heima hefur Garðar Örn fengið verkefni erlendis. ,,Hér þekkja þig allir, en það þekkir þig enginn erlendis. Það er oft gott að komast í svoleiðis leiki, þar sem enginn veit neitt um þig. En það breytir mig að öðru leiti engu máli, hvar ég dæmi. Þetta er allsstaðar skemmtilegt," sagði Garðar sem starfar með dómgæslunni sem afgreiðslustjóri hjá dreifingarmiðstöð ÁTVR.
Samdi smásögu sem vakti athygli:
Á dögunum samdi Garðar smásögu á bloggsíðu sína um umferðarslys og hefur hún vakið mikla athygli. Sagan hefur gengið á milli manna í tölvupósti og hefur snert marga.
,,Ég var að horfa á Kastljós um afleiðingar umferðaslysa og þá varð þessi hugmynd mín að ímynduðum raunveruleika til. Ég hef fengið gríðarsterk viðbrögð við þessu og ég hitti fólk ekki öðruvísi en að það minnist á þessa sögu og finnst það frábært af mér að hafa ritað hana. Og einnig að hún er mjög góð," sagði Garðar Örn um söguna.
Smelltu hér til að lesa smásöguna 'Við erum ekki ódauðleg'.".
Garðar hefur einnig verið í tónlistinni og var hann meðal annars í hljómsveitinni Url. Núna er hann hins vegar ekki í hljómsveit. ,,Eins og er, er ég ekki í neinni hljómsveit. Hver framtíðin verður, veit ég ei."
Spjaldaði sama mann tvisvar fyrir að fara úr varnarveggnum:
Á dómaraferli sínum hefur eitt og annað gerst í leikjum hjá Garðari og hann kom með eina sögu frá ferlinum. ,,Ég var eitt sinn að dæma Breiðablik - Fram í meistaraflokki karla. Fram fékk aukaspyrnu og einn ónefndur Blikinn staðsetti sig 9.15 metra frá boltanum. En rétt áður en Framarinn skaut, þá hljóp Blikinn af stað og stöðvaði þar með skotið. Þá flautaði ég og gaf ónefnda Blikanum gula spjaldið."
Framarinn stillti boltanum síðan upp aftur og ónefndi Blikinn sem fékk gula spjaldið, stillti sér aftur upp í 9.15 metra frá boltanum. En rétt áður en Framarinn skaut í seinna skiptið, þá hljóp sami Bliki aftur af stað og stöðvaði aftur boltann. Ég þurfti þá aftur að flauta á brot á Blikann og gaf honum annað gult spjald og þar með það rauða. Það sagði enginn neitt við fyrra gula spjaldinu, en það varð allt vitlaust í seinna skiptið," sagði hinn geðþekki Garðar Örn að lokum.


