þri 26.des 2006 15:23 Andri Fannar Stefánsson,
England: Chelsea tapaði stigum - Tottenham með sigur
Linvoy Primus fagnar öðru marki sínu í dag.
Mynd: NordicPhotos
Didier Drogba er sjóðheitur þessa dagana og hér fagnar hann öðru marki sínu gegn Reading.
Mynd: NordicPhotos
Þremur af níu leikjum dagsins er nú lokið í ensku úrvalsdeildinni og áttu liðsmenn Reading frekar góða heimsókn á Stamford Bridge en West Ham tapaði á heimavelli gegn Portsmouth. Tottenham vann síðan Aston Villa.

Chelsea 2 - 2 Reading
1-0 Didier Drogba ('38)
1-1 Leroy Lita ('67)
2-1 Didier Drogba ('72)
2-2 Essien sjálfsmark ('85)

West Ham 1 - 2 Portsmouth
0-1 Linvoy Primus ('17)
0-2 Linvoy Primus ('38)
1-2 Teddy Sheringham ('80)

Tottenham 2 - 1 Aston Villa
1-0 Jermain Defoe ('58)
2-0 Jermain Defoe ('77)
2-1 Gareth Barry ('81)

Á Stamford Bridge náðu Reading stigi en Didier Drogba kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik með skalla. Leroy Lita jafnaði síðan um miðbik síðari hálfleiks en Drogba kom Chelsea aftur yfir með skalla. Undir lok leiksins átti Ashley Cole svo misheppnaða hreinsun sem fór í Michael Essien og í markið og niðurstaðan því 2-2 jafntefli.

Á Upton Park skoraði varnarmaðurinn Linvoy Primus tvö mörk fyrir Portsmouth en hinn gamalreyndi Teddy Sheringham náði að klóra í bakkann fyrir West Ham undir lok leiksins.

Jermain Defoe sem sífellt hefur verið orðaður við sölu frá Tottenham skoraði tvö mörk gegn Aston Villa en Gareth Barry skoraði eina mark Aston Villa.

Nýjustu fréttirnar