sun 28. janúar 2007 15:28
Magnús Már Einarsson
Bjarni Þór: Væri fínt að fara og fá smá reynslu og leiki
Miðjumaðurinn efnilegi Bjarni Þór Viðarsson skoraði jöfnunarmark Everton í 1-1 jafntefli liðsins gegn Bornemouth í æfingaleik í gær. Bjarni var ánægður með að hafa náð að skora þegar að Fótbolti.net náði tali af honum í dag.

,,Jú jú það var mjög fínt. Við vorum líka með mjög sterkt lið þannig að það var gaman að fá 20 mínútur," sagði Bjarni en Everton stillti upp sterku liði í æfingaleiknum í gær. ,,Það voru allir með sem voru heilir þannig að við vorum með mjög fínt lið."

David Moyes stjóri Everton hrósaði Bjarna Þór eftir leikinn í gær og greindi frá því að hann væri að íhuga að lána leikmanninn. Bjarna lýst vel á að fara á lán til annars félags til að fá leikreynslu.

,,Það er ekki mikið af leikjum í varaliðinu þannig að það væri fínt að fara og fá smá reynslu og leiki. Fá þennan fíling að spila á laugardögum," sagði Bjarni en einhver lið hafa spurst fyrir um hann.

,,Það hefur verið eitthvað en ekkert eitthvað sem þeim hefur litist á. Kannski verður eitthvað meira eftir þetta en það verður bara að koma í ljós," sagði Bjarni en Everton myndi væntanlega lána hann í einn mánuð.

,,Eins og ég segi þá er ekki mikið af leikjum í varaliðinu þannig að það yrði örugglega mjög fínt að fara eitthvert og spila í mánuð. Ná fjórum leikjum, maður tapar ekkert á því."

Á næstunni ætti að koma í ljós hvort að Bjarni Þór fari eitthvert á láni en það er þó ekki bundið félagaskiptaglugganum sem lokar eftir nokkra daga því lið í ensku úrvalsdeildinni mega lána leikmenn til liða í neðri deildunum eftir að félagaskiptaglugginn lokar.
Slapp
banner
banner