Heimild: Daily Echo
Bournemouth vill fá Bjarna Þór Viðarsson á láni
Kevin Bond, knattspyrnustjóri enska 2. deildarliðsins Bournemouth, segir í samtali við enska dagblaðið Daily Echo að hann hafi áhuga að fá Bjarna Þór Viðarsson að láni frá Everton.
Bond hreifst af frammistöðu íslenska ungmennalandsliðsmannsins í leik Everton gegn Bournemouth á laugardaginn og talaði hann við David Moyes, knattspyrnustjóra Everton, um að fá Bjarna á láni.
Leikurinn, sem var æfingaleikur, lauk með 1-1 jafntefli en Bjarni kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og skoraði jöfnunarmark Everton.
,,Hann er ungur leikmaður sem virðist vel á sig kominn. Hann spilar vinstra megin á miðjunni og er mjög sókndjarfur. Ég hef talað við David (Moyes) um hann og hann ætlar að hafa samband við mig aftur,” sagði Bond.
Bournemouth er sem stendur í 21. sæti ensku 2. deildarinnar og á í mikilli fallbaráttu.



