Heimild: AP
Luca Panacalli forseti ítalska knattspyrnusambandsins sagði í samtali við fjölmiðla í gærkvöld að ef ekki verður fundin lausn á róttækum breytingum í ítalska boltanum þá gæti farið svo að ekki verði leikið á ný í ítalska boltanum. Þá sagði hann að leikur Heimsmeistara Ítalíu gegn Rúmeníu færi ekki fram á miðvikudag vegna atburða kvöldsins.
Þetta sagði hann í kjölfar þess að lögreglumaður var myrtur og annar slasaðist illa í baráttu við fótboltabullur í kringum leik Catania og Palermo í gærkvöld. Nú þegar er búið að fresta öllum leikjum í tveimur efstu deildum á Ítalíu um helgina auk þess sem vináttulandsleik Ítala gegn Rúmeníu sem fara átti fram á miðvikudaginn hefur verið aflýst. Þá átti U21 árs landsliðið að mæta Belgum í Chieti á þriðjudag og þeim leik var líka aflýst.
Eins og við sögðum frá í gær lenti táragas frá lögreglu á vellinum eftir baráttu lögreglu við æstan lýðinn fyrir utan leikvanginn. Á sjónvarpsmyndum mátti sjá leikmenn liðanna berjast við að halda andanum og hella úr vatnsflöskum yfir andlit sín.
Lögregla sagði að lögreglumaðurinn hafi látist þegar sprengju var hent inn í bílinn sem hann var í. Eftir leikinn héldu óeirðirnar svo áfram og hundruðir stuðningsmanna voru læstir inni í leikvangnum því lögregla vildi koma í veg fyrir frekari ofbeldisverk. Níu voru handteknir en enginn þeirra var grunaður um morðið á lögreglumanninum. Annar lögreglumaður er illa slasaður og tugir manna voru fluttir á sjúkrahús.
,,Við getum ekki haldið svona áfram. Það sem við urðum vitni að hefur ekkert með fótbolta að gera og því stöðvar ítölsk knattspyrna núna," sagði Luca Pancalli og bætti við að fundir yrðu á mánudag þar sem reynt yrði að komast að niðurstöðu um róttækar breytingar en ef það tækist ekki þá yrði ekki byrjað að leika á ný.
Romano Prodi forsætisráðherra kom svo fram í fjölmiðlum og sagði að eitthvað stórt þyrfti að gera til að fótboltinn myndi ekki skemmast í landinu.



