fim 15. febrúar 2007 09:16
Magnús Már Einarsson
Hin Hliðin - Hilmar Trausti Arnarsson (Keflavík)
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Einu sinni í viku sýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina hér á Fótbolti.net. Að þessu sinni er það Hilmar Trausti Arnarsson sem gekk til liðs við Keflavík í desember síðastliðnum.

Hilmar sem er tvítugur vinstri kantmaður er uppalinn hjá Haukum en hann lék níu leiki í fyrstu deildinni síðastliðið sumar eftir að hafa átt við meiðsli að stríða.


Fullt nafn: Hilmar Trausti Arnarsson

Gælunafn: Hilli algengast, hef líka heyrt Himmi og Fabio.

Aldur: 20 ára

Giftur/sambúð: Laus en alls ekki liðugur.

Börn: Alveg laus við þann pakka

Hvað eldaðir þú síðast? Eldaði mér samloku með skinku og osti, veit ekki hvort að það kallist að elda.

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Pepp, svepp og svartan pipar.

Hvernig gemsa áttu? Einhvern Nokia.

Uppáhaldssjónvarpsefni? Flest allar íþróttir og síðan er Heimsmeistaramótið í pókar í miklu uppáhaldi núna.

Besta bíómyndin? Old school og The boondock saints.

Hvaða tónlist hlustar þú á? Rokk og popp.

Uppáhaldsútvarpsstöð? X-FM, X-ið og 104,5.

Uppáhaldsdrykkur? Coke, blár powerade og rauður gatorade.

Uppáhaldsvefsíða? fotbolti.net

Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?)? Nei

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Klobba, vinna návígi og brosa síðan framan í hann.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Aldrei að segja aldrei en seint færi ég að spila í svarthvítu!

Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Þeir voru nokkrir t.d. Larsson og Gullit.

Erfiðasti andstæðingur? Landslið Sviss í u-17 árið 2002.

EKKI erfiðasti andstæðingur? Hilmararnir í Haukaliðinu, alltaf auðvelt með að stoppa þá ;)

Besti samherjinn? Erfitt að gera upp á milli, margir góðir.

Sætasti sigurinn? Þegar við slóum úrvalsdeildarlið Þróttar út úr bikarnum sumarið 2005.

Mestu vonbrigði? Úrlitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn í 5.flokki. B-liðið okkar tapaði leiknum sínum svo að A-liðið þurfti að vinna sinn leik. Leikurinn fór 4-4 svo að Fylkir varð Íslandsmeistari.
Og síðan auðvitað að falla með Haukunum í sumar, það var skelfilegt.

Uppáhalds lið í enska boltanum? Liverpool

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Gerrard

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Eiður Smári

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Baldur Sigurðsson

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Raggi Sig.

Fallegasta knattspyrnukonan? Embla

Grófasti leikmaður deildarinnar? Hlýtur að vera Páll Hjarðar.

Besti íþróttafréttamaðurinn? Hafa allir sína kosti og galla

EKKI besti íþróttafréttamaðurinn? Ætla ekkert að vera að tjá mig um það.

Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Á nú eftir að komast að því en í Haukaliðinu var það klárlega Hilmar Geir þegar hann steig trillta dansinn sinn í æfingaferðinni í Englandi vorið 2004. Hann er alveg með sporin á hreinu kappinn sá.

Hefurðu skorað sjálfsmark? Held ekki

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:
Það var í leik á móti Víking Ólafsvík sumarið 2005. Bandaríkjamaðurinn Rodney Perry sem spilaði með okkur þetta sumar var búinn að vera í stimpingum við leikmenn Víkings allan leikinn. Búinn að fiska einhvern slatta af gulum spjöldum á þá og vann alla skallabolta sem hann fór upp í þó svo að hann sé ca.165cm á hæð og var það farið að fara virkilega í taugarnar á andstæðingunum. Í seinni hálfleiknum fór hann síðan í tæklingu við Ejup sem þá var spilandi þjálfari Ólafsvíkinganna, Ejup lá eftir óvígur og lá við að kalla þyrfti á sjúkrabíl en síðan eftir að hann var búinn að liggja í grasinu í einhverjar mínútur stóð hann upp og sagði hálf grátandi við dómaran ,, Dómari þetta var viljandi ’’ Við strákarnir í Haukaliðinu vissum ekki hvort við ættum að gráta eða hlæja þegar við sáum manninn þarna hálfgrátandi. Hann fór síðan útaf draghaltur en kom hlaupandi inn á völlinn fullfrískur fáeinum sekúndum síðar.

Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Nei en eyddi ófáum klukkutímunum í honum þegar ég var yngri.

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Sumarið 2003.

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Snilldar síða.

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Já nokkrum sinnum á dag.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Fótbolti er fullkominn leikur.

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Incubus og er að fara að sjá þá í Mars.

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Teygja

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Ætli það sé ekki bara Darri, Herra Ísland.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Rúmið mitt.

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Ca. 4 snooze þá er ég góður.

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Guðjón Valur Sigurðsson

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já flest öllum.

Hver er uppáhalds platan þín? Incubus (Make yourself)

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Víkingur-Valur í bikarnum seinasta sumar.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Hafa verið Adidas skór hingað til en í sumar verður það Nike.

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Fékk aldrei háa einkunn í myndment og saumum.
Slapp
banner