Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 22. febrúar 2007 09:35
Margrét Lára Viðarsdóttir
Faxaflóamót kvenna: GRV sigraði HK/Víking
Kvenaboltinn
HK/Víkingur tapaði fyrir GRV 6-2
HK/Víkingur tapaði fyrir GRV 6-2
Mynd: www.hk.is
Einn leikur fór fram í Faxaflóamóti kvenna í gær. Sameinað til Grindavíkur, Reynis og Sandgerðis sigraði HK/Víking nokkuð örugglega 6-2.

Yfirburðir GRV voru miklir og hefði sigurinn hæglega geta orðið stærri. Þórkatla Albertsdóttir gerði sér lítið fyrir og skorað 5 mörk fyrir lið GRV og Dagmar Þráinsdóttir eitt. Mörk HK/Víkings gerði hin 16. ára gamla Vigdís Bjarnadóttir.

Mikil törn hefur verið á HK/Víkings stúlkum þar sem þær taka bæði þátt í Faxaflóamótinu og Reykjavíkurmótinu. Þær tefldu því fram ungu liði sem átti á brattan að sækja allan leikinn gegni sterku liði GRV.
Slapp
banner