Festi giftingarhringinn við grindverkið og missti puttann í leik
- Furðulegar hliðar fótboltans
Paolo Diogo miðjumaður úr svissnesku deildinni komst í fréttirnar í desember árið 2004 þegar að hann missti fingurinn á skrýtin hátt í deildarleik. Diogo var að spila með Servette á útivelli gegn Schaffhausen þegar að atvikið átti sér stað en leikurinn endaði 4-1 fyrir fyrrnefnda liðið.
Diogo lagði upp mark fyrir Jean Beauseiour á 87.mínútu leiksins og þar með komst Servette í 3-1. Diogo var ansi ánægður með markið og stökk upp á járngirðingu sem var hjá stuðningsmönnum Servette.
Diogo hafði nýlega gift sig og án þess að hann tæki eftir festist giftingarhringurinn hans við girðinguna. Þegar hann stökk af girðingunni varð puttinn eftir og hófu öryggisverðir á vellinum þegar í stað að leita að honum.
Síðar um kvöldið fór Diogo á spítala í Zurich en læknar náðu ekki að festa puttann aftur á þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Til að bæta gráu ofan á svart fyrir Diogo ákvað Florian Etter dómari leiksins síðan að sýna honum gula spjaldið fyrir að tefja með fagnaðarlátum sínum.
Í dag leikur hinn 31 árs gamli Diogo á mála hjá Schaffhausen en ekki er vitað hvort að hann klifri ennþá upp á járngirðinguna góðu þegar hann fagnar mörkum.
Furðulegar hliðar fótboltans er liður hér á Fótbolta.net þar sem ein óvenjuleg saga tengd fótbolta er sögð alla virka daga. Við tökum ábendingum um slíkar sögur fegins hendi en bendum fólki þá á netfangið fotbolti@fotbolti.net.
Smelltu hér til að sjá yfirlit yfir allar fréttir úr ,,Furðulegar hliðar fótboltans".