Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   lau 17. mars 2007 23:12
Magnús Már Einarsson
Myndband af ótrúlegu marki Paul Robinson
Paul Robinson markvörður Tottenham og enska landsliðsins skoraði ótrúlegt mark í 3-1 heimasigri liðsins á Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Robinson var með boltann út við hliðarlínu vel inn á sínum eigin vallarhelmingi. Hann sparkaði boltanum fram þar sem hann skoppaði einu sinni í teignum hjá Watford og fór síðan yfir Ben Foster og í netið.

Hægt er að sjá myndband af þessu ótrúlega marki á vefsíðunni kvikmynd.is en ekki er ólíklegt að Robinson minnist á þetta mark við Foster þegar þeir félagar hittast saman með enska landsliðinu í næstu viku.

Smellið hér til að sjá myndbandið af markinu á kvikmynd.is
Slapp
banner
banner
banner