Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fös 27. apríl 2007 14:03
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Fékk sextán kindur gefins fyrir markaskorun á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Ivica Supe leikmaður NK Zagor í króatísku þriðju deildinni brá heldur í brún þegar hann mætti til vinnu á dögunum en þá beið eftir honum hópur af kindum.

Supe sem er 29 ára hefur fengið sextán kindur kefins frá Josko Bralic smala í bænum sem bónus fyrir að hafa skorað sextán mörk á tímabilinu.

,,Ég var mjög hissa og ég hef ekki hugmynd hvað ég á að gera við svona margar kindur því ég ætla mér að skora fleiri mörk," sagði Supe við króatíska fjölmiðla.

Talsmaður NK Zagor sagði: ,,Við erum mjög lítið félagið sem eigum ekki möguleika á að fá annan styrktaraðila þannig að við erum ánægð með að Bralic bauð okkur kindur sem stuðning."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner