Spá Fótbolta.net í Landsbankadeild: 10. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að HK lendi í 10. og neðsta sæti í Landsbankadeild karla 2006 og verði þar með eina liðið sem fellur úr deildinni. Tólf sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. HK fékk 19 stig út úr þessu.
Sérfræðingarnir sem spáðu eru: Atli Eðvaldsson, Ásmundur Arnarsson, Bjarni Jóhannsson, Gunnar Oddsson, Henry Birgir Gunnarsson, Hrafnkell Kristjánsson, Hörður Magnússon, Jörundur Áki Sveinsson, Logi Ólafsson, Luka Kostic, Pétur Pétursson, Víðir Sigurðsson, Þorlákur Árnason.
Hvað segir Ásmundur? Ásmundur Arnarsson er sérstakur álitsgjafi okkar um Landsbankadeild karla. Ásmundur sem er þjálfari Fjölnis sem leikur í 1. deildinni hefur séð mikið af leikjum á undirbúningstímabilinu og lið hans hefur mætt mörgum af liðunum í deildinni.
Hér að neðan má sjá álit Ásmundar á HK.
Um HK HK eru nýliðar í deildinni og eru þar í fyrsta sinn í sögu félagsins. Væntanlega er þvi mikil stemning í þeirra herbúðum fyrir komandi sumri. Það er búið að vera jöfn og stígandi uppbygging hjá HK-ingum undanfarin ár, bæði í liðinu sjálfu sem og umgjörð þess. Það hefur einnig verið stöðugleiki hjá þeim í stjórnun þar sem sami þjálfarinn Gunnar Guðmundsson hefur verið lengi við stjórnvölinn og hefur verið að gera mjög góða hluti. Þeir hafa ágæta blöndu af ungum og efnilegum leikmönnum eins og Kolbein Sigþórs, Hörð Magnússon og Kristján Ara Halldórsson og svo reynsluboltum eins og Gunnleif í markinu og Jón Þ. Stefánsson. Það eru þó frekar fáir sem hafa mikla reynslu úr efstu deild. Þetta verður væntanlega erfitt ár fyrir þá og þeir þurfa á góðri samstöðu og stemningu að halda ætli þeir sér að komast hjá falli. Það gæti líka verið dýrt fyrir þá að missa Sigurð Sæberg sem var mikilvægur fyrir þá í fyrra. Þeir hafa hins vegar sýnt það undanfarin ár að þeir geta staðið sig vel gegn sterkum liðum og árangur þeirra í Lengjubikarnum nú í vor ætti að veita þeim gott sjálfstraust inn í sumarið.
Styrkleikar: Vel samstilltur hópur og mikil stemning í félagi sem er í fyrsta sinn í úrvalsdeild. Liðið getur varist vel, með öflugan markvörð og ætti því ekki að fá mörg mörk á sig. Ef sóknarmenn liðsins s.s. Oliver Jaeger, Jón Þ. Stefánsson og Þórður Birgisson verða duglegir að finna mark andstæðingana er aldrei að vita nema liðið geti náð fínum árangri í sumar.
Veikleikar Heilt yfir er spurning hvort hópurinn sé nógu sterkur í þetta verkefni þrátt fyrir að hafa staðið sig vel í vetur. Fáir leikmenn hafa reynslu af efstu deild. Þeir hafa ekki mikla breidd og mikið mun mæða á lykilmönnum og ekki víst að þeir séu í nægilega góðu standi til að klára sig af því.
Gaman að fylgjast með Ef Kolbeinn Sigþórsson verður hér á landi í sumar verður spennandi að fylgjast með því hvernig hann stendur sig. Kolbeinn er eitt mesta efnið á Íslandi í dag og vonandi sjáum við hann þroskast vel áfram á næstu árum. Einnig verður gaman að sjá hvernig útlendingarnir hjá þeim koma inn í þetta og þá sérstaklega Almir Cosic sem mikið hefur verið fjallað um undanfarið.
Lykilmaður Lykilmaður í HK liðinu verður væntanlega Gunnleifur Gunnleifsson markvörður eins og undanfarin ár sem og Jón Þ. Stefánsson sem mikið mun mæða á í sumar.
Þjálfarinn: Gunnar Guðmundsson þjálfar HK nú fjórða árið í röð og stýrði liðinu upp í Landsbankadeildina með því að ná 2. sæti í 1. deild á síðustu leiktíð. Gunnar er íþróttafræðingur að mennt úr Universität Hamburg frá árinu 1998 með knattspyrnu, frjálsíþróttir, handbolta og kraftþjálfun sem aðalgreinar og sálfræði sem aukafag.
Með þjálfun HK starfar hann einnig sem verkefnisstjóri hjá Íþrótta- og tómstundaráði Kópavogs. Hann hefur starfað við þjálfun frá árinu 1993 en tók við sýnu fyrsta meistaraflokksliði árið 1999 er hann tók við Leikni á Fáskrúðsfirði og stýrði þeim í tvö ár, 1999 og 2001. Árið 2002 tók hann við Leiftri/Dalvík en fór svo til HK árið 2004 og hefur verið þar síðan.
Sem leikmaður hóf hann feril sinn hjá ÍK sem var forveri HK og síðar eitt tímabil með HK. Hann hefur leikið með Val og Víking í efstu deild og hefur einnig leikið með Leikni Fáskrúðsfirði og lék með Stjörnunni í efstu deild árið 2000. Lék svo með Leiftri/Dalvík og aftur með stjörnunni´i 1. deild 2003 og eftir það lék hann aðeins tvo leiki með HK í deildabikarnum 2004..
Líklegt byrjunarlið HK í upphafi móts:
Völlurinn: HK leikur heimaleiki sína á Kópavogsvelli eins og nágrannar þeirra í Breiðablik. Völlinn umlykur hlaupabraut og við hlið hennar er lítil stúka sem tekur 369 áhorfendur. Gengt stúkunni voru áður uppbyggð stæði en nú er verið að byggja nýja glæsilega stúku á þeim stað sem mun verða tilbúin í júlí. Önnur áhorfendaaðstaða í kringum völlinn er grasbrekka þar sem margir áhorfendur koma sér jafnan fyrir.
Stuðningsmenn: Meðal þekktra stuðningsmanna HK eru Víðir Sigurðsson blaðamaður á Morgunblaðinu, Ómar Stefánsson forseti bæjarstjórnar í Kópvogi, Helgi Kolviðsson fyrrum landsliðsmaður Íslands, Rúrik Gíslason leikmaður Charlton, Sigurjón Kjartansson grínari og rokkari, Katrín Júlíusdóttir alþingismaður. Auk þess eiga Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari, Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði og Stefán Hilmarsson börn sem æfa með HK. | | Spáin | nr. | Lið | Stig | 1 | ? | ? | 2 | ? | ? | 3 | ? | ? | 4 | ? | ? | 5 | ? | ? | 6 | ? | ? | 7 | ? | ? | 8 | ? | ? | 9 | ? | ? | 10 | HK | 19 | Um félagið | Handknattleiksfélag Kópavogs Stofnað 1970.
Titlar: C-deildarmeistari 1997 og 2002. D-deildarmeistari 1992 og 2001.
Búningar: Hummel
Aðalbúningur: Peysa: Hvít / Buxur: Rauðar / Sokkar: Hvítir
Varabúningur: Peysa: Blá / Buxur: Bláar / Sokkar: Bláir Opinber vefsíða: HK.is | Komnir og farnir | Nýjir frá síðasta sumri: | Kristján Ari Halldórsson úr ÍR Almir Cosic frá Leikni Fáskrúðsfirði Rúnar Páll Sigmundsson úr Stjörnunni Þorlákur Hilmarsson frá Fylki Calum Þór Bett frá Stjörnunni Oliver Jaeger frá Sviss | Farnir frá síðasta sumri: | Sigurður Sæberg Þorsteinsson, hættur Theódór Óskarsson í Fram Helgi Pétur Magnússon til ÍA (snýr til baka úr láni) Ómar Ingi Guðmundsson í Aftureldingu | Komnir til baka úr láni: | Beitir Ólafsson frá Aftureldingu Júlíus Freyr Valgeirsson frá Sindra | Leikmenn HK | nr. | Nafn | Staða | 1. | Gunnleifur Gunnleifsson | Markvörður | 2. | Þorlákur H. Hilmarsson | Miðjumaður | 3. | Finnur Ólafsson | Miðjumaður | 4. | Jóhann Björnsson | Varnarmaður | 5. | Ásgrímur Albertsson | Varnarmaður | 6. | Davíð Magnússon | Varnarmaður | 7. | Ólafur V. Júlíusson | Miðjumaður | 8. | Stefán J. Eggertsson | Varnarmaður | 9. | Þórður Birgisson | Framherji | 10. | Jón Þorgrímur Stefánsson | Miðjumaður | 11. | Hörður Már Magnússon | Miðjumaður | 12. | Beitir Ólafsson | Markvörður | 13. | Rúnar Páll Sigmundsson | Miðjumaður | 14. | Brynjar Víðisson | Miðjumaður | 16. | Atli Valsson | Miðjumaður | 17. | Bjarki Már Sigvaldason | Miðjumaður | 18. | Kristján Ari Halldórsson | Miðjumaður | 19. | Hermann Geir Þórsson | Varnarmaður | 20. | Hörður Magnússon | Framherji | 21. | Finnbogi Llorens | Varnarmaður | 22. | Kolbeinn Sigþórsson | Framherji | 23. | Hafsteinn Briem | Miðjumaður | 24. | Hólmar Örn Eyjólfsson | Varnarmaður | 26. | Aaron Palomares | Miðjumaður | 27. | Oliver Jaeger | Framherji | 28. | Calum Þór Bett | Miðjumaður | 29. | Almir Cosic | Miðjumaður | 30. | Stefán Tandri Halldórss. | Markvörður | Leikir HK | Dags: | Tími | Leikur | 13. maí | 19:15 | Víkingur - HK | 21. maí | 20:00 | HK - ÍA | 24. maí | 19:15 | FH - HK | 28. maí | 19:15 | Keflavík - HK | 10. júní | 19:15 | HK - Fram | 14. júní | 19:15 | Fylkir - HK | 20. júní | 19:15 | HK - KR | 26. júní | 19:15 | Breiðablik - HK | 4. júlí | 19:15 | HK - Valur | 16. júlí | 19:15 | HK - Víkingur | 26. júlí | 19:15 | ÍA - HK | 9. ágúst | 19:15 | HK - FH | 16. ágúst | 19:15 | HK - Keflavík | 26. ágúst | 20:00 | Fram - HK | 2. sept | 18:00 | HK - Fylkir | 16. sept | 16:00 | KR - HK | 23. sept | 16:00 | HK - Breiðablik | 29. sept | 14:00 | Valur - HK | |