fös 25. maí 2007 09:42
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Hermann Hreiðarsson í viðtali á BBC um félagaskiptin
Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eins og kom fram hér á Fótbolta.net í morgun er landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson genginn í raðir Portsmouth frá Charlton. Hann er í viðtali á vefsíðu breska ríkisútvarpsins, BBC í dag þar sem hann tjáir sig um félagaskiptin.

,,Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir Harry [Redknapp stjóra Portsmout]," sagði Hermann í viðtalinu við BBC Sport í dag. ,,Ég gekk næstum í raðir hans fyrir fjórum árum síðan hjá Pompey áður en ég samdi við Charlton."

,,Það var erfið ákvörðun að fara ekki þá og ég er mjög ánægður með að hafa fengið annað tækifæri."

,,Ég ræddi við Harry um félagið og markmið þeirra en hann þurfti ekki að segja mikið. Það var frábær árangur að enda þar sem þeir enduðu á síðustu leiktíð."

Áður hafði Portsmouth fengið annan sterkan varnarmann til liðs við félagið er Frakkinn Sylvain Distin kom frá Manchester City og gerði þriggja ára samning. Hermann hélt áfram.

,,Ég veit að ég verð ekki öruggur með byrjunarliðssæti. En það gerir þetta enn sérstakara og meira spennandi fyrir mig. Maður vill spila með gæðaleikmönnum. Félagið er að fara í rétta átt og þeir hafa sannað það með þeim leikmönnum sem þeir hafa fengið."
Slapp
banner