Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 29. maí 2007 08:00
Margrét Lára Viðarsdóttir
Hin hliðin: Petra Rós Ólafsdóttir (GRV)
Kvenaboltinn
Petra Rós fyrirliði GRV
Petra Rós fyrirliði GRV
Mynd: Einkasafn
Petra Rós og Haraldur þjálfari GRV
Petra Rós og Haraldur þjálfari GRV
Mynd: Einkasafn
Lið GRV í æfingaferð á La Manga
Lið GRV í æfingaferð á La Manga
Mynd: Einkasafn
Petra Rós Ólafsdóttir er fyrirliði ungs og efnilegs liðs GRV sem ætlar sér mikinn í 1.deild kvenna þetta árið. Petra Rós er ein af reyndusru leikmönnum GRV liðsins og á að baki fjölda leikja í meistaraflokki. Það er því við hæfi að Petra Rós sýni á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Petra Rós Ólafsdóttir

Gælunafn : PET svona innan fótbolta hópsins annars bara nafnið mitt

Aldur: 27 ára

Gift / sambúð? Gift
Börn: Ólafur Þór 9 ára og Una Rós 5 ára

Hvað eldaðir þú síðast? Grillaðar pulsur í afmæli dótturinnar

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Skinku, ferska tómata og aukaost

Hvernig gemsa áttu? Nokia samlokusíma

Uppáhaldssjónvarpsefni? Nágrannar fínir í hádeginu, CSI og Desperate housewifes

Besta bíómyndin? Þessar gömlu góðu, Pretty Woman, Dumb and Duber ofl

Hvaða tónlist hlustar þú á? Er alæta á tónlist ….fer eftir skapi

Uppáhaldsútvarpsstöð: hlusta oftast á fm 957 annars er ég flakkari á útvarpsstöðvar

Uppáhaldsdrykkur : ískalt vatn með klaka

Uppáhalds vefsíða : fotbolti.net, umfg.is, og auðvitað fabio.bloggar.is þessar eru mínar uppáhalds

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Nei ekkert sérstaklega en reyni að einbeita mér vel á leikdegi.

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Klobbi pirrar alltaf og liggja fast á mönnunum.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Þyrfti mikið til að ég færi í Keflavík eða KR

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Arnór Gudjonsen kom einu sinni í heimsókn á æfingu til okkar þegar ég spilaði með 6. flokki karla og eftir það var hann átrúnaðargoðið og auðvitað Pele

Erfiðasti andstæðingur ? Ætli það sé ekki Ásthildur Helgadóttir þegar við vorum í efstu deild hérna um árið.

Ekki erfiðasti andstæðingur ? Ætla ekki að gera neinum að setja eitthvað nafn hérna

Besti samherjinn ? Vá á maður að gera upp á milli :S Ætli upprennandi stjörnurnar Elínborg og Anna Þórunn bítist ekki um þann titil.

Sætasti sigurinn ? Þegar við unnum 1. deildina árið 2000. Það var mjög sætt. Reyndar líka þegar við unnum margfalda sænska meistara á Gothia Cup með frekar vængbrotið og fámennt lið í “gamla daga”...fyrir leikinn var sagt að við ættum ekki séns og var bara spurning hvað sigur þeirra yrði stór. Sigur okkar vakti mikla athygli þarna og var fjallað um okkur á heilli opnu í blaði mótsins eftir sigurinn.

Mestu vonbrigði ? Þegar við töpuðum fyrir Breiðablik í undanúrslitum í bikarkeppninni árið 1999 að mig minnir, eftir að hafa komist í 1-0

Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum ? Liverpool að sjálfsögðu

Uppáhalds knattspyrnumaðurinn/konan ? Eiður Smári og Steven Gerrard

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn/konan fyrr og síðar ? Segi það séu Margrét Lára og Eiður Smári í dag og Ásta B. og Guðni Bergs af gömlum leikmönnum

Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins ? Elínborg Ingvarsdóttir og Anna Þórunn Guðmundsdóttir eru báðar hrikalega efnilegar.

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni ? Vúff....???

Fallegasta knattspyrnukonan ? Er lítið að spá í þessu...

Grófasti leikmaður deildarinnar ? Engin ein útvöld.

Besti íþróttafréttamaðurinn ? Margrét Lára fyrir að gera kvennaboltanum góð skil hérna á fotbolti.net :)

EKKI besti íþróttafréttamaðurinn ? Æi margir af þessum sumarafleysingarmönnum í sjónvarpinu eru ekki alltaf að gera sig....en æfingin skapar meistarann

Hver er mesti höstlerinn í liðinu ? Elínborg og Magga Alberts ;)

Hefurðu skorað sjálfsmark ? Nei hef ekki lent í því …og ef ég mundi skora þannig mark mundi ég helst vilja gleyma því sem fyrst

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég er sett í að loka á markmann andstæðinganna í hornum og var einn markamaðurinn orðin svo pirruð á mér í einum leiknum (eftir þó nokkur horn og 2 mörk frá mér) að hún bauð mér bara með sér í sturtu eftir leikinn fyrst ég vildi vera svona nálægt henni !!!

Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Nei

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Vá það er svo langt síðan….held ég hafi verið 15 eða 16 ára.

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? flott síða…nauðsynleg fyrir okkur áhugamenn.

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? daglega

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta?
Hmm….held bara engu svei mér þá.

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) U2 eða Rammstein

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Teygja og tína saman boltana

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum?
Pottþétt Halli úr Ástarfleyinu !! ( Halli á brókinni )

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Heima er best

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Ekki lengi þegar það er morgunæfing kl 6 en snooza oft þegar ég þarf beint í vinnuna :)

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Eiður Smári og Steven Gerrard

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum?

Hver er uppáhalds platan þín? Engin ein sérstök

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Fór síðast á Grindavík – Leikni í 1. deild karla

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Nike

Í hverju varstu/ertu lélegust í skóla? Var aldrei sátt við einkunnirnar í ensku….féll aldrei en metnaðurinn var að drepa mig

Hvað langar þig að taka þér fyrir hendur þegar knattspyrnuferlinum lýkur? Ætli það verði ekki fjölskyldan og þó ég hætti í boltanum verð ég örugglega einhvers staðar í kringum fótboltann…erfitt að slíta sig frá þessu

Slapp
banner
banner