Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 06. júní 2007 07:00
Magnús Már Einarsson
Ívar Ingimarsson svarar spurningum lesenda
Ívar Ingimarsson með spurningalistann.
Ívar Ingimarsson með spurningalistann.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Ívar á æfingu með íslenska landsliðinu.
Ívar á æfingu með íslenska landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Ívar í landsleik gegn Spánverjum síðastliðið sumar.
Ívar í landsleik gegn Spánverjum síðastliðið sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Ívar skallar boltann burt gegn Lettum.
Ívar skallar boltann burt gegn Lettum.
Mynd: Fótbolti.net - Aivars Liepins
Ívar hlær á landsliðsæfingu.
Ívar hlær á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Ívar í landsleiknum gegn Liechtenstein síðastliðinn laugardag.
Ívar í landsleiknum gegn Liechtenstein síðastliðinn laugardag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar tæklar Markus Rosenborg leikmann Svía en þeir munu mætast aftur þegar að Ísland og Svíþjóð leika í kvöld.
Ívar tæklar Markus Rosenborg leikmann Svía en þeir munu mætast aftur þegar að Ísland og Svíþjóð leika í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Ívar fyrir landsleikinn gegn Spánverjum síðastliðið sumar.
Ívar fyrir landsleikinn gegn Spánverjum síðastliðið sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Ívar þakkar áhorfendum fyrir stuðninginn eftir landsleik gegn Dönum.
Ívar þakkar áhorfendum fyrir stuðninginn eftir landsleik gegn Dönum.
Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Er hann inni?  Ívar horfir á eftir boltanum í leiknum gegn Liechtenstein.
Er hann inni? Ívar horfir á eftir boltanum í leiknum gegn Liechtenstein.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í landsleik gegn Svíum síðastliðið haust.
Í landsleik gegn Svíum síðastliðið haust.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Glottandi á landsliðsæfingu.
Glottandi á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar reynir að stöðva fyrirgjöf Fernando Torres.
Ívar reynir að stöðva fyrirgjöf Fernando Torres.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Á dögunum gafst lesendum Fótbolta.net tækifæri til að spyrja Ívar Ingimarsson leikmann Reading og íslenska landsliðsins spurninga. Ívar svaraði spurningunum fyrir helgi en hann verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu gegn Svíþjóð í kvöld. Ótal spurningar bárust á Ívar og hér að neðan eru svörin en margir voru með sömu spurningarnar og að sjálfsögðu birtast þær bara einu sinni.

Spurningarnar eru fjölbreyttar og meðal þess sem ber á góma í spurningunum er nýja ríkisstjórnin, ristað brauð með rauðkáli, Stöðvarfjörður, Jessica Alba, Íslendingarnir þrír sem eru á mála hjá Reading, Alþýðuskólinn á Eiðum, Cristiano Ronaldo, hárgreiðsla Ívars og maturinn á Englandi.
Ívar Ingimarsson
Ívar Ingimarsson er 29 ára varnarmaður sem leikur með Reading og íslenska landsliðinu. Hann er uppalinn á Stöðvarifirði þar sem hann lék með Súlunni. Ívar lék með Val og síðan ÍBV áður en hann fór í atvinnumennskuna árið 1999. Hann lék með Torquay, Brentford, Wolves og Brighton áður en hann fór til Reading árið 2003. Þar hefur hann slegið í gegn og á nýliðnu tímabili þar sem að liðið kom á óvart í ensku úrvalsdeildinni, var hann valinn leikmaður tímabilsins hjá Reading.


Hjörvar Steinn Grétarsson, 14 ára, Reykjavík
Erfiðasti leikur sem þú hefur spilað?
Örugglega fyrsti leikurinn á tímabilinu í úrvalsdeildinni. Hann var mjög erfiður, við lentum 2-0 undir og það var ekki skemmtileg tilfinning. Aftur á móti var frábært að lenda 2-0 undir en ná að vinna. Það var líklega erfiðasti og skemmtilegasti leikurinn.


Bragi Steinn Eymundsson, 13 ára, Egilsstaðir
Ef eitthvað af stóru liðunum mundi bjóða þér gott samningstilboð mundir þú taka því?
Maður yrði að skoða það ef það kæmi upp en eins og staðan er núna er ég mjög ánægður hjá Reading.


Viðar Jónsson, 30 ára, Fjarðabyggð
Á ekki að kíkja í grill í sumar?
Ekki spurning, ég reikna bara með að fá gott læri.


Hilmir Ólason, 16 ára, Ólafsfjörður
Hver er erfiðasti strikerin sem þú hefur tekið á móti?
Þeir eru margir erfiðir. Það var erfitt að eiga við Drogba hjá Chelsea, hann er sterkur og fljótur og virkilega erfitt að eiga við hann.


Steinar Ernir Knútsson, 15 ára, Reykjarvík
Hefuru smakkað rauðkál á ristað brauð?
Ég hef ekki smakkað rauðkál á ristað brauð, ég þarf kannski að tékka á því.


Birkir Örn Arnarsson, 14 ára, Kópavogur
Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir að æfa fótbolta og hvað varstu gamall þegar þú spilaðir þinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk?
Ég hef spilað fótbolta frá því að ég man eftir mér. Ég hef örugglega byrjað að sparka í bolta 3-4 ára. Ég held ég hafi spilaði minn fyrsta meistaraflokksleik 14 ára með KSH.


Rósmundur Örn Jóhannsson, 13 ára, Eskifjörður
Á hvaða tungumáli hugsaru þegar að þú spilar?
Það er eiginlega bæði á ensku og íslensku, það blandast svolítið saman.


Sindri Már Ágústsson 13 ára, Kópavogur
Ef Manchester United mundi hafa áhuga á að fá þig til liðs við þá. Væriru þá til í það?
Maður yrði að skoða það ef það myndi gerast. Ég á nú samt ekki von á því.


Óttar Loftsson, 17 ára, RVK
Nefdu þrjá hörðustu leikmenn sem þú hefur spilað með á íslandi í efstu deild?
Steinar Guðgeirs var ansi harður og Hlynur Stefáns.


Eiríkur Ingi Jónsson, 15 ára, Reyðarfjörður
Spilarðu Football manager 2007?
Ég hef ekki spilað einn einasta Football Manager.


Gabríel Kristinnson, 14 ára, 800 Selfossi
Hversu oft æfðir þú þig þegar þú varst 14-16 ára á hverjum degi?
Ég held ég hafi verið í fótbolta frá því að ég vaknaði á morgnanna þar til að ég sofnaði á kvöldin


Haraldur Axel Einarsson, 26 ára, Keflavík
Segðu mér Ívar, hver er þinn uppáhalds samherji hjá Reading fyrir utan Brynjar Björn?
Hefur þú alltaf verið sköllóttur?

Það er enginn sérstakur. Þetta eru allt mjög fínir strákar og okkur kemur öllum vel saman, þess vegna gengur okkur svona vel.

Meira og minna, ég held að ég sé búinn að vera með sömu hárgreiðslu síðan ég var 3-4 ára.


Jón Unnar Viktorsson, 14 ára, Grindavík
Hver er maðurinn sem breytti ferlinum þínum?
Það er enginn einn sérstakur. Það eru margir sem hafa hjálpað mér til að komast þangað sem ég er í dag. Mest á ég sjálfsagt foreldrum mínum að þakka.


Jón Unnar Viktorsson, 14 ára, Grindavík
Hvað finnst þér mikilvægast við Fótboltan?
Það er fólkið sem þú kynnist og hittist meðan á þessu stendur, félagsskapurinn.


Sveinn Gunnlaugsson, 21 árs, Rvk
Er Obafemi Martins ekki rosalega erfiður viðureignar og einn sá besti í heiminum í dag?
Hann er mjög góður, virkilega góður leikmaður, getur skotið með bæði hægri og vinstri og er erfiður við að eiga. Sem betur fer gekk þetta þokkalega á móti honum.


Elmar Björgvin, 23 ára, Ísafjörður
Hvaða velli fannst þér skemmtilegast að spila á fyrir utan heimavöll Reading?
Mér fannst ótrúlegt að spila á Old Trafford en mér fannst skemmtilegast að labba inn á Anfield þar sem að ég hef alltaf haldið með Liverpool.


Egill Gautur Steingrímsson, 16 ára, Rvk/Grafarvogur
Finnst þér Peter Crouch góður leikmaður? Eða erfitt að spila gegn honum?
Hann er mjög góður leikmaður. Fyrir utan að vera yfir tveir metrar á hæð þá er hann mjög flinkur og vegna stærðar hans er mjög erfitt að eiga við hann.


Baldur Seljan, 16 ára, Þórshöfn
Hver er stefnan hjá þér þegar þú hættir í atvinnumennskunni? Helduru að þú munir taka við Súlunni og vinna þriðju deildina með þeim?
Hver veit.


Húni Kjerúlf, 27 ára, Egilsstaðir
Myndir þú ekki segja, þrátt fyrir ágætan árangur þinn, að Guðmundur Bj. Hafþórsson væri besti leikmaður Súlunnar frá upphafi?
Ég er ekki frá því að hann sé það. Hann er allavega sá teknískasti og hefur klobbað flesta þá sem ég þekki.


Ástþór Eyjólfsson, 20 ára, Ullverslev
Heyrðu er ekkert inn i myndinni hjá þér að ganga til lið við Guðjón Þórðarson og félaga í ÍA. :) Okkur vantar nebblega góðan varnarmann. :)
Ekki eins og staðan er núna, ég er mjög ánægður þar sem ég er hjá Reading en Skaginn er flott lið og ég er viss um að Guðjón á eftir að gera góða hluti þar.


Grímur Rúnar Lárusson, 15 ára, Blönduós
Hvað finnst þér um nýju ríkisstjórnina?
Er þetta ekki ágætt, vonandi er að þetta bæti hag land og þjóðar.


Alexander Harrason, 15 ára, Hrunamannahreppur
Ef þú mættir velja einhvern miðvörð í heiminum til að spila með, hver væri það?
Ég er mjög ánægður með þann sem ég er, Ibrahima Sonko, hann er meiddur eins og er en ég vona að hann komi heill og sterkari til baka.


Jón Marinó Birgisson, 41 árs, Mosfellsbær
Atvinnumenn í fótbolta eru undir gríðalegu álagi. Eruð þið einhverntíman alveg heilir þá er ég að meina er ekki alltaf einhver verkur smá verkur í löpp eða í bakinu?
Það er oft eitthvað sem fylgir manni en oft er maður nálægt því að vera alveg heill. Þetta eru bara hassperur og annað sem fylgir.


Jón Unnar Viktorsson, 14 ára, Grindavík
Hvernig líður þér hjá Reading?
Mér líður rosalega vel þar. Þetta er fínn klúbbur, góð staðsetning og mér og fjölskyldunni líður vel þar.


Birgir Egilsson, 15 ára, Siglufjörður
Varstu bestur i þínum flokk þegar þú varst að æfa? og var erfitt að komast þangað þar sem þú ert í dag?
Þú verður að spyrja einhvern annan af því hvort ég hafi verið bestur. Ég var nokkuð góður þegar ég var yngri en það hefur tekið sinn tíma, miklar æfingar og vinnu að komast þangað sem ég er í dag.


Andri Þór Ómarsson, 26 ára, Fljótsdalshérað
Hefuru hugleitt það að skoða þann möguleika að ljúka ferlinum nálægt heimahögum þínum austur á landi?
Nei ég hugsa að það verði ekki. Það er ekki einu sinni lið lengur þar sem ég bý á Stöðvarfirði vegna smæðar og fæðar. Ég á ekki von á því að ég endi ferilinn fyrir Austan.


Bergþór Haukdal Jónasson, 27 ára, Reykjavík
Á hvernig tónlist hlustar þú? hverjir eru áhrifavaldar þínir í tónlist? og á hvað ertu að hlusta þessa daga?
Ég er afskapalega lítil tónlistarmanneskja en ég hef gaman af þessum gömlu rokkurum eins og Rolling Stones. Síðan hef ég gaman af REm, U2 og svoleiðis hljómsveitum


Hilmir Ólason, 16 ára, Ólafsfjörður
Hvert er upphaldsliðið þitt í íslenska boltanum?
ÍBV er liðið sem ég spilaði með og hef alltaf haldið með. Jafnframt var ég einnig í Val áður fyrr.


Bjarki Ásgeirsson, 17 ára, Hafnarfjörður
Getur Gylfi Þór eitthvað í fótbolta?
Hann er mjög góður.


Jónas Gretarsson, 33 ára, Reykjavík
Eru leikmenn Reading látnir taka inn einhver fæðubótarefni?
Já við erum með næringarráðgjafa sem leiðbeinir okkur hvað við eigum að taka. Það eru kolvetnisdrykkir, próteindrykkir, vítamín og annað slíkt.


Arnar Freyr Gunnarsson, 14 ára, Hafnarfjörður
Hvað er erfiðasti andstæðingur sem þú hefur mætt í ensku deildinni?
Drogba var erfiður og síðan spiluðum við á móti Arsenal á heimavelli. Ég myndi segja að allt Arsenalliðið hafi verið okkar erfiðasti andstæðingur því að þeir rúlluðu okkur upp.


Sigurður Einar, 24 ára, Árborg
Hvað var sterkasta lið sem þú spilaðir með á Íslandi?
ÍBV ekki spurning. 98 unnum við deild og bikar og það var meiriháttar skemmtilegur tími. Við vorum með frábært lið.


Guðmundur Smári Bjarnason, 15 ára,
Hafði það einhver áhrif á þig sem leikmann að eiga heima á Stöðvarfirði. Hugsaðiru t.d. eitthvertímann að þú þyrftir að leggja þig mun meira fram ef þú ætlaðir að komast eitthvað áfram í boltanum?
Það gæti vel verið því að það er ekki eins og þú hafir beint verið í hringiðu fótboltans Austur á Stöðvarfirði. Þú varðst að leggja mikið á þig til að komast inn í yngri landsliðin en eftir að það tókst var auðveldara við þetta að eiga.


Birkir Pálsson, 24, Seyðisfjörður
Áttirðu þér eitthvað átrúnaðargoð á þínum yngri árum?
Ásgeir Sigurvins var upp á sitt besta þegar ég var yngri og ég var með plakat af honum uppi á vegg hjá mér.


Gunnar Þórir Björnsson, 23, Akureyri
Er ekki svaka gaman að vera atvinnumaður í fótbolta? Hvað þarf maður að gera til að ná svo langt?
Það er mjög gaman að vera atvinnumaður í fótbolta en eins og öll önnur vinna er upp og niður í þessu. Til að ná langt í fótbolta eða einhverju öðru þarf að leggja hart að sér. Þetta er vinna eins og allt annað.


Emil Þór Gunnarsson, 11-12 ára, Hafnarfjörður
Hvenær fékkst þú fyrst tæki færi til að spila stórleik og hvað varst þú gamall?
Ég myndi segja að fyrsti stórleikurinn hafi verið úrslitaleikurinn sem ég spilaði með ÍBV á KR-vellinum þegar við unnum titilinn 98.


Viðar Jónsson, 23 ára, Reykjavík
Hvað tekur Sonko í bekk?
Heil ósköp.


Agnar Logi Jónasson, 18 ára, Stöðvarfjörður
Hvers vegna fórst þú að spila í vörninni? Þegar þú varst að spila hjá Súlunni varstu framherji og markahæsti leikmaður Súlunnar ásamt öðrum?
Á þetta eftir að enda með því að þú hendir Hahnemann úr markinu?


Þetta hefur þróast þannig. Ég byrjaði að spila frammi og var á kantinum líka og á miðjunni. Þegar ég fór inn í 16 ára landsliðið var ég settur fyrst í vörnina og síðan þá hef ég spilað vörn og djúpa miðju.

Ætli það endi ekki þannig, ég hef spilað flestar stöður nema markmann.


Sigurður Einar Traustason, 16 ára, Reykjavík
Ertu flughræddur?
Nei


Victor Michelsen, 14 ára, RVK
Hver telur þú að helstu kostir miðjumanns þurfi að vera?
Það er misjafnt. Ef þú vilt hafa miðjumann sem er skapandi eins og Zinedine Zidane þarf að hafa allt. Aðrir leikmenn eru meira í því að vinna boltann, vinna tæklingar og spila einfalt þannig að það er mjög vítt.


Arnór Fannar Rúnarsson, 15 ára, Hafnarfjörður
Hver er fyndnastur í Reading?
James Harper, snillingur.


Hjörtur Björn Björnsson, 21 árs, Akranes
Hver er að þínu mati erfiðasti leikmaður deildarinnar. A. C Ronaldo. B. Rooney. C. drogba. d. Lampard. E. einhver annar.
Ég lenti kannski mest í að spila á móti Drogba og Rooney en besti leikmaður deildarinnar að mínu mati er Cristiano Ronaldo.


Gunnar Jonsson, 16 ára,
Hvernig komstu þer a framfæri?
Með því að spila vel í rauninni. Ég komst inn í 16 ára landsliðið á sínum tíma og náði síðan að fara upp í gegnum öll landsliðin. Það er fólk sem fylgist með þeim strákum sem komast í þessi lið og þannig varð ég í rauninni uppgvötaður.


Leifur Hreggviðsson, 14 ára, Reykjavík
Varstu alltaf í a-liði í yngri flokkum?
Við vorum í rauninni bara með eitt lið (hjá Súlunni Stöðvarfirði). Ég spilaði alltaf upp fyrir mig. Fylgdi árgangnum sem var tveimur árum eldri en ég og þegar að þeir gengu upp var maður að ganga í næsta flokk.


Birkir Helgason, 22 ára, Vopnafjörður
Er ekki stundum vont að skalla boltann?
Jú, það getur verið svakalega vont.


Grétar Óskarsson, 15 ára, Reykjavík
Hvor finnst þér betri Stephen Hunt eða Andre Bikey?
Þeir eru mjög ólíkir. Annar er kantari en hinn er varnarmaður. Þeir eru báðir mjög góðir.


Garðar Ingi Leifsson, 16 ára, Hafnarfjörður
Hvernig karakter er Brynjar Björn?
Brynjar Björn er mjög fínn strákur.


Árni Arnar Sæmundsson, 15 ára, Akureyri
Hvað borðaru á venjulegum æfingardegi og svo á Keppnisdegi?
Það er yfirleitt nokkurnvegin það sama. Það er hluti af undirbúningnum að borða það sama og á svipuðum tíma. Þetta eru yfirleitt hrísgrjón og kjúklingur. Ekkert sérstaklega spennandi.


Davíð Hilmar Haukdal Blessing, 15 ára, HFJ,
Ef að FC Bayern myndi reyna að kaupa þig og Reading myndi samþykkja myndir þú fara til þeirra ef tilboðið væri gott?
Já maður yrði að skoða það en ég er ekki að flýta mér að fara neitt.


Guðmundur Smári Bjarnason, 15 ára,
Fórnaðiru eitthverju mjög mikilvæga til að komast á þann stað sem þú ert á í dag?
Maður fórnar kannski aðallega tíma með fjölskyldu og vinum þar sem maður býr erlendis.


Nói Björnsson, 16 ára, Húsavík
Myndirðu fara til Völsungs á Húsavík ef að þú myndir fá 120.000 pund í vikulaun?
Hvert færi maður ekki fyrir þá upphæð.


Björgvin Stefán Pétursson, 15 ára, Fáskrúðsfjörður
Hver er besti vinur þinn hjá Reading (fyrir utan Brynjar Björn)?
Hver er besti íslenski kattspyrnu maður fyrr og síðar?

Það eru margir strákar sem maður er í sambandi við og margir góðir félagar.

Ég held að það hljóti að vera Ásgeir Sigurvinsson. Ég veit að Albert Guðmundsson var frábær líka en ég held að það hljóti að hafa verið Ásgeir Sigurvinsson.


Jóhann Már Kristinsson, 14 ára, Akureyri
Er enski boltinn grófur, er mikið gefið af olnbogaskotum og þannig lagað?
Enski boltinn hefur haft það orð á sér að hann sé grófari en ég hugsa að úrvalsdeildin sé ekki eins gróf og deildirnar fyrir neðan. Það er orðið meira af útlendingum í úrvalsdeildinin og þar af leiðandi er meiri keimur af Evrópubolta þar.


Torfi Guðbrandsson, 17 ára, Kópavogur
Hver er að þínu mati hæfileikaríkasti leikmaður liðsins?
Ég held að það sé James Harper.


Davíð Þór Jónsson, 25 ára, Innri-Njarðvík
Nú er ég mikill mótorhjólaáhugamaður og þykir fátt skemmtilegra en að þeytast um þjóðvegi landsins á fáknum mínum ásamt föður mínum og tengdó. Að finna fyrir íslensku landslagi, renna fyrir fiski og tjalda í nátturunni á fátt sér líkt. Nú ert þú landsbyggðarpjakkur, hefur þú svipuð áhugamál og áttu mótorfák og þá hvernig?
Ég á ekki mótorhjól en mér finnst ákaflega gaman að vera úti á landi og eyði öllum mínum sumarfríum Austur á Stöðvarfirði og Austur á fjörðum. Ég ætla að fá mér fjórhjól.


Orri Rafn Sigurðarson, 17, Reykjavik
Hvað finnst þér að þurfi að bæta í spili íslenska liðsins og varnarleiknum?
Menn þurfa að venjast því að spila saman og spila sem ein heild, vinna fyrir hvorn annan. Ef menn gera það getum við náð góðum árangri.


Gísli Líndal Karvelsson, 19 ára, Akranes
Hver er að þínu mati besti leikmaður ensku deildarinnar og efnilegastur?
Ronaldo, hann er bæði bestur og efnilegastur,


Deividas Leskys, 15-16 ára
Hvað er það skemmtilegasta sem það hefur komið fyrir þig á ferli þínum?
Skemmtilegast var að fá tækifæri til að spila í úrvalsdeildinni, það var alltaf takmarkið og það var meiriháttar þegar að það gerðist.


Sigurjón Örn Arnarson, 29 ára, Reykjavík
Hefur fótboltafrægðin hjálpað þér í kvennamálunum?
Ég get ekki sagt það sérstaklega. Ég er búinn að vera í sambandi með sömu stelpunni frá því að ég var átján ára og við eigum tvö börn í dag þannig að það hefur ekkert reynt á það.


Hafsteinn Hafsteinsson, 21 árs, Kópavogi
Sæll Ívar og til hamingju með frábært tímabil. Hver er besti leikmaðurinn sem þú hefur leikið gegn, fyrr og síðar?
Ég held að Ronaldo verði að fara undir það.


Stefán Óskar Gíslason, 16 ára, 190Vogar
Finnst þér C.Ronaldo leiðinlegur leikmaður?
Nei alls ekki. Hann er ungur og öruggur með sig. Þykir gaman að sýna sig og er gríðarlega hæfileikaríkur. Það er væntanlega verið að tala um þar sem hann er sagður detta auðveldlega niður en er það ekki bara hluti af þessu.


Davíð Gunnarsson, 14 ára, Árborg
Þú er með flotta konu. Ég get ekki ímyndað mér hverning hún var yngri nenniru að lýsa því?
Hún var flott þá og ennþá flottari í dag.


Kristján Óskarsson, 14 ára, 112 Reykjavík
Hvað er þitt uppáhaldslið í ensku fyrir utan Reading?
Liverpool


Sigurgeir Jónasson, 12 ára, Hafnarfjörður
Hvað tekuru í bekkpressu?
Eitthvað yfir 90 kíló.


Jóhann Ingi Hjaltason, 15 ára, Breiðholt
Hver er besti samherji sem þú hefur spilað með og hjá hvaða stjóra heldurðu að þú hafir tekið mestu framförunum?
Ég myndi segja að ég hafi takið mestum framförum hjá Steve Coppell því ég hef verði mest hjá honum í Englandi og mesti stígandinn hjá mér hefur verið þar.

Besti samherjinn ég held að það sé Eiður Smári Guðjohnsen. Hann er einn allra besti fótboltamaður sem Ísland hefur átt. Hann er hæfileikaríkasti og besti leikmaður sem maður hefur spilað með.


Sindri Snær Símonarson, 13 ára, Reykjarvík
Hver er mesti miðju harðjaxlinn sem þú hefur spilað á móti fyrir Reading?


Andrés Garðar Andrésson, 21 árs, Reykjavík
Hvernig upplifun er það að vera leikmaður tímabilsins hjá liði í sterkustu deild heims?
Eru önnur lið að skoða þig?

Það er meiriháttar góð tilfinning. Þegar maður sér að maður er að ná árangri er maður stoltur og ánægður með það.

Ég veit það ekki, þú verður að spyrja þau.


Nói Björnsson, 16 ára, Húsavík
Segjum að þú sért einhleypur. Hvort myndirðu velja. Vinna ensku deildina eða sofa hjá Jessicu Alba?
Þar sem ég er ekki einhleypur hugsa ég ekki einu sinni út í það.


Hrannar Björn Steingrímsson, 15 ára, Norðurþing
Varstu öfundsjúkur út í Brynjar þegar hann jafnaði á móti Man Utd á Old Trafford?
Nei ég var meiriháttar ánægður fyrir hans hönd og hönd liðsins.


Jón Ákason, 14 ára, Hornafjörður
Varstu efnilegur þegar þú varst svona 14-15 ára?
Já já, ég var alltaf fínn í fótbolta og sem betur fer hefur verið góður stígandi síðan þá.


Heiðar Atlason, 32 ára, Reykjavík
Er það satt að Kobbi stóri bróðir á Fáskrúðfirði hafa flengt þig eftir leik af því þú hélst aldrei rangstöðulínu í stjörnum prýddu liði KBS?
Nei, ég man ekki til þess að hann hafi flengt mig.


Hrannar Björn Steingrímsson, 15 ára, Norðurþing
Hver er skemmtilegasti leikur sem þú hefur spilað?
Ég held að það hafi verið fyrsti leikurinn í úrvalsdeildinni þar sem að við lentum 2-0 undir og unnum 3-2. Það markaði tímabilið hjá okkur og gaf okkur sjálfstraust til að spila í þessari deild.


Hrannar Björn Steingrímsson, 15 ára, Norðurþing
Hvað hugsaru þegar þú gengur inn á velli eins og Old Trafford með 76.000 manns í kringum þig?
Bara djöfull er þetta gaman.


Tómas Guðjónsson, 12 ára, Vopnafjörður
Hver finnst þér bestur í Man Utd
Ronaldo.


Pétur Jónsson, 13-14 ára, Seltjarnarnes
Hittist þið leikmenn Reading mikið utan æfinga og leikja hjá liðinu?
Já já það kemur fyrir að menn hittist, fari í mat saman og baukist eitthvað fyrir utan fótboltann. Það eru þó kannski meira strákar sem eru ekki með fjölskyldur. Ég hitti Brynjar en annars er maður mikið með sinni fjölskyldu.


Karl Sveinsson, 18 ára, Grenivík
Hvernig tilfinning er það að spila á móti liðum eins og Man Utd, Chelsea, Arsenal og öðrum stórum liðum?
Alveg meiriháttar góð tilfinning.


Daníel Guðmundur Daníelsson, 15 ára, Selfoss
Er erfitt að lesa Rooney?
Já, hann er mjög flinkur og getur gert margt óvænt þannig að það er erfitt.


Peter K Sigfússon, 19 ára, RVK
Afhverju er Eiður fyrirliði íslenska Landsliðsins?
Þjálfarinn telur hann hafa þá kosti til að gera það. Hann er frægasti og besti leikmaður Íslands þannig að ég tel það geta verið eðlilegt framhald af því.


Arnar Daði Arnarson, 15 ára, Hafnarfjörður
Hver er nettasti gaurinn í Reading? fyrir utan þig & Íslendingana.
Bobby Convey.


Kristinn Rúnar Kristinsson, 17 ára, Kópavogur
Sæll Ívar, var að velta því fyrir mér hvort hann Viktor Unnar Illugason ætti séns í aðalliðið hjá ykkur í Reading?
Já í framtíðinni. Eins og staðan er í dag er hann að fóta sig í unglingaliðinu og varaliðinu en hann er mjög efnilegur og á framtíðina fyrir sér.


Jón Fannar Árnason, 11 ára, Mosfellsbær
Hvað er metið þitt að halda á lofti?
Ég man það ekki. Maður var að keppa í þessu þegar maður var yngri, ég hætti alltaf að telja í 2000.


Arnar Gauti Grettisson, 11 ára, Vestmannaeyjar
Veldu einn markmann, einn varnarmann, einn miðjumann og einn sóknamann til að hafa með í lið?
Peter Schmeichel í markinu, Maldini í vörninni, Zidane á miðjunni og Henry í sókninni.


Eiríkur Kristófersson, 12 ára, Kópavogur
Hver er eftirminnilegasti leikur þinn?
Það er fyrsti leikurinn í ensku úrvalsdeildinni.


Jónatan Hreinsson, 24 ára, Reykjavík
Er satt að þú ert kallaður "Mannætan frá Reading" í heimabænum til samanburðar við Khalid Boulahrouz?
Ég hef ekki heyrt það.


Reynir Svavar Eiríksson, 24 ára, Fáskrúðsfjörður
Klárar þú ekki ferilinn með Leikni Fáskrúðfirði til að endurgjalda okkur greiðann að hafa gert þig að manni :)
Ég á ekki von á því að ég endi ferilinn þar en ég á örugglega eftir að spila fótbolta þar og æfa með þeim á sumrin eins og ég hef alltaf gert.


Hilmar Freyr Bjartþórsson, 15, Fáskrúðsfjörður
Hvernig undirbýrðu þig fyrir leiki?
Þetta er voðalega svipað. Maður fær sér að borða á sama tíma, fer í göngutúr og hugsar um það sem maður ætlar að gera í leiknum. Maður mætir á völlinn einum og hálfum tíma fyrir leikinn og þá verður maður bara að vera klár.


Stefán Óskar Gíslason, 16 ára, 190Vogar
Ertu með hár á tánum?
Örugglega.


Þórhallur Valur Birgisson, 15 ára, Akureyri
Hver finnst þér skemmtilegasti íslenski fótboltamaðurinn?
Þeir eru margir skemmtilegir.


Jónas Guðmundsson, 15 ára, Reykjavík
Ívar ertu á LAUSU?
Nei ég er ekki á lausu.


Jón Fannar Árnason, 11 ára, Mosfellsbær
Ætlar þú að halda áfram hjá Reading á næstu leiktíð?
Hvaða sæti helduru að Reading verði í á næstu leiktíð?

Ég er á samning til 2009 hjá Reading þannig að ég á ekki von á öðru en að ég verði þar. Eins og staðan er í dag finnst mér líklegt að ég verði áfram þar framyfir þennan tíma.

Það hlýtur að vera markmiðið aftur á næsta ári að gera vel í deildinni og gera meira en hanga bara í deildinni.


Hallur Ingi Marinsson, 15 ára, Langanes
Hefur þig dreymt um að þjálfa KS/Leiftur?
Mér hefur ekkert sérstaklega dreymt um að þjálfa.


Andrés Garðar Andrésson, 21 árs, Reykjavík
Hvað finnst þér þú eiga mikið eftir að ferlinum?
Ég hlýta að eiga 4, 5 jafnvel 6 ár eftir. Það fer eftir því hvernig líkaminn höndlar það.


Jóhann Jóhannsson, 20 ára, Vestmannaeyjar
Hvaða striker fer mest í taugarnar á þér í ensku deildinni?
Enginn sérstakur, þetta eru misjafnar gaurar og ef maður lætur einhvern fara of mikið í taugarnar á sér er yfirleitt hálfur björninn hjá þeim unnin þannig að maður lætur engan fara sérstaklega í taugarnar á sér.


Jón Fannar Árnason, 11 ára, Mosfellsbær
Þegar þú vissir að þið mynduð komast upp í úrvalsdeild við hvaða lið hlakkaði þér mest að spila við?
Hvaða lið var léttast að spila við í úrvalsdeildinni?

Mig hlakkaði mjög mikið að spila á móti Liverpool og fara á Anfield.

Það eru engin létt lið í úrvalsdeildinni og ef menn halda að það séu einhver létt lið þá tapa menn yfirleitt þeim leikjum.


Magnús Sigurbjörnsson, 20 ára, Reykjavík
Einhver saga á bakvið hárgreiðsluna/skallann? Þægilegra?
Mjög auðvelt, þú vaknar upp á morgnanna og þarft ekki að hugsa um þetta.


Jón Unnar Viktorsson, 14 ára, Grindavík
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á fótboltaæfingum?
Allt varðandi fótbolta finnst mér skemmtilegt.


Tryggvi Freyr Torfason, 19 ára, Hveragerði
Hver er ofmetnasta stjarnan á Englandi, sem þú hefur keppt á móti?
Ég veit ekki hver sé ofmetnasta stjarnan, mér dettur enginn í hug.


Arnar Þór Axelsson, 12 ára, Seltjarnarnes
Hvaða liði helduru með í Landsbankadeildinni?
Ætli það verði ekki að vera mitt gamla lið Valur sérstaklega eftir að félagi minn Gunni Einars gekk til liðs við þá.


Arnór Sindri Sölvason, 14 ára, Reykjanesbær
Björk eða Sigurrós?
Ég held ekkert sérstaklega upp á þau. Konan mín er mjög hrifinn af Björg þannig að ætli ég verði ekki að segja Björk


Tómas Guðjónsson, 12 ára, Vopnafjörður
Þekkiru einhvern á Vopnafirði?
Ég þekki örugglega einhvern á Vopnafirði.


Tómas Guðjónsson, 12 ára, Vopnafjörður
Hvor er betri þú eða Cannvaro?
Örugglega Cannavaro.


Guðmundur Bj. Hafþórsson, 31 árs, Egilsstaðir
Helduru að það sé meiri samheldni í Reading liðinu nú, en sú samheldni sem var upp alla yngri flokka Súlunnar frá Stöðvarfirði? :)
Þetta er mjög svipað. Þess vegna gengur svona vel hjá Reading eins og gekk vel hjá Súlunni á sínum tíma.


Árni Hallur Júlíusson, 16 ára, Dalvíkurbyggð
Eruð þið látnir hlaupa mikið á undirbúningstímabili? og ef já hvað mikið?
Þetta undirbúningstímabil var frekar auðvelt. Það er ekki mikið um langhlaup, það eru frekar stuttir sprettir, nokkur hundruð metra sprettir á tíma sem eru endurteknir oft.


Hákon Ingi Þórisson, 12 ára, Akureyri
Hver er þín eftirminnilegasti atburðurinn þinn á fótboltaferlinum?
Hvernig hugsaru fyrir landsleiki?

Á Íslandi var það að vinna bæði deild og bikar með ÍBV. Erlendis var það að vinna fyrstu deildina með þeim hætti sem við gerðum í fyrra.
Eins og fyrir alla aðra leiki, fara í leikina til að gera mitt allra besta og koma út af vellinum vitandi það að ég hefði ekki getað gert betur.


Björn Steinar Pálsson, 22 ára, Fjarðarbyggð
Hvernig er að koma aftur heim í sveitina á sumrin þegar þú átt frí?
Frábært, annars væri ég ekki að koma þangað alltaf aftur. Ég er uppalinn á Stöðvarfirði og mér finnst rosalega gott að koma þangað til að slaka á og hitta allt fólkið sem ég þekki.


Bjarni Pétur Hinriksson, 11 ára, Reykjavík
Hefuru einhvertíman rotast þegar þú ert að keppa eða á æfingu?
Ég hef ekki steinrotast þannig að ég þurfi að vera borinn út af en ég datt aðeins út í leik á móti Manchester City á þessu tímabili þar sem ég skoraði og fékk svo skalla beint í gagnaugað.


Óskar Smári Haraldsson, 15 ára, Skagafjörður/Varmahlíð.
Jæja Ívar, ég verð nú bara að spurja þig að einu, uppáhaldsleikmaðurinn minn er í Reading og heitir Leroy Lita, hvernig persóna er hann?
Leroy Lita er fínn. Hann er hress strákur og efnilegur ungur leikmaður sem á bara eftir að verða betri.


Óskar Smári Haraldsson, 15 ára, Skagafjörður/Varmahlíð
Er góður matur þarna í Bretland? Er búinn að heyra að næstum meira en helmingur manna sem leika út í Englandi hata matin þar.
Sem betur fer er hægt að finna mjög góða veitingastaði þar eins og annarsstaðar en þessi enski matur sem slíkur höfðar kannski ekki beint til mín.


Þorgeir Jónsson, 14 ára, Ísafjarðarbær
Þegar þú fórst fyrst til Englands bjóstu við að þú myndir komast svona langt?
Það var alltaf vonin að ná langt. Maður veit aldrei hvað gerist en það var alltaf stefnan.


Arnar Már Pétursson, 14 ára, Reykjavík
Hvernig æfðiru þig þegar þú varst lítill, hver er lykilinn, sem gott ráð fyrir unga stráka?
Vera duglegir, vera alltaf með boltann við fæturnar, kvöld sem morgnanna. Halda sér við efnið og leggja sig virkilega fram við að ná því sem þeir vilja út úr þessu.


Baldur Már Stefánsson, 24 ára, Akureyri
Var Alþýðuskólinn á Eiðum góður undirbúningur fyrir atvinnumennskuna?
Ekki spurning, það var meiriháttar skemmtilegur tími og ég hefði ekki viljað missa af því.


Sigurður Gísli Snorrason, 12 ára, Hafnarfjörður
Hvað æfiru marga klukkutíma á dag?
Fórstu einhvern tímann eldsnemma á morgnana fyrir skóladag til þess að æfa þig?

Uppsettar æfingar eru einn og hálfur - tveir tímar en svo er mönnum frjálst að æfa aukalega og ég reyni að gera það.

Ég hef Örugglega gert það.


Þorsteinn Gunnar Jónsson, 14 ára, Reykjavík
Er Reading að pæla í nýjum leikmönnum í sumar t.d. Eiði?
Ég held að við höfum ekki efni á því að kaupa Eið Smára en það er örugglega verið að skoða nýja leikmenn og það kæmi mér ekki á óvart þó að 2-3 nýjir leikmenn myndu bætast við.


Sighatur Jónsson, 18 ára, Reykjavík
Hataru Guðjón Þórðarson?
Ég hata Guðjón Þórðarson alls ekki, ég ber mikla virðingu fyrir honum, finnst hann góður þjálfari og ég hef verið heppinn að kynnast honum og hans sonum. Þetta er allt fínasta fólk.


Viktor Davíðsson, 15 ára, Keflavík
Finnst þér þú vera betri en Hermann Hreiðars í hafsentarstöðuni?
Það verður einhver annar að dæma um. Mér finnst Hermann vera virkilega góður leikmaður og hann hefur náð þvílíkt langt. Fyrir mig var hann í sjálfu sér ákveðinn fyrirmynd til að feta í fótsporin á og ég held að ég sé ekki búinn að ná því ennþá.


Gylfi Karl Gíslason, 12 ára, Álftanes
Þekkiru Ragnar Elvar Arinbjarnarson?
Já ég þekki hann ágætlega, ég hitti hann í gær.


Einar Daníelsson, 25 ára, Garður
Sæll Ívar. Ég hef fylgst með þér af mikilli aðdáun þetta tímabil enda er ég sjálfur mikilvægur varnarklettur í Víðisvörninni, sonur hins kengimagnaða Danna Einars sem gerði garðinn frægan hér á árum áður. Ertu með einhver tips fyrir menn eins og mig sem spila í neðri deildum en halda enn í vonina að meika það í hinum stóra heimi?
Það er að leggja sig fram og leggja sig fram í hverjum einasta leik því maður veit aldrei hver er að horfa á.


Gunnar Örn Ástráðsson, 26 ára, Keflavík
Nú er ég sjúkraþjálfari og munda fingurnar af alúð jafnt á körfubolta og fótboltamenn Keflavíkur. Eru einhverjar óvenjulegar aðferðir sem kollegar mínar á Englandi nota til að halda ykkur stjörnunum keppnishæfum?
Nei en er menn ekki alltaf að leita að einhverju nýju. Við erum til dæmis mikið að nota ísböð núna. Eftir æfingar og leiki erum við látnir fara í sérstakt ísbað í vatn sem er undir tíu gráðum.


Marteinn Ægisson, 28 ára, Vogar Vatnsleysuströnd
Sæll og blessaður Ívar. Mikið rosalega er ég stoltur af því að vera Íslendingur þegar maður sér mann eins og þig spila óaðfinnanlega "week in week out" eins og tjallinn segir. Er það rétt að þú sért kallaður Ískletturinn eða "The Icerock" af stuðningsmönnum Reading?
Éghef heyrt það já. Eru ekki flestir Íslendingar sem spila erlendis kallaðir eitthvað slíkt.


Víglundur Páll Einarsson, 23 ára, Akureyri/Vopnafjörður
Hvert er leyndarmálið á bakvið það að fara í gegnum heilt tímabil án þess að fá áminningu sem varnarmaður? Sjálfur fékk ég 2 rauð spjöld sem leikmaður í fyrra og 4 áminningar og eina brottvísun sem þjálfari
Ég held að það skipti máli sem varnarmaður að standa á fótunum eins lengi og þú getur og vera ekki að fara í tæklingar sem þú ert ekki viss um að vinna. Jafnframt að æsa sig ekki of mikið, það borgar sig ekki, það endar oftast með spjaldi og ef eitthvað er skaðar þú þitt lið.


Agnar Logi Jónasson, 18 ára, Stöðvarfjörður
Ég vil óska þér til hamingju með árangurinn í vetur, en heldur þú að Reading geti haldið sama tempói á næsta leiktímabili?
Já ekki spurning, menn þurfa bara að hafa rétta hugarfarið og gera sér grein fyrir því að þeir eru ekki betri en þeir eru og þurfa að leggja sig jafnmikið fram á næsta ári eins og þeir gerðu á þessu ári.


Björn Steinar Pálsson, 22 ára, Fjarðarbyggð
Hvers vegna heldurðu að Steve Coppell sé svona vel við þig?
Ég held að það sé af því að hjá þeim liðum sem ég hef verið og hann hefur verið hef ég staðið mig vel og hann hefur talið sig hafa not fyrir mig hjá þeim liðum sem hann hefur farið til.


Sighatur Jónsson, 18 ára, Reykjavík
Ertu Flippari?
Það myndi ég ekki segja.
Slapp
banner
banner