Spánn 3-2 Ísland
U19 ára landslið Íslands tapaði fyrir Spánverjum, 3-2, í milliriðli fyrir EM í dag en Íslendingar höfðu náð forystunni í leiknum með marki Skúla Jóns Friðgeirssonar leikmanns KR á 22. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.
En Spánverjar komu svo sterkir til baka og settu þrjú mörk á Íslendinga. Spánverjar eru handhafar titilsins í þessum aldursflokki. Íslendingar náðu þó að klóra í bakkan með marki frá Bjarna Viðarsyni úr vítaspyrnu.
Tveir leikmenn Íslands fengu að líta rauða spjaldið í leiknum þeir Rúrik Gíslason og Halldór Kristinn Halldórsson leikmaður Leiknis R.
Rúrik fékk að líta tvö gul spjöld en Halldór fékk beint rautt og var það fremur umdeildur dómur.
Fyrr í kvöld var sagt hér á Fótbolta.net að leikurinn hafi farið 3-1 fyrir mistök en það er leiðrétt hér með.
Milliriðillinn er haldinn í Noregi en næsti leikur Íslendinga er gegn heimamönnum í Noregi á föstudag klukkan 17:00.
Byrjunarlið Íslendinga í dag (4-5-1):
Markvörður: Atli Jónasson (Reynir S. á láni frá KR)
Hægri bakvörður: Almarr Ormarsson (KA)
Vinstri bakvörður: Hjörtur Logi Valgarðsson (FH)
Miðverðir: Eggert Gunnþór Jónsson (Hearts FC) og Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Hægri kantur: Skúli Jón Friðgeirsson (KR)
Vinstri kantur: Marko Pavlov (Real Betis)
Tengiliðir: Bjarni Þór Viðarsson fyrirliði (Everton), Aron Einar Gunnarsson (AZ Alkmaar) og Arnór Smárason (Herenveen SC)
Framherji: Rúrik Gíslason (Charlton Athletic)
Athugasemdir