Grikkland 0-3 Ísland
0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir (víti)
0-2 Ásthildur Helgadóttir
0-3 Greta Mjöll Samúelsdóttir
Nú var að ljúka leik Íslands og Grikklands í undankeppni Evrópumóts kvenna en leikurinn fór fram í Aþenu. Íslendingar voru sterkara liðið á vellinum í dag og áður en yfir lauk höfðu stúlkurnar betur 3-0.
0-2 Ásthildur Helgadóttir
0-3 Greta Mjöll Samúelsdóttir
Nú var að ljúka leik Íslands og Grikklands í undankeppni Evrópumóts kvenna en leikurinn fór fram í Aþenu. Íslendingar voru sterkara liðið á vellinum í dag og áður en yfir lauk höfðu stúlkurnar betur 3-0.
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fyrsta mark Íslands snemma leiks með þrumuskoti úr vítaspyrnu sem hafði verið dæmd eftir að brotið hafði verið á henni.
Ásthildur Helgadóttir bætti svo öðru marki við eftir um stundarfjórðung með góðum skalla eftir aukaspyrnu frá Eddu Garðarsdóttir og staðan í hálfleik var 0-2 fyrir Ísland
Katrín Jónsdóttir miðvörður íslenska liðsins var tæp vegna meiðsla fyrir leikinn og varð að yfirgefa leikvöllinn áður en fyrri hálfleikur var á enda vegna meiðsla og Ásta Árnadóttir leysti stöðu hennar í vörninni.
Rakel Logadóttir meiddist svo snemma í síðari hálfleik og Greta Mjöll Samúelsdóttir leysti hennar stöðu.
Greta Mjöll átti eftir að koma nokkuð við sögu því hún innsiglaði 3-0 sigur Íslendinga undir lokin. Þá skoraði hún með skoti eftir hornspyrnu frá Eddu Garðarsdóttir og lokatölur 3-0.
Athugasemdir