Hjörvar, Steingrímur og Páll í Hamrana (Staðfest)
Hamrarnir frá Akureyri í þriðju deildinni hafa fengið góðan liðsstyrk en Hjörvar Maronsson, Páll Árnason og Steingrímur Örn Eiðsson hafa allir gengið til liðs við liðið. Hjörvar þó einungis á láni.
Hjörvar sem er varnarmaður hefur verið á mála hjá KA undanfarin ár en gengið illa að festa sig í sessi í byrjunarliðinu í sumar og því ákvað að róa á önnur mið tímabundið.
Steingrímur hefur leikið með KA undanfarin ár en ákvað að hætta eftir síðasta tímabil. Páll Árnason er uppalinn í KA en hefur verið að leika með Magnamönnum á Grenivík í vetur og sumar.
,,Mér líst vel á nýju mennina og þeir munu vafalaust styrkja liðið. Við höfum verið að leika mjög vel á köflum í sumar en dottið niður þess á milli. Vonandi náum við að halda betur út og það í 90 mínútur í leik en núna eru Hamrarnir komnir með hóp sem getur stefnt nokkuð hátt," sagði Stefán Rúnar Árnason þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í gær er ljóst var að þremenningarnir væru gengnir til liðs við Hamranna.
Þá hafa Hamrarnir fengið Símon Símonarson frá Selfossi en Símon er eins og Páll, uppalinn í KA en ákvað að róa á önnur mið í vor.




