Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 03. júlí 2007 08:05
Magnús Már Einarsson
Viðtalið -Theodór Elmar: Rígurinn ólýsanlegur í Glasgow
Theodór Elmar í stúkunni á KR-velli en hann fylgist ennþá vel með gangi mála hjá sínu gamla félagi og mætti á alla leiki liðsins þegar hann var hér á landi í sumarfríi.
Theodór Elmar í stúkunni á KR-velli en hann fylgist ennþá vel með gangi mála hjá sínu gamla félagi og mætti á alla leiki liðsins þegar hann var hér á landi í sumarfríi.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Theodór Elmar á sprettinum í sínum fyrsta A-landsleik, gegn Liechtenstein í síðasta mánuði.
Theodór Elmar á sprettinum í sínum fyrsta A-landsleik, gegn Liechtenstein í síðasta mánuði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Theodór Elmar Bjarnason er einn efnilegasti leikmaður Íslendinga en hann lék á dögunum sína fyrstu A-landsleiki. Theodór er á mála hjá stórliði Glasgow Celtic í Skotlandi. Fótbolti.net hitti hann að máli á dögunum þegar hann var í sumarfríi hér á landi og ræddi við hann um lífið hjá Celtic í Skotlandi, komandi tímabil, Meistaradeildina, mikinn íþróttaáhuga og fleira.

Theodór Elmar um:
Shunsuke Nakamura: Frábær leikmaður. Hann er hógvær og talar ekki mikla ensku þannig að maður hefur lítið samband við hann utan fótboltans.

Gordon Strachan: Skemmtilegur karakter, fínt að vinna með honum og ágætis þjálfari, ég kann vel við hann.

Thomas Gravesen: Klikkhaus, hann er mjög skemmtilegur og hress gaur, fínn leikmaður líka.

Roy Keane: Ég get lítið sagt um hann þar sem að ég var lítið í kringum hann en hann er foringi og mjög hvetjandi maður að vinna með. Hann er frábær leikmaður og goðsögn í rauninni.

Ríginn milli Celtic og Rangers: Ólýsanlegt, þetta er nánast bara rugl. Það er ekki hægt að lýsa því með orðum. Eftir síðasta leik fóru 400 manns á spítala eftir þennan leik og leikmenn liðanna mega ekki fara í bæinn eftir leiki, það er ekki mælt með því.
Theodór Elmar gerði á dögunum nýjan samning við Celtic en önnur lið höfðu einnig á honum. Hann vildi hins vegar vera áfram hjá skoska stórliðinu.

,,Já ef að þeir myndu samþykkja það sem við vorum að biðja um og myndu mæta okkar kröfum þá var það alltaf fyrsti kostur," sagði Theodór Elmar en hann kann vel við sig í Skotlandi.

,,Mjög vel, þetta hefur verið fínn tími hingað til og ég er búinn að bæta mig mikið sem knattspyrnumaður. Ég hlakka bara til næstu þriggja ára."

Theodór lék sinn fyrsta leik með aðalliði Celtic þegar að liðið tapaði 2-1 fyrir Hibernian í skosku deildinni í vor. Hann var einnig á varamannabekk aðalliðsins í fleiri leikjum og þar á meðal í bikarúrslitunum.

,,Það var mjög sérstakt að fá að spila fyrir svona stórt lið og frábær tilfinning. Það gekk mjög vel og ég var maður leiksins hjá heimasíðu Celtic og hjá einhverjum blöðum úti."

,,Ætli það hafi ekki líkað hjálpað mér að fá þennan samning sem ég fékk. Síðan komu tveir landsleikir sem ég stóð mig ágætlega í þannig að þetta voru tveir-þrír góðir mánuðir hjá mér,"
sagði Theodór sem býst við að fá fleiri tækifæri með aðalliðinu á komandi tímabili.

,,Já klárlega, annars hefði ég ekki samið við þá. Vonandi fæ ég þónokkuð af tækifærum á næstu leiktíð. Ég held að minn besti séns sé á vinstri kantinum og vonandi fæ ég að spila eitthvað á miðjunni líka," sagði Theodór en hans uppáhaldsstaða er framarlega á miðjunni.

Stjóri Celtic er hinn reyndi Gordon Strachan og hefur hann miklar mætur á Theodóri. ,,Hann sagði að ég væri í framtíðarplönum sínum og ég ætti eftir að fá sénsinn. Það voru mjög jákvæð skilaboð."

Meistaradeildin heillar:
Celtic mun leika í Meistaradeildinni á komandi leiktíð og Theodór vonast að sjálfsögðu til að fá tækifæri þar. ,,Klárlega, að spila á móti þeim bestu er alltaf skemmtilegast. Við þurfum að spila einn leik í undankeppninni en við ættum að vera sigurstranglegir þar."

Celtic fór í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð og vann meðal annars frækinn 1-0 sigur á Manchester United í riðlakeppninni.

,,Þá var ég að horfa á og styðja Celtic þó að ég styðji oftast Manchester. Það var gríðarleg stemning og þá hugsaði maður með sér 'þarna vill maður vera í framtíðinni.''

Meistaradeildin eru ekki einu leikirnir þar sem að stemningin á Celtic Park er rafmögnuð því hún er einnig rosaleg í leikjum gegn grönnunum í Glasgow Rangers.

,,Ég held að það geti ekki orðið neitt meiri stemning. Það eru mikil læti og stuðningsmennirnir þegja ekki allan leikinn og styðja mann sama hvernig gengur."

Theodór gekk til liðs við Celtic árið 2004 en skoski boltinn hefur ekki komið honum á óvart. ,,Hann kom mér ekki beint á óvart, ég vissi lítið um hann, ég vissi að Celtic og Rangers væru mjög stór lið og sterk en vissi lítið um hin liðin. Þau hafa ekki komið mér á óvart því yfirburðirnir eru þónokkrir hjá Celtic og Rangers," sagði Theodór sem segir skoska boltann henta sér ágætlega.

,,Ég hélt það ekki til að byrja með en ég er búinn að venjast hraðanum og hörkunni núna. Maður er búinn að bæta á sig nokkrum kílóum af kjöti þannig að þetta er auðveldara núna."

Var í mörgum öðrum íþróttum:
Kjartan Henry Finnbogason kom til Celtic frá KR á sama tíma eða árið 2004. Hann er núna á förum frá Celtic og því mun Theodór vera eini Íslendingurinn hjá liðinu.

,,Ég býst við að þetta verði aðeins öðruvísi og kannski einmannalegra en ég verð bara duglegur að fá gesti í heimsókn. Það er mikill stuðningur að hafa einhvern sérstaklega þegar við erum þetta góðir vinir. Það var mjög þægilegt og það er sárt að hann skuli fara en hann á eftir að standa sig einhversstaðar annarsstaðar." sagði Theodór en foreldrar hans kíkja oft í heimsókn. ,,Þau eru dugleg að heimsækja mig og síðan kemur mikið af félögum mínum."

Theodór fékk aukna athygli eftir að hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik og fólk er núna farið að kannast við hann á götum úti í Glasgow.

,,Það er aðeins farið að aukast núna eftir minn fyrsta leik, ætli það verði ekki aðeins meira á næstu leiktíð líka ef maður fær að spila eitthvað. Það er nánast brjálæði hvað þetta er tekið alvarlega þarna Celtic og Rangers.

Theodór hefur gríðarlegan áhuga á íþróttum og æfði ýmsar íþróttir áður en hann einbeitti sér að fótboltanum. ,,Áhugamál utan fótboltans eru mörg. Ég hef gaman af því að fara á snjóbretti þegar ég get það, ég hef áhuga á körfubolta, spila mikið snóker og finnst skemmtilegt í golfi."

,,Ég held að ég hafi æft flest allar íþróttir sem er í boði að æfa. Sund, badminton, handbolta, körfubolta, fótbolta, frjálsar íþróttir og ýmislegt," sagði Theódór að lokum við Fótbolta.net en hann
lagði fótboltann alfarið fyrir sig 14 ára þegar hann hætti að æfa hand
og körfubolta.
Slapp
banner
banner