Arona Einar Gunnarsson, átján ára Akureyringur stóð sig vel á sínu fyrsta ári hjá AZ Alkmaar í Hollandi eftir að hafa komið til liðsins frá Þór í fyrrasumar. Aron Einar var gerður að fyrirliða U-19 ára liðsins, lék með varaliðinu og var á bekknum hjá aðalliðinu í einum leik í hollensku deildinni. Við hittum Aron Einar þar sem hann var í sumarfríi hér á landi á dögunum. Hann segir byrjunina í Hollandi hafa verið erfiða.
,,Ég vissi ekki hvað ég var að gera þarna fyrst, strákarnir voru miklu teknískari og með leikskilning á við ég veit ekki hvað. Ég var einn á hóteli og það var erfitt fyrsta mánuðinn en eftir það fór ég að kynnast Grétari (Rafni Steinssyni) og við fórum að vera meira saman, þetta fór að ganga miklu betur fótboltalega séð og ég fór að detta aðeins inn í hópinn hjá strákunum. Ég var líka farinn að skilja þá aðeins, fyrst vissi ég ekkert hvað þeir voru að segja," sagði Aron Einar við Fótbolta.net.
,,Ég er búinn að spila með unglinga og varaliðinu. Ég var fyrst eiginlega bara með U-19 ára liðinu en síðan fór ég að vinna mig inn í liðið hjá varaliðinu. Eftir áramót gekk betur, ég var gerður að fyrirliða hjá U-19 og maður sér að þeir hafa góða trú á manni."
Eins og fyrr segir var Aron Einar einu sinni í aðalliðshópnum hjá AZ, í leik gegn Utrecht í hollensku deildinni í janúar en þá áttu nokkrir leikmenn liðsins við meiðsli að stríða. Fyrr í janúar hafði hann dottið út úr leikmannahópnum á síðustu stundu fyrir aðalliðsleik.
,,Ég átti að vera tvisvar á bekknum, þeir voru tveir meiddir en Grétar kom inn í hópinn á síðustu stundu. Eftir þetta var ég viðloðandi hópinn og datt inn einu sinni en síðan fóru menn að jafna sig eftir meiðsli og urðu allir heilir."
Var boðinn nýr samningur
Aron hefur leyst ýmsar stöður með vara og U-19 ára liði AZ Alkmaar, meðal annars í hægri bakverði en hann kann best við sig á miðjunni.
,,Ég fór á fund áður en ég fór heim og þeir sjá mig sem aftari miðjumann. Þeir hafa prófað mig í hægri bakverði og miðverði líka og síðan var ég frammi í einum leik. Ég stóð mig vel í hægri bakverðinum með varaliðinu í einhverjum leik að þeir vilja sjá mig lengur þar en ég er enginn hægri bakvörður, það er nokkuð ljóst."
Eins og gefur að skilja eru forráðamenn AZ ánægðir með það hversu vel Aroni gekk á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu og buðu þeir honum nýjan samning.
,,Ég fékk nýjan samning en við vorum ekki nógu ánægð með hann og höfum ekki skrifað undir. Umboðsmaðurinn vildi sjá hvernig þetta færi þegar ég kem út og það gerist allt eftir það,” sagði Aron Einar sem á tvö ár á eftir af samningnum en hann hefur hafið æfingar að nýju með AZ og æfir bæði með aðal og varaliði félagsins.
Önnur félög hafa sýnt honum áhuga en sjálfum líkar Aroni vel í Hollandi. ,,Ég hef heyrt af liðum eins og í Þýskalandi en ég hugsa ekki mikið um það, ég er ánægður í Hollandi," sagði Aron sem er einnig allur að koma til í hollenskunni eftir fyrsta árið.
,,Ég er allur að koma til, ég náði þessu í lokin þegar ég var að koma heim. Ég hef pottþétt gleymt einhverju núna en ég þarf bara að byrja að tala. Ég er í hollensku að reyna að bæta orðaforða en það er mjög erfitt að tala því framburðurinn er öðruvísi en í íslensku og erfitt að bera þetta fram."
Leiðinlegt að horfa á hollenska boltann vegna taktíkarinnar
Þjálfari AZ Alkmaar er enginn annar en Lois Van Gaal og menn bera mikla virðingu fyrir honum hjá félaginu. ,,Hann er mjög spes. Hann er stór kall og það bera allir mikla virðingu fyrir honum. Hann er með frábært record og mér finnst hann vera góður þjálfari. Hann er mjög strangur og þú segir ekkert við hann nema þú heitir Shota Arvaladze eða eitthvað. Ef þú ert að koma upp úr akademíunni segir þú ekkert við hann, annars ertu dauður."
,,Það er mjög skrýtið að tala við hann. Hann er í miklu uppáhaldi hjá eiginmanni systur minnar. Hann er alltaf að biðja mig um að spyrja van Gaal spurninga en ég geri það ekki, ekki séns."
Aron Einar hefur orð á því að taktíkin í boltanum í Hollandi sé gífurleg og að leiðinlegt sé að horfa á boltann þar í landi.
,,Þetta er ekkert eins og hér heima, þetta er allt önnur íþrótt úti, það er svo mikil taktík að það er leiðinlegt að horfa á boltann þarna. Ég held að það sé þess vegna sem hann er ekki mikið sýndur í sjónvarpi á Íslandi. Á Englandi eru sýndir nánast allir leikir og þar er verið að spila hratt, tækla og þannig lagað."
,,Ég hef lært alveg fáránlega mikið af tækni og taktík síðan að ég fór út. Ég sá mig fyrst meira sem Englending með baráttuna en það geta allir með baráttu staðið sig í Hollandi eins og sést með Grétar. Hann er ekki besti fótboltamaður sem við höfum átt en hann er með það mikla baráttu að hann er einn af bestu hægri bakvörðunum í Hollandi,” sagði Aron Einar sem er ánægður með að hafa Grétar Rafn einnig hjá AZ.
Tapar fyrir Grétari Rafni í pool
,,Fyrst þegar ég var þarna var hann mjög mikið að hanga með Jóa (Jóhannesi Karli Guðjónssyni) fyrstu sex mánuðina þegar að Jói var þarna. Eftir það fór hann allt í einu að sýna mér áhuga, það hefur verið snilld að hafa hann. Við förum mjög oft út að borða og erum alltaf að keppa í Pool. Það er snilld að hafa annan Íslending þarna og síðan er Kolbeinn (Sigþórsson) kominn núna líka,” sagði Aron sem er mikið í pool með Grétari.
,,Við erum mikið í pool. Hann er betri og vinnur oftast og ég held að ég hafi unnið einu sinni þegar við tökum fjóra leiki í röð, hann á líka pool borð heima hjá sér,” sagði Aron Einar og glotti en hann fékk að fara heim í frí um Jólin síðast annað en leikmenn aðalliðsins.
,,Sem betur fer kom ég heim. Jói og Grétar voru að spila um jólin sem er fáránlegt skipulag en þeir komu 1-10.janúar í frí og fengu því næstum jafnlangt frí og ég. Þeir voru þarna um hátíðarnar og ef ég verð með aðalliðinu núna verð ég náttúrulega að vera úti um Jólin.”
Á meistaraflokksleiki að baki handbolta
Aron Einar hefur alla tíð verði á fullu í íþróttum og æfði hann handbolta lengi vel. Hann var efnilegur í handboltanum og lék meðal annars nokkra meistaraflokksleiki með Þórsurum þar áður en að harpixið fór upp á hillu.
,,Ég var bara fimmtán eða sextán ára þegar ég hætti alveg í handboltanum. Ég held að það hafi hjálpað mér mjög mikið að vera í handboltanum. Ég hef mikinn líkamlegan styrk að ofanverðu."
,,Ég hafði miklu meira gaman af fótbolta, mér finnst handbolti vera of einföld íþrótt þar sem að þú ert alltaf að gera það sama nánast. Þú verst, ferð fram, “stimplar” og reynir að skora. Í fótboltanum getur þú gert miklu meira af hlutum sem þú getur ekki gert í handboltanum,” sagði hinn bráðefnilegi Aron Einar Gunnarsson að lokum við Fótbolta.net.


