Sjónvarpsmaðurinn góðkunni Hugi Halldórsson var á dögunum ráðinn þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar sem leikur í Landsbankadeild kvenna en hann tekur við starfinu af Jóhannesi Karli Sigursteinssyni sem var leystur undan störfum eftir tap gegn Fjölni í 8 liða úrslitum VISA-bikarsins. Hugi hafði áður verið aðstoðarþjálfari liðsins en stígur nú upp. Við hittum hann og ræddum við hann um þjálfunina, sjónvarpsfrægðina, rauðu spjöldin og fleira.
Ósáttur við að Kalli hafi verið rekinn
,,Ég neitaði því í fyrstu að taka við starfinu. Aðallega vegna þess að ég er tiltölulega ósáttur við að Kalli [Jóhannes Karl Sigursteinsson] hafi verið rekinn, eða leystur undan störfum eins og þeir vildu orða það,” sagði Hugi í viðtali við Fótbolta.net.
,,Mér fannst hinsvegar frekar leiðinlegt að skilja stelpurnar eftir þjálfaralausar svo ég ákvað að klára sumarið aðallega fyrir þær. Í stað þess að það yrði fenginn inn einhver annar og það kæmi öðruvísi mórall. Þannig væri hægt að leysa það sem hægt er að leysa móralslega séð því greinilega vantaði okkur eitthvað uppá því við eigum að vera ofar í deildinni en þetta, og fara lengra í bikarnum en í 8 liða úrslit. Það er vonandi að þær snúi bökum saman, þetta er aðallega hjá þeim því þjálfaralega er þetta búið að vera mjög fagmannlega unnið. Kalli er mjög mikið menntaður þjálfari og er mjög fær og á að vera þjálfari í efstu deild.”
,,Ég vil bara kenna stelpunum um að það gekk ekki betur, þú rekur ekki 20 leikmenn en þú rekur kannski einn þjálfara.”
Hugi og Jóhannes Karl höfðu unnið saman með liðið undanfarin ár og átt gott samstarf. Huga fannst honum vera að svíkja Jóhannes með því að taka að sér starfið. ,,Mér finnst það pínulítið. En ég talaði við hann strax eftir að þetta gerðist eftir leikinn við Fjölni og útskýrði mín sjónarmið og hann var alveg sammála mér. Ég hef mikinn áhuga á að starfa með Kalla í framtíðinni og hvað verður í haust hef ég ekki hugmynd um. “
Hugi hefur enn ekki fengið neinn aðstoðarmann sér við hlið við þjálfun liðsins en hefði helst af öllu viljað að Jóhannes Karl yrði ráðinn honum til aðstoðar. ,,Ég hef ekki óskað eftir því en það væri mjög sérstakt ef við myndum skipta á störfum og væri örugglega í fyrsta sinn,” sagði hann. ,,Ég væri mjög opinn fyrir því en líklega ekki hann og líklega ekki stjórnin.”
Kem til með að hringja í Kalla fyrir leiki
Þrátt fyrir að Jóhannes Karl hafi verið látinn víkja má búast við að hans handbragð verði enn á liðinu enda Hugi búinn að starfa honum við hlið undanfarin ár en auk þess ætlar Hugi að leita í smiðju hans þegar kemur að því að taka ákvarðanir í sumar og má búast við litlum breytingum.
,,Ég ætla að halda mig við sama leikkerfi, ég er með sama leikmannahóp. Ég geri engar breytingar og kem örugglega til með að hringja í Kalla fyrir leiki og spyrja honum hvað honum finnst, hvernig ég ætla að stilla upp. Við Kalli höfum rætt saman um það og dyrnar standa alltaf opnar hjá honum fyrir mig. Hann þekkir þetta lið manna best og er búinn að vera ári lengur en ég hérna. Hann er búinn að sjá margt og ganga í gegnum mjög mikið með þetta lið. Ef ég á einhversstaðar að leita mér hjálpar, þá er það hjá honum. Ég kem til með að hlusta mikið á hann því hann er fyrirmyndin mín í þessu, ég hef aldrei unnið með svona fagmanni áður.”
,,Ég finn fyrir minni pressu núna afþví stjórnin var greinilega eitthvað óánægð með Kalla og þegar þeir ráða aðstoðarþjálfara til að klára tímabilið, þá finn ég fyrir mjög lítilli pressu því annars hefðu menn leitað lengra. Ég hef litlar sem engar áhyggjur. Ég hefði átt að fjúka með Kalla því þó ég beri ekki alveg eins mikla ábyrgð á þessu, þá ber ég einhverja ábyrgð því ég er búinn að vera hérna það lengi.”
Nú þegar sjö umferðum af 18 er lokið í Landsbankadeild kvenna er Stjarnan í 6. sæti með 9 stig en þó ekki langt frá Keflavík sem er í þriðja sætinu með 12 stig. Þarna munar aðeins þremur stigum og þangað stefnir Hugi með liðið.
,,Markmiðin eru þau sömu og fyrir mótið. Það eru þrjú efstu sætin, ég skal viðurkenna að efstu tvö sætin gætu orðið erfiðari en við ætluðum okkur en þriðja sætið er sæti sem við förum í, ég hef fulla trú á því. Við þurfum að vinna einn og hálfan leik sem við ættum ekki endilega að vinna og ég hef fulla trú á að við gerum það, við lendum í þriðja sæti.”
Mikil gróska í kvennaboltanum
Þrátt fyrir að þetta sé í fyrsta sinn sem Hugi þjálfar lið í Landsbankadeildinni er hann alls ekki reynslulaus í þjálfuninni. Hann tók við þjálfun aðeins tvítugur og var þá þegar farinn að þjálfa meistaraflokkslið Tindastóls á Sauðárkróki þar sem hann bjó.
,,Ég var beðinn um að þjálfa þriðja flokk kvenna hjá Tindastól og gerði þær að Íslandsmeisturum í sjö manna bolta þegar ég var tvítugur. Það sumarið var ég líka beðinn um að taka við meistaraflokknum og þeir flokkar voru því saman. Við tókum þátt í Íslandsmótinu og ég var þar í tvö ár og við komumst í umspila bæði árin, töpuðum fyrir Þrótti annað árið og Fjölni hitt, bæði mjög tæpt, með 14 ára stelpur og aðrar eldri í liðinu.”
,,Svo tók ég mér ársfrí frá þjálfun þar sem ég var í þugnu námi en fór svo til míns ástkæra heimafélags, FH, og var þar með 5. flokk kvenna ásamt Bryndísi Sighvatsdóttur. Þar er ekki kallað beint eftir árangri heldur er þetta meira skóli. Við vorum með 40-50 stelpur þegar mest var.”
,,Svo var ég fenginn hingað þegar það vantaði aðstoðarþjálfara hjá meistaraflokki og 2. flokks þjálfara. Þrjár stelpur úr Tindastól sem ég þjálfaði fyrir norðan eru í Stjörnunni og það var krísa með 2. flokks þjálfara. Þær spurðu hvort ég væri opinn fyrir því af þeim og úr varð, ég var ráðinn aðstoðarþjálfari og 2. flokks þjálfari. Síðan eru komnir tveir Íslandsmeistaratitlar í 2. flokknum en í ár erum við ekki með 2. flokk.”
Þó reynslan færi mönnum margt í þjálfun hefur Hugi ekki mikla menntun og hefur aðeins lokið KSÍ-B stigi. ,,Ég verð að bæta við það og ég vinn í því í rólegheitunum og treysti því að Siggi Raggi taki vel á móti mér,” sagði Hugi.
,Ég hef mjög mikinn áhuga á þessu. Ég byrjaði að þjálfa í kvennaboltanum því að fyrir fimm til sex árum síðan sá ég að það var miklu meiri gróska í kvennaboltanum heldur en karlaboltanum. Það má sjá muninn styrkleikalega séð núna. Ég er svona tækifærissinni og vildi taka þátt í uppbyggingu á kvennabolta. Það getur vel verið að ég taki karlaboltann eftir nokkur ár en þangað til ætla ég allavega að vera í kvennaboltanum af því að ég hef gaman af gróskunni. Það er að fjölga út um allt land iðkendum í kvennaboltanum, þetta er að verða vinsælla sport.”
Námið vék fyrir áhugamálinu
Sem fyrr sagði tók hann sér ársfrí frá þjálfun til að einbeita sér að námi sínu í lögfræði en því námi lauk hann aldrei þar sem sjónvarpsfrægðin bankaði á dyrnar, nokkuð sem hann hafði alltaf haft áhuga á.
,,Ég þurfti að hætta í lögfræðinni á miðri annarri önn því ég var beðinn að taka þátt í sjónvarpsþætti og geymdi því aðeins námið, ég vissi að lagadeildin færi ekki neitt, en svona tækifæri að vinna í sjónvarpi gæti ekki komið aftur. Námið vék því fyrir áhugamálinu. Ég hafði mikinn áhuga á að vinna í sjónvarpi svo ég greip það strax. Það áttu bara að vera þrír mánuðir fyrst en nú eru komin fjögur ár.”
Útfrá starfi hans í sjónvarpi varð hann þekkt andlit í þjóðfélaginu og hann telur að það hafi haft einhver áhrif í fótboltanum líka. ,,Menn eru fljótari að dæma, ég má ekki opna munninn mikið án þess að menn dæmi mig. Það eru helstu áhrifin sem ég finn fyrir í boltanum. Ef ég hefði ekki verið að vinna í sjónvarpi þá hefði þetta ekki verið svona, fólk tekur meira eftir því ef ég er að æpa heldur en aðrir. Mér finnst að dómarar svari mér frekar, ‘Það er alltaf væl í honum Huga hjá Stjörnunni’ segja menn og svo er aldrei kvartað yfir væli í þjálfurunum hjá hinum liðunum.”
Ég var kolgeggjaður
,,Ég tók nýja stefnu hvað varðar að kvarta í dómurunum. Ég kvarta eiginlega ekkert lengur, ég er bara hættur því, það hefur ekkert upp á sig,” sagði Hugi sem oft hefur fengið að líta spjald fyrir að tjá sig á hliðarlínunni.
,,Ég var alveg kolgeggjaður þegar ég byrjaði fyrst. Ég öskraði í 90 mínútur og var alveg búinn með röddina. Þegar ég var að þjálfa hjá Tindastól þá lét ég eins og kolvitlaus maður. Ég öskraði í 90 mínútur og var aldrei sáttur við nokkuð. Það er breytt, ég er búinn að taka út sæmilegan þroska og er búinn að rósast með árunum.”
Hugi er fæddur og uppalinn í vesturbænum í Reykjavík til tólf ára aldurs en þá flutti faðir hans á Sauðárkrók þar sem honum hafði boðist starf og Hugi ákvað að fylgja honum eftir. Faðir hans er Halldór Halldórsson sem í fjölda ára lék í marki FH og þangað liggja taugar Huga.
,,Ég vil tengja mig helst við Hafnarfjörðinn því pabbi var í markinu hjá FH. Ég mætti á allar æfingar hjá meistaraflokki FH þó ég hafi búið í Reykjavík. Annaðhvort tók ég strætó eða pabbi sótti mig, bara til að komast á æfinguna,” sagði hann.
,,Ég var alltaf fyrir aftan markið að fylgjast með og Hörður Hilmarsson þáverandi þjálfari liðsins sagði að ég hafi verið með betri mætingu heldur allir aðrir leikmenn, þá var ég líklega tíu ára. Þetta var þegar FH var lang næst besta lið landsins og Skaginn vann titilinn fimm ár í röð. Þá var pabbi aðstoðarþjálfari FH. Ég hataði KR því ég bjó í Vesturbænum og yngri bróðir minn er KR-ingur. Ég þurfti alltaf að spila við KR-inga og Valsmenn á skólalóðinni. Ég studdi alltaf FH en aðrir voru KR-ingar og Valsmenn. Mér er sæmilega illa við þau lið, sérstaklega KR.”
Fleiri bein rauð spjöld en gul
Knattspyrnuferill Huga hófst þó í KR en það stóð mjög stutt yfir þar til faðir hans hafði sótt hann og farið með hann í Hafnarfjörð
,,Mamma sendi mig á æfingu hjá KR og það tók pabba eina æfingu að sækja mig og fara með mig í Hafnarfjörðinn. Þar var ég í fimmta flokki og hluta af fjórða. Ég byrjaði í markinu og var augljóslega of lítill í það verkefni en ég var með langar hendur. Pabbi keypti græjurnar á mig og setti mig í markið og ég varði allt sem á markið kom á fyrstu æfingunni, það fór ekki einn bolti inn . Ég fór beint í B-liðið eftir æfinguna, þeir vildu ekki setja mig í A-liðið þó ég hafi staðið mig svona vel á æfingunni og ég skildi það ekki þá..”
Hugi var þó ekki markvörður áfram því upp yngri flokkana hjá Tindastóli á Sauðárkróki lék hann sem framherji og var duglegur að skora mörk. Þegar komið var upp í meistaraflokk var hann svo kantmaður og lék á báðum köntum. Hann fór í Meistaraflokk og lék 6 leiki með Tindastóli í 1. deildinni árið 2001 og svo 14 leiki í 1. deild 2002. Árið 2003 lék hann 6 leiki í 2. deildinni og þrjá í bikar en ákvað skyndilega að hætta á miðju tímabili.
,,Ég hafði fengið nokkur rauð spjöld og hugsaði með mér að næst þegar ég yrði rekinn útaf í fótboltaleik þá hætti ég í fótbolta,” útskýrir hann. ,,Ég var rekinn útaf á móti KS í 1-3 tapleik á Sauðárkróki og hugsaði með mér að ég væri hættur. Í stað þess að skamma mig og aðra þá hætti ég bara. Ég var of skapvondur á þeim tíma. Spjöldin voru fyrir gróf brot, ég fékk fleiri bein rauð spjöld heldur en gul.”
,,Ég tek refsingunum mínum með jafnaðargeði því ég veit að ég á það skilið. Ég veit alveg hvar línan er og veit hvenær ég fer yfir hana, spurningin er bara hvort ég sleppi með hana eða ekki, það er bara dómarans að dæma.”
Hugi er af mikilli fótboltafjölskyldu og eins og áður sagði er hann sonur Halldórs Halldórssonar sem í mörg ár varði mark FH. Bróðir Halldórs og föðurbróðir Huga er Viðar Halldórsson fyrrum leikmaður FH og íslenska landsliðsins og synir hans hafa allir náð góðum árangri í fótboltanum. Arnar Þór leikur í Hollandi, Davíð Þór með FH og Bjarni Þór hjá Everton. Annar bróðir föður hans er Jón Rúnar Halldórsson formaður knattspyrnudeildar FH en sonur hans, Jón Ragnar Jónsson, leikur með Þrótti í 1. deildinni á láni frá FH.
,,Mér finnst það gaman og er stoltur af því,” sagði Hugi aðspurður út í fjölskylduna. ,,Við erum stór fótboltafjölskylda og það er gaman að vera hluti af henni. Ég hitti þau á vellinum en er ekki nógu duglegur í að kíkja í kaffi. “



