Erla Steina Arnardóttir er ein af leikreyndustu leikmönnum íslenska landsliðisni. hún hefur búið stærsta hluta ævi sinnar í Svíþjóð og spilað þar í sænsku úraldsdeildinni. Erla spilað eitt sumar með Breiaðblik hérn á landi en í sumar spilaði hún í Bandaríkjunum við góðan orðstír en er nú komin aftur á heimaslóðir í Svíþjóð og leikur með Kristianstads DFF. Það er því við hæfi að Erla Steina sýni á sér hina hliðina í dag.
Fult nafn: Erla Steina Arnardóttir
Gælunafn: Erlis, E, Early
Aldur: 24
Gift/sambúð? Ekki gift, en ekki á lausu
Börn: 0
Hvað eldaðir þú síðast? Kjúkkling með pasta
Hvað viltu fá á pizzuna þína? Ost, kjúkkling, ananas með bearnessósu
Hvernig síma áttu? Nokia 6111
Uppáhalds sjónvarpsefni? Greek, Kyle XY, Entourage og Heroes
Besta myndin? A league of their own
Hvernig tónlist hlustar þú á? Er alæta en hlusta samt mest á Soul Rnb
Uppáhalds útvarpsstöð: Hlusta ekki á útvarp
Uppáhalds drykkur: Passoa með safa
Uppáhalds vefsíða? Humm, www.fotbolti.net
Ertu hjátrúafull fyrir leiki? Nei
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Ég spila ekki þannig en ætli það sé ekki best að tækla hann.
Hvaða liði myndirðu aldrei spila með? Erfið spurning, en ætli það sé ekki lið í Þýskalandi
Hver var fyrirmynd þín á yngri árum? Mamma mín
Erfiðasti andstæðingur? Bandaríska landsliðið
Auðveldasti andstæðingur? Lið sem gefst upp áður en leikurinn byrjar
Besti samherji? Formiga, hún er í landsliði Brasilíu
Sætasti sigur? Mallbacken á móti Malmö við unnum 1-0
Versti ósigur? Slovenia – Ìsland 2-1
Uppáhalds lið í enska boltanum? Manchester United
Uppáhalds leikmaður? Henrik Larsson & Ronaldinho
Besti knattspyrnumaður íslands fyrr og síðar? Margrét Ólafsdóttir
Efnilegasti leikmaður Íslands? Margrét Lára Viðarsdóttir
Fallegasti kanttspyrnumaðurinn? ?
Grófasti leikmaður deildarinnar? Hanna Marklund
Besti íþróttafréttamaðurinn? Malin Swedberg
Versti íþróttafréttamaðurinn? Patric Ekwall
Mesti höstlerinn í liðinu? Haha ég veit það ekki.
Hefuru skorað sjálfsmark? Já úr horni. Boltinn kastaðist af stelpu og í mig og inn..
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki í leik: Þegar ég var lítil spilaði ég fyrir skólalið þar sem flestar stelpurnar höfðu aldrei spilað fótbolta sérstaklega markmaðurinn. Þegar hún fékk boltann þá hljóp hún með hann inn í markið og kýldi hann í burtu. Dómarinn dæmdi mark og við töpuðum leiknum.
Spilarðu Champions Manager?Já en það er mjög langt síðan
Hvenær spilaður þí þinn fyrsta meistaraflokksleik? Ég var 4 ára þegar ég spilaði fyrst með liði í Helsingborg.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta hver væri hún? Að leyfa að nota veggi í innanhússfótbolta.
Hvern myndirðu vilja sjá á tónleikum? Pink
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum? Þegar þjálfari vill að þú labbir í gegnum aðstæður sem geta komið upp í leik.
Hver er frægastur í símanum þínum? Ásta Árnadóttir ;-)
Uppáhalds staðurinn þinn í öllum heiminum? Hef ekki komið þangað ennþá en vonandi Thailand er að fara þangað í janúar
Hversu lengi ertu að koma þér framúr á morgnanna? Ekki lengi, er morgunmanneskja.
Uppáhalds íþróttamaður? Henrik Larsson & Carolina Klúft
Stundarðu aðrar íþróttir fyrir utan fótbolta? Nei
Uppáhalds platan þín? Í augnablikinu “Pink – Im not dead”
Hvenær borgaðir þú inn á fótboltaleik síðast? Fyrir tveim vikum
Í hvernig fótboltaskóm spilarðu? Adidas Predator
Í hverju varstu lélegust í skóla? Stærðfræði, hafði ekki þolinmæðina.
Hvað langar þig að gera þegar að knattspyrnuferlinum líkur? Eitthvað sem eg nýt jafn mikils og fótboltans.


