Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 04. maí 2003 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Freddy Adu
Við höfum tekið eftir miklum umræðum um knattspyrnumanninn Freddy Adu og greinilegt að fólk vill vita meira um þennan athyglisverða strák. Við höfum því ákveðið að fræða fólk um piltinn sem er aðeins 13 ára gamall.

Freddy Adu fæddist í Ghana en flutti til Bandaríkjanna 1997. Fyrir 16 mánuðum fór hann að æfa með u-17 ára landsliði Bandaríkjana en var ekki með bandarískan ríkisborgararétt og mátti því ekki spila með þeim. Í byrjun mars á þessu ári rann stóra stundin upp fyrir þetta 13 ára undrabarn og hann spilað sinn fyrsta leik með u-17 ára landsliðinu, þremur vikum eftir að hann fékk bandarískan ríkisborgararétt.

Liðið lék í undankeppni fyrir HM u-17 ára sem fram fer í Finnlandi í ágúst. Adu fór á kostum í þessum þremur leikjum og bandaríska liðið komst áfram með tveimur sigrum og einu jafntefli. Tilþrifin sem Adu sýndi á mótinu voru engu lík og skoraði hann tvö glæsileg mörk og lagði nokkur upp fyrir samherja sína.

Adu spilaði einnig með í æfingaleik hjá u-17 ára liðinu gegn San Jose Earthquakes sem spilar í bandarísku MLS-deildinni. Þar gerði hann Troy Dayak, sem er einn besti varnarmaður deildarinnar, lífið leitt. John Ellinger þjálfari Earthquaekes sagði eftir leikinn að Adu væri nú þegar nógu góður til að spila í MLS-deildinni og hann myndi örugglega verða skærasta stjarna Bandaríkjanna á HM 2006 þegar hann verður aðeins 17 ára gamall, eða jafngamall Pele þegar hann spilaði á sínu fyrsta heimsmeistaramóti.

Vaxtarlag Freddy Adu bendir til þess að hann sé tíu árum eldri en hann er í raun og veru og hefur hann bætt á sig mikið af vöðvum undanfarna mánuði. Það grunar marga að hann sé í raun og veru ekki 13 ára gamall og sé aðeins með falsað vegabréf. Það hefur þó ekki verið sannað. Inter Milan reyndi að fá hann í unglingalið sitt fyrir tveimur arum en án árangurs. Móðir hans taldi hann of ungan til að fara. “Ég fæ um tíu símtöl á dag frá liðum, jafnvel þegar ég er í vinnunni. Ég er spurð að því hvort ég sé mamma Freddys og ég spurð af hverju ég vilji ekki taka tilboði þeirra. Ég græt stundum við tilhugsunina.” segir móðir hans.

Það er aðeins einn maður sem móðir hans treystir í Bandaríkjunum en það er Arnold Tarzy sem tók við þjálfun Adu eftir að hann kom til Bandaríkjanna. Hann hefur aðstoðað mæðginin mikið og séð um öll mál tengdum Adu. Hann segir að strákurinn sé undrabarn í fleiri íþróttum og hafi sýnt færni sýna á ýmsum sviðum, m.a. í golfi, körfubolta og myndlist!

,,Ég elska að fá boltann og mæta varnarmanni, einn á móti einum. Mér finnst skemmtilegast að reyna gabb-hreyfingar til að komast framhjá og heyra áhorfendur taka við sér!” segir Adu sem finnst hann vera tilbúinn til að fara til einhvers stórliðs í Evrópu. “Ef ég færi til einhvers liðs í Evrópu núna myndi ég spila með unglingaliði þeirra í u.þ.b. ár og fara svo að banka á dyrnar hjá aðalliðinu.” Reglur FIFA hindra þó Adu í þessum ráðagerðum þar sem leikmenn yngri en 18 ára mega ekki flytjast til Evrópu nema vegna fjölskylduástæðna.

Það eru margar spurningar sem kvikna í tengslum við þennan unga strák. Er hann í raun og veru aðeins 13 ára? Mun hann spila á HM 2006? Er fólk tilbúið fyrir Freddy? Hvert fer hann? o.s.fr.v.

Slapp
banner
banner