Jesper Tollefsen: Þarf ekki eldflauga sérfræðing til að skilja þetta
Danski þjálfarinn Jesper Tollefsen hjá Leikni í ítarlegu viðtali
,,Þetta er mjög auðvelt fyrir menn sem hafa dagatal og kunna að lesa og geta reiknað á auðveldan hátt. Það þarf ekki eldflauga sérfræðing til að skilja þetta. Ég myndi ánægður hjálpa þeim með þetta fyrir næsta sumar ef ég verð hérna áfram.´´
,,Ef við föllum út af þessu þá mun ég taka mér leigubíl niður í KSÍ strax og mótinu lýkur og ganga milli allra og taka í höndina á þeim og þakka þeim fyrir að hafa gert okkur þennan grikk.´´
,,Miðjumönnum hér á landi finnst að þeir eigi að hafa 1-2 metra fjarlægð frá manninum með boltann. Mér finnst að þá sértu að bregðast liðfélögunum því það er engin pressa sett á hann.
,,Best er að leikmenn komi inn og þegi, þetta er ekkert stórmál, en mér finnst þetta það eina rétta.´´
,,Þegar ég kom hingað þá skildi ég ekki að það voru allir í fríi útaf hátíð í Vestmannaeyjum. Ef menn vilja að bæta fótboltann í landinu þá skil ég þetta ekki.´´
,,Ég held að efstu fjögur liðin hér gætu verið í neðri hlutanum í dönsku úrvalsdeildinni eða ofarlega í 1. deildinni.´´
,,Sjálfum finnst Helga að hann hafi verið vitlaust notaður hjá AGF því hann er framherji sem þarf að vera með öðrum framherja en þjálfarinn hjá liðinu vildi spila 4-3-3 og þegar Helgi er eini framherjinn nær maður ekki því besta úr honum.´´
,,Leiknir borgar mér ekki fyrir að leita mér að öðru betra starfi svo ég get ekki hugsað um þetta fyrr en eftir tímabilið og því bendi ég bara á umboðsmann minn.´´
Danski þjálfarinn Jesper Tollefsen ákvað í ágúst að söðla um og hætta sem aðstoðarþjálfari hjá AFG í Danmörku og taka við liði Leiknis í 1. deildinni sem var í bullandi fallabaráttu og leiðin virtist liggja niður á við. Hann hefur náð fínum árangri með liðið sem hefur þótt spila betur eftir að hann tók við og hefur ekki tapað nema einum af þeim fimm leikjum sem hann hefur stýrt og það var fyrsti leikurinn gegn Fjölni.
Við ræddum við Tollefsen um komuna til Íslands, mótafyrirkomulag og fleira en hann gagnrýnir KSÍ harðlega fyrir skipulagsleysi í mótamálum. Við byrjuðum á að spyrja hann afhverju hann ákvað að koma til Íslands.
,,Þetta var bara áskorun. Samningurinn minn sem aðstoðarþjálfari hjá AGF í Danmörku rann út og mér bauðst áfram starf sem aðstoðarþjálfari en mér fannst ég yrði að snúa mér að því að vera aðalþjálfari," sagði Tollefsen í löngu viðtali við Fótbolta.net en umboðsmaður hans er íslenskur, Guðlaugur Tómasson.
,,Ég fékk tilboð frá félögum í Danmörku og úr öðrum löndum líka. Ég ræddi þetta við Gulla Tómasson umboðsmann minn og mér bauðst að fara til Leiknis. Fyrir mig var fullkomið að fá þennan tveggja mánaða samning hérna."
Mér fannst þetta hentug lengd á samningi því ég gat ekki vitað fyrirfram hvort ég myndi passa inn hérna sem þjálfari eða bara persónulega. Það var líka góð áskorun fyrir mig að koma hingað til félags í erfiðri stöðu. Ég þekkti engan hérna og kann ekki tungumálið. Ég fékk tækifæri til að kynnast íslenskum bolta mun betur en ég hafði gert áður. "
,,Gulli sagði mér að Leiknir væri svona fjölskylduklúbbur. Þetta er ekki atvinnumannafélag og ég vissi það áður en ég kom hingað og ég leit á það sem mikla áskorun. Ég er vanur að vinna með atvinnumönnum í fótbolta og það var áskorun að koma hingað til að vinna með leikmönnum sem eru ekki atvinnumenn og fara í skóla og vinnu á daginn. Ég hef verið mjög ánægður með það sem ég hef séð til þessa. Leikmennirnir, stjórnin og allir virðast vilja fara í rétta átt. Ég veit að það eru til stærri félög á Íslandi sem eiga mikið meiri peninga en þetta félag snýst bara um fótbolta og mér líkar vel við það."
Tollefsen fékk einnig tilboð frá liðum í austurlöndum fjær en vildi ekki fara frekar út í hvaða lið það voru. En hvað var það við Íslands sem varð til þess að hann hafnaði hinum tilboðunum og ákvað að koam hingað. ,,Ég valdi Ísland því það heillaði mig. Stærð samfélagsins um 300 þúsund íbúar er svipað og í heimabæ mínum Árósum. Mér finnst mjög heillandi hvað þið eigið mikið af íþróttafólki og góða leikmenn erlendis. Þetta er íþrottaland, eða kannski fótboltaland og mér líkar það mjög vel."
,,Borgvardt vill spila undir minni stjórn"
Hjá AGF kynntist Tollefsen Allan Borgvardt sem er einn besti leikmaður Landsbankadeildarinnar frá upphafi sem var hér í þrjú ár með FH. Hann kom fyrst hingað til lands til að sjá danska framherjann sem tvívegis var valinn besti leikmaður mótsins hér á landi.
,,Ég kom fyrst til Íslands árið 2003. Ég hafði þjálfað Allan Borgvardt er hann var unglingur og svo eftir að hann varð leikmaður aðalliðs AGF. Hann er góður vinur minn í dag og ég kom hingað til lands árið 2003 til að heimsækja hann og ég fór á þjóðarleikvanginn og sá bikarúrslitaleik FH og Akranes."
Við spurðum Tollefsen hvort hann myndi ekki fá Borgvardt tli að spila á Íslandi undir sinni stjórn ef svo færi að hann héldi áfram að þjálfa lið hér á landi.
,,Ég veit það ekki, það gæti farið eftir fjölskyldu hans," svaraði hann. ,,Hann á litla tvíbura núna og ég veit að hann og kærasta hans eru mjög ánægð í Noregi. Þetta mun fara eftir hvað fjölskyldan ákveður þegar krakkarnir fara í skóla og svona en ég veit að Allan var mjög ánægður á Íslandi. Hann hefur sagt nokkrum sinnum að í lok ferilsins vilji hann spila fyrir lið sem ég þjálfa aftur en maður veit aldrei hvað gerist í fótbolta svo við verðum bara að sjá til."
Nú þegar Tollefsen hefur stýrt Leikni í fimm leikjum auk þess að sjá ótal leikja í íslenskri knattspyrnu spurðum við hvað það er sem hefur komið honum mest á óvart í íslenska boltanm.
,,Almennt séð hefur komið mér best á óvart hversu mikinn tíma leikmenn hafa á boltanum hér," svaraði hann. ,,Þetta er vandamál í Landsbankadeildinni líka. Það er ekki næg pressa á boltamanninum. Við reyndum að breyta þessu og þetta er eitt af því sem ég hef lagt hvað mesta áherslu á. Að nálgast boltamanninn og setja á hann pressu, bæði sem lið og einstaklingar. Ég held að margir íslensku leikmannnana telji að ef þeir setja ekki pressu þá fái þeir ekki pressu á sig frá andstæðingnum. Miðjumönnum hér á landi finnst að þeir eigi að hafa 1-2 metra fjarlægð frá manninum með boltann. Mér finnst að þá sértu að bregðast liðfélögunum því það er engin pressa sett á hann."
Tollefsen telur að leikmannahópur Leiknis eins og annarra liða í deildinni sé ekki nógu stór til að taka á því þegar leikmenn meiðast eða lenda í leikbönnum. Hann segir hinsvegar að ef hann þurfi að breyta um leikmenn henti honum betur að það gerist framar á vellinum.
,,Mér finnst ekki gott að þurfa að breyta liðinu milli leikja en ef ég verð að gera breytingar þá vil ég helst að það gerist framar á vellinum, framherjar eða kantmenn. Mér finnst mikilvægast að grunnur liðsins haldi sér. Markvörðurinn, öftustu fjórir varnarmennirnir og tveir miðjumenn. En við verðum að halda öllum á tánum og passa að til dæmis miðverðirnir læri að spila með hverjum öðrum."
Bannað að tala saman fyrstu mínúturnar
Eitt af því fyrsta sem Tollefsen tilkynnti leikmönnum sínum eftir að hann tók við Leikni var að þeim væri óheimilt að tala saman í búningsklefanum fyrstu mínúturnar eftir að dómari hefur flautað til leikhlés.
,,Ástæðan er að þegar leikmenn koma inn úr fyrri hálfleiknum er hitastig líkamans og púlsinn mjög hátt. Ef þú ert með mjög háan púls, þá ertu ekki í nógu góðu ástandi til að koma skilaboðum á framfæri. Þetta er alltaf svona, bæði í hálfleik og eftir leiki, þá eru tilfinningarnar alltaf miklar á annan hvorn veginn. Mér finnst bara eðlilegt að allir leikmenn eigi að koma inn, setjast niður og fá sér vatn og ná púlsinum niður. Best er að leikmenn komi inn og þegi, þetta er ekkert stórmál, en mér finnst þetta það eina rétta."
Eftir að keppni í 1. deildinni lýkur um aðra helgi fer Tollefsen í viku frí í heimalandi sínu en framtíðin er alveg óráðin því hann gerði aðeins tveggja mánaða samning við Leikni og hefur ekki hafið viðræður við félagið um framlengingu á honum.
,,Eins og er hugsa ég ekkert um framtíðina. Ég gæti haldið áfram hjá Leikni, farið í annað félag á Íslandi, snúið heim til Danmerkur eða farið eitthvað annars staðar í heiminum. Ef einhver hefur samband við mig í dag þá bendi ég þeim á að hringja í umboðsmanninn minn, Gulla Tómasson. Ég komst að samkomulagi við hann um að þegar ég er samningsbundinn þá leyfi ég mér ekki að hugsa um hvað gerist í kjölfarið. Það væri ekki sanngjarnt gagnvart núverandi félagi. Hjá Leikni er samkomulag um þennan tveggja mánaða samning og ég veit ekki hvort þeir muni bjóða mér nýjan. Við höfum náð ágætis úrslitum en ef við töpum síðustu leikjunum þá gæti allt eins farið svo að þeir sett lögbann á mig og sagt mér að koma aldrei aftur til Íslands. Ég verð bara að sjá til."
,,En ég sagði við Gulla að þegar við erum á tímabili vildi ég heldur vita ekki af áhuga. Leiknir borgar mér fyrir að vinna mitt starf í tvo mánuði og ef hugur minn væri annars staðar, hjá öðru félagi eða erlendis, þá myndi ég ekki vinna starf mitt nógu vel. Leiknir borgar mér ekki fyrir að leita mér að öðru betra starfi svo ég get ekki hugsað um þetta fyrr en eftir tímabilið og því bendi ég bara á umboðsmann minn."
Helga Sig fannst hann vitlaust notaður hjá AGF
Þrátt fyrir að hafa verið hér á landi í einn og hálfan mánuð hefur Tollefsen lítið getað kynnst landi og þjóð utan fótboltans enda hefur hann aðeins fengið einn frídag. Honum líkar þó það sem hann hefur kynnst.
,,Það hefur verið gott til þessa og ég hef ekki lent í neinum vandræðum. Hinsvegar hef ég ekki fengið nema einn frídag síðan ég kom hingað og þá fór ég með kærustu minni gullhringinn. Ég elska náttúruna hérna en hinsvegar snýst allt meira og minna um fótbolta hjá mér. Ég fer í íbúðina mina, á æfingu og leiki og það er lítið meira. "
Hann hefur einnig mætt mikið á leiki í Landsbankadeild karla og eftir að hafa komið hingað úr dönsku úrvalsdeildinni var ekki úr vegi að hann útskýrði fyrir okkur muninn á dönsku deildinni og þeirri íslensku.
,,Ég hef séð um 15 leiki í Landsbankadeildinni í sumar og mér finnst deildin nokkuð góð. FH, Valur, ÍA og Keflavík eru bestu liðin, deildin er tvískipt eins og 1. deildin," sagði hann. ,,Íslendingar og Danir spyrja mig mikið um muninn á íslensku deildinni og þeirri dönsku. Ég held að efstu fjögur liðin hér gætu verið í neðri hlutanum í dönsku úrvalsdeildinni eða ofarlega í 1. deildinni."
,,Bestu liðin í íslensku deildinni gætu hinsvegar alltaf strítt þeim dönsku og það má bara sjá á hversu nálægt Keflavík var því að slá út Mydjylland í UEFA Cup. Þegar liðin spila einn eða tvo leiki er hægt að peppa sig upp í að slá þessum liðum við, en þegar þú ert kominn út í að spila 33 leiki er staðan önnur. Í Danmörku eru leikmannahóparnir stærri enda þarftu þess þegar tímabilið er 33 leikir."
,,Það eru margir hæfileikarríkir leikmenn hér á landi. Ég verð byrja á að nefna Helga Sigurðsson sem var með mér hjá AGF, mér finnst hann góður leikmaður, hann hefur staðið sig vel í þeim leikjum sem ég hef séð. Ég var aðstoðarþjálfari hjá AGF þegar hann var þar. Það er erfitt að meta frammistöðu hans með Val miðað við þegar hann var hjá AGF því danska deildin er sterkari."
,,Sjálfum finnst Helga að hann hafi verið vitlaust notaður hjá AGF því hann er framherji sem þarf að vera með öðrum framherja en þjálfarinn hjá liðinu vildi spila 4-3-3 og þegar Helgi er eini framherjinn nær maður ekki því besta úr honum. Helgi er duglegur framherji og mjög ákveðinn í að skora mörk og það er það helsta sem góður framherji þarf að hafa."
,,Miðjumennirnir hjá Keflavík, Baldur Sigurðsson sem er farinn til Bryne og Jónas Guðni Sævarsson eru líka góðir leikmenn. Ég sá Baldur Sigurðsson fyrst þegar ég kom hingað til að sjá leik U21 árs landsliðsins gegn Ítalíu og mér finnst hann klassa miðjumaður. Jónas Guðni er líka frábær."
,,Ég sá svo fyrsta klukkutímann hjá U21 árs landsliðinu gegn Kýpur og þar voru margir góðir leikmenn. Það er erfitt að segja hver er besti leikmaðurinn á Íslandi í dag því það eru margir góðir leikmenn hérna. Mér finnst Matthías Vilhjálmsson hjá FH góður leikmaður sem er mjög hæfileikaríkur. Ég gæti svo haldið áfram að telja endalaust upp því það eru svo margir góðir leikmenn hérna og margir góðir ungir leikmenn."
Tilbúinn að hjálpa mótanefnd KSÍ
En hann hafði ekki bara kynnst jákvæðum hlutum hér á landi því hann er mjög undrandi á störfum mótanefndar KSÍ sem lætur Leikni spila þrjá leiki á einni viku nú undir lok móts, þar af tvo á Akureyri.
,,Mér finnst það skrítið að leikur sem við áttum að spila á fimmtudag í þar síðustu viku gegn Stjörnunni er fluttur á þriðjudag í þessari viku. Við vorum búnir að undirbúa okkur fyrir þennan leik en svo var ákveðið að breyta dagsetningu á sunnudegi. Ástæðan er væntanlega sú að Guðjón Baldvinsson leikmaður Stjörnunnar var í U21 árs landsliðinu."
,,Mér finnst þetta stór mistök hjá Knattspyrnusambandinu. Guðjón er fastamaður í U21 árs landsliðinu og KSÍ vissi í marga mánuði að það yrði U21 árs landsleikur en samt breyta þeir ekki dagsetningunni fyrr en á sunnudeginum. Auðvitað áttu þeir að færa alla umferðina þegar ljóst var að það yrði U21 árs leikur þennan dag því það var ljóst að einhver leikmaður úr deildinni yrði í landsliðinu."
,,Þetta er ekki bara vandamál á Íslandi því ég þekki þetta frá Danmörku líka. Menn virðast ekki átta sig á að þeir þurfa að bera saman dagsetningar á landsleikjum og deildarleikjum. Þetta er mjög auðvelt fyrir menn sem hafa dagatal og kunna að lesa og geta reiknað á auðveldan hátt. Það þarf ekki eldflauga sérfræðing til að skilja þetta. Ég myndi ánægður hjálpa þeim með þetta fyrir næsta sumar ef ég verð hérna áfram."
,,Við lendum í miklu álagi útaf þessu því við spiluðum á laugardaginn á Akureyri gegn Þór og spilum svo á þriðjudegi gegn Stjörnunni. Svo þurfum við að fara aftur norður á Akureyri og spila við KA á laugardag. KA sem berst við okkur um sæti í deildinni hagnast á þessu því þeir fá alla vikuna í hvíld fyrir leikinn."
,,Ef við föllum út af þessu þá mun ég taka mér leigubíl niður í KSÍ strax og mótinu lýkur og ganga milli allra og taka í höndina á þeim og þakka þeim fyrir að hafa gert okkur þennan grikk."
Skilur ekki Verslunarmannahelgina
Tollefsen kom hingað til lands sunnudaginn 5. ágúst síðastliðinn en þá var höfuðborgin nánast tóm enda verslunarmannahelgi og leikmenn liðsins sem aðrir að skemmta sér úti á landi. Hann er mjög undrandi á að fótboltaheimurinn skuli taka sér hlé um þessa helgi.
,,Þegar ég kom hingað þá skildi ég ekki að það voru allir í fríi útaf hátíð í Vestmannaeyjum. Ef menn vilja að bæta fótboltann í landinu þá skil ég þetta ekki. Tímabilið hérna er svo stutt og ástæða þess eru veðuraðstæður. Og afhverju spila menn þá ekki helgina þar sem þú ert á besta tíma veðurlega séð. "
,,Ég er ekki að reyna að breyta menningu landsins en mér finnst undarlegt að öllu sé breytt. Þegar þú ert með svona stutt tímabil á árinu sem veðrið er gott skil ég ekki afhverju heilli helgi er fórnað svona."

