fim 20. september 2007 01:11
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Opinber vefsíða Chelsea 
Jose Mourinho hættur hjá Chelsea (Staðfest)
Chelsea staðfesti nú rétt í þessu á vefsíðu sinni að félagið hafi sagt skilið við Jose Mourinho knattspyrnustjóra liðsins.

Yfirlýsingin er stutt og segir að ákvörðun um þetta sé sameiginleg og samkvæmt yfirlýsingunni mun þetta hafa gerst á fimmtudag.

Samkvæmt því virðist sem svo að viðskilnaður virðist hafa verið ákveðinn eftir miðnætti að breskum tíma, en Bretar eru einni klukkustund á undan íslenska tímanum.

Yfirlýsing Chelsea:
Knattspyrnufélagið Chelsea og Jose Mourinho hafa komist að samkomlagi sín á milli um viðskilnað í dag (fimmtudag) og er um sameiginlega ákvörðun að ræða.

Sjá einnig:
Jose Mourinho hættur hjá Chelsea
Slapp
banner