Örlygur Þór ráðinn þjálfari Dalvíkur/Reynis
Dalvík/Reynir úr þriðju deildinni hefur ráðið Örlyg Þór Helgason sem þjálfara en hann hefur gert munnlegt samkomulag við félagið.
Örlygur sem er 29 ára gamall þjálfaði annan flokk KA í sumar með fínum árangri en liðið komst í úrslitaleik VISA-bikarsins og fór upp í A-deild.
Hann spilaði á sínum tíma með Leiftri, KA, Þór og fleiri félögum en hann hefur þurft að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla.
Örlygur tekur við þjálfun Dalvík/Reynis af Saso Durasovic sem var spilandi þjálfari liðsins í sumar.
Stefán Garðar Níelsson verður aðstoðarmaður Örlygs en hann var einnig aðstoðarþjálfari Dalvíkur/Reynis í sumar en liðið endaði þá í fjórða sæti D-riðils með 19 stig.

