Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 30. október 2007 21:53
Magnús Már Einarsson
Deildabikarinn: Mark Cole á elleftu stundu tryggði West Ham sigur
Coventry 1 - 2 West Ham
1-0 Jay Tabb (68)
1-1 Marcus Hall (Sjálfsmark) (71)
1-2 Carlton Cole (93)

Carlton Cole var hetja West Ham þegar að liðið sigraði Coventry 2-1 á útivelli í 16-liða úrslitum enska deildabikarsins. Cole skoraði sigurmarkið á þriðju mínútu í viðbótartíma.

Coventry komst verðskuldað yfir í leiknum í kvöld þegar að Jay Tabb skoraði eftir sendingu Isaac Osbourne.

Þremur mínútum síðar átti Luis Boa Morte skot sem að fór af Marcus Hall og í netið og í viðbótartíma tryggði Carlton Cole liði West Ham sigur.
Slapp
banner
banner