Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   mið 19. mars 2008 08:00
Magnús Már Einarsson
3.deild: Hvað er að frétta af Knattspyrnufélagi Garðabæjar?
Lárus Guðmundsson, þjálfari KFG.
Lárus Guðmundsson, þjálfari KFG.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Björn Másson, einn leikmanna liðsins.
Björn Másson, einn leikmanna liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Frank Posch leikur einnig með KFG.
Frank Posch leikur einnig með KFG.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.

Að þessu sinni förum við í þriðju deildian og tökum við púlsinn á Knattspyrnufélagi Garðabæjar eða KFG.

Um er að ræða nýtt lið í 3.deildinni en Lárus Guðmundsson fyrrum atvinnumaður í fótbolta og þjálfari Stjörnunnar á síðustu leiktíð þjálfar þetta lið. Hann tók að sér að svara nokkrum spurningum og afraksturinn má sjá hér að neðan.

Eldra úr liðnum: Hvað er að frétta?


Hvernig er stemningin hjá Knattspyrnufélagi Garðabæjar?
Hún er auðvitað frábær, liðið er í svaka formi og þarf því lítið að æfa. Svo er auðvitað vor í lofti og grænt gervigras handan við hornið.

Hverjir skipa liðið?
Eingöngu þeir sem hafa afburðagetu til að spila fótbolta, hinir sjá um vatnið.

Hver varð hugdettan að því að stofna þetta lið?
Þetta er hugmynd sem ég hef gengið með í langan tíma, enda þjálfað unga pilta í Garðabæ undanfarin 3 ár og veit því að þörfin fyrir félagsleg verkefni er brýn, enda þekkt vandamál í flestum félögum að ekki er hægt að hafa alla sem langar að æfa og spila fótbolta, inn í prógramminu hjá félögunum sem eru með markvissa afreksstefnu. Því er jafnan stór hópur sem verður út undan, og vantar verkefni þar sem markmiðin eru önnur en að slá í gegn.

Hvernig kom það til að þú tókst að þér þjálfun þess?
Formaður félagsins lagði hart að mér að taka þetta verkefni, enda hugsum við á líkum nótum.

Hvar leikur liðið heimaleiki sína?
Liðið æfir og leikur í sínum heimabæ, Garðabæ og á Stjörnuvelli.

Er liðið í einhverskonar samstarfi við Stjörnuna?
Liðið er samstarfsverkefni okkar sem ýttum þessu verkefni af stað og Stjörnunnar. Að auki hefur Íþrótta og Tómstundaráð Garðabæjar stutt þetta framtak. 5 manna stjórn félagsins er jafnframt skipuð 2 fulltrúm frá Stjörnunni, einum frá knattspyrnudeild og öðrum frá aðalstjórn.

Hvernig hefur undirbúningstímabili ykkar verið háttað?
Hann hefur eingöngu verið hugmyndafræðilegur fram að þessu, enda flestum leikmönnum meinilla við snjó. Hins vegar hefur sést til sólar að undanförnu og því ljóst að leikmenn KFG fara að skríða úr hýði sínu hvað og hvernær.

Hvernig list ykkur á riðilinn ykkar í þriðju deildinni í sumar?
Hann er auðvitað allt of léttur fyrir okkur, en við vanmetum ekki andstæðinga okkar og mætum því án yfirlætis til leiks.

Hvert er markmiðið fyirr sumarið?
Að leikir KFG verði baðair í sól og logni, engin sigur verði naumari en 5 - 0 og að efri deildar liðin sláist um að kaupa leikmenn KFG að loknu leiktímabilinu.

Eitthvað að lokum?
Já, við KFG menn hvetjum alla unnendur góðrar knattspyrnu til að fjölmenna í Garðabæ í sumar, til að sjá frábæra knattspyrnu, svokallaðan samba fótbolta.
Athugasemdir
banner
banner