Barry Smith spilar með Val í sumar (Staðfest)
Skoski varnarmaðurinn Barry Smith mun spila með Val í Landsbankadeildinni næstkomandi sumar en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Hann hefur gert samkomulag við Valsmenn um að skrifa undir áframhaldandi samning við þá.
Smith sem hefur leikið með Greenock Morton í skosku 1. deildinni í vetur en glímir nú við smávægileg meiðsli. Hann sagði við Fótbolta.net í dag að hann verði orðinn klár í slaginn með Val áður en Landsbankadeildin hefst og mun hefja leik með þeim frá fyrstu umferð.
Hann gerir samning út þetta tímabil en hefur áhuga á að vera enn lengur hjá félaginu og mun fara í viðræður við Val að loknu tímabilinu um að framlengja samningnum enn frekar.
Barry Smith hefur leikið með Val undanfarin tvö ár eða síðan hann kom til félagsins frá Dundee í Skotlandi vorið 2006 eftir 11 ára veru hjá skoska félaginu. Áður en hann hætti hjá Dundee hafði hann stýrt liðinu tímabundið út tímabilið eftir að þjálfarinn var rekinn. Hann hefur átt fast sæti í byrjunarliðinu hjá Val þar sem hann lék í miðri vörninni.
Hann átti í viðræðum við FH í febrúar um að ganga til liðs við þá en bikarmeistararnir slitu samningaviðræðum og ákváðu að semja við Halldór Kristinn Halldórsson leikmann Leiknis í hans stað.




