Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 03. maí 2008 18:35
Magnús Már Einarsson
Lengjubikar karla C deild: Ægir og Ýmir í úrslit
Ólafur Júlíusson skoraði fyrir Ými og tryggði liðinu framlengingu.
Ólafur Júlíusson skoraði fyrir Ými og tryggði liðinu framlengingu.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Ægir og Ýmir munu mætast í úrslitaleik C deildar karla í Lengjubikarnum en þetta varð ljóst eftir undanúrslitin í dag.

Ægir lagði KV 1-0 á grasvellinum í Þorlákshöfn og komst þannig í úrslitin.

Ýmir lagði Álftanes síðan 4-3 í framlengdum leik nú síðdegis. Ólafur V. Júlíusson tryggði Ými framlengingu með marki undir lokin og Samúel Arnar Kjartansson skoraði síðan sigurmarkið í framlengingunni.


Ægir 1 - 0 KV

Ýmir 4 - 3 Álftanes (Eftir framlengingu)
1-0 Ómar Ingi Guðmundsson
1-1 Andri Janusson
1-2 Guðbjörn Alexander Sæmundsson
2-2 Kristján Þór Einarsson
2-3 Andri Janusson
3-3 Ólafur V. Júlíusson
4-3 Samúel Arnar Kjartansson
Athugasemdir
banner