Heimild: BBC
Didier Drogba og John Terry verða búnir að jafna sig af meiðslum fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar 21.maí næstkomandi. Þessir lykilmenn hjá Chelsea meiddust gegn Bolton í fyrradag en Drogba segir að þeir verði klárir fyrir leikinn gegn Manchester United í næstu viku.
Drogba segir að það sé "ekkert alvarlegt" við meiðslin en hann meiddist sjálfur á hné á laugardaginn.
,,Ég setti strax kælingu á þetta. Ég verð á æfingu í þessari viku," sagði Drogba við franska dagblaðið L'Equipe.
Terry meiddist snemma leiks á hendi. ,,Ég hef talað við hann. Hann mun spila í Moskvu. Enginn vill missa af þessum stórleik," sagði Drogba.
Manchester United tryggði sér sigur í ensku deildinni um helgina og getur því náð tvennunni með því að vinna einnig Meistaradeildina.
,,Við vitum að við getum unnið United, við sönnuðum það í deildinni á dögunum. Þeir verðskulda hins vegar titilinn og þeir uppskáru fyrir stöðugleikann sinn. Við gerðum of mörg mistök," sagði Drogba.



