Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   fös 23. maí 2008 07:00
Magnús Már Einarsson
2.deild: Hvað er að frétta úr Sandgerði?
Ólafur Ívar Jónsson.
Ólafur Ívar Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Jón Örvar Arason
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Vilbogi M. Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild en á næstunni verður liðurinn á dagskrá tvisvar í viku.

Nágrannaliðin Reynir Sandgerði og Víðir Garði eigast við í annarri deild karla í kvöld en tíu ár eru liðin síðan að þessi lið mættust síðast í formlegum kappleik.

Því er tilvalið að kíkja á stemninguna í Sandgerði. Ólafur Ívar Jónsson leikmaður Reynis svaraði nokkrum spurningum en hann hefur einnig leikið með Víði á ferli sínum.


Hvernig er stemmningin í Sandgerði þessa dagana?
Stemmningin er mjög góð hér í Sandgerði mikill uppgangur er hjá Reynisliðinu, miklar breytingar eru á íþróttasvæði okkar, byggja á knattspyrnuhús og einnig stúku við grasvöllinn svo að öll aðstaða verður mjög góð hér í Sandgerði á næstunni.

Er mikill rígur á milli Reynis og Víðis?
Já það er nokkuð mikill rígur á milli en samt ekkert hætulega mikill liðin geta alveg unnið saman eins og sést í þvi að yngriflokkar eru mikið sameinaðir og einnig kvennaboltinn. En þegar kemur að m.fl. karla kemur upp smá rígur.

Má búast við mikilli stemningu á leiknum annað kvöld?
Það er ekki hægt að búast við öðru þegar okkar frábæra stuðningsmannalið Hvíti herinn fer fyrir stuðinu. Ég mun búast við mikið af fólki á leikinn þar sem að þetta eru nágrannalið og ekki oft sem að þessi lið spila á móti hvort öðru í íslandsmóti.

Er leikmannahópurinn mikið breyttur frá því í fyrra?
Hann er nokkuð mikið breyttur. Margir góðir leikmenn farnir en Bryngeir þjálfari hefur verið duglegur að fá til sín góða menn sem eiga að geta skilað góðu gengi í sumar

Er mikill fótboltaáhugi í Sandgerði?
Það er mjög fínn áhugi hérna í Sandgerði, mikið að góðu fólki hefur fengist til að starfa í kringum liðið og er öll umgjörð í kringum liðið til mikilla fyirmyndar. fullt af krökkum eru að æfa í yngriflokkum liðsins og vonandi halda þau áfram og skila sér í meistaraflokkinn og halda áfram þessari góðu uppbyggingu sem er hér hjá Reynisliðinu.

Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Ég held að liðsheildin sé okkar helsti styrkur. Við erum með vel spilandi lið og inn á milli eru strákar sem geta sprengt upp hvaða leik sem er og unnið fyrir okkur.

Hvert er markmið liðsins í sumar?
Markmið okkar er að fara aftur upp í 1.deild þar á þetta lið eftir að geta spjarað sig.

Hvernig finnst þér 2.deildin, nú þegar tólf lið leika þar?
Lítið búið af mótinu en það verður skemmtilegra að spila með fleiri lið í deildinni hún verður vonandi spennandi og held ég að liðin sem eru með bestu hópana ættu að standa upp úr með þessu fyrirkomulagi.

Er einhver leikmaður úr ykkar liði sem þú telur að eigi eftir að springa út í sumar?
Ég held að Hjörtur Fjel öðru nafni turninn eigi eftir að eiga magnað sumar.

Hvaða lið telur þú að sé sigurstranglegast í 2. deildinni í sumar?
Reynir Sandgerði.

Eitthvað að lokum?
Þakka fyrir skemmtilega síðu og vona að þetta verði viðburðaríkt og skemmtilegt fótboltasumar í ár. Takk fyrir.


Eldra úr liðnum hvað er að frétta?

1.deild:
KS/Leiftur(3.apríl)
Njarðvík (13.mars)

2.deild:
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
Tindastóll (15.apríl)
Völsungur (6.mars)

3.deild:
Árborg (17.apríl)
Berserkir (8.apríl)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Skallagrímur (20.maí)
Þróttur Vogum (6.maí)
Athugasemdir
banner