Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   þri 10. júní 2008 18:07
Gunnar Gunnarsson
Heimild: AFP 
Ronaldo kosinn fallegasti leikmaðurinn á EM
Sá snoppufríðasti
Sá snoppufríðasti
Mynd: Getty Images
Christiano Ronaldo stórstjarna portúgalska landsliðsins er talinn myndarlegasti leikmaður Evrópumótsins í knattspyrnu sem stendur nú yfir í Sviss og Austurríki samkvæmt könnum en konur hvaðanæva úr Evrópu sáu um að kjósa.

Hinn magnaði leikmaður Manchester United var kostinn fallegasti leikmaður mótsins í könnun sem rafmagnstækja framleiðandinn LG stóð fyrir og greiddu um 12,000 evrópskar konur atkvæði í þessari könnun.

Frakkinn Thierry Henry varð í öðru sæti á undan fyrirliða Ítala, Fabio Cannavaro og hinum sænska Freddie Ljungberg en þeir urðu jafnir í þriðja sæti.

Hæfileikar og fallegt latneskt útlit urðu til þess að Ronaldo vann titilinn samkvæmt könnuninni. Helstu aðdáendur Ronaldo voru aðallega, ítalskar, þýskar og sænskar konur.

Athugasemdir
banner
banner
banner