Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Að þessu sinni er ferðinni heitið á Fáskrúðsfjörð þar sem við kíkjum á stemninguna hjá Leikni en Viðar Jónsson fyrirliði Leiknis svaraði nokkrum spurningum.
Hvernig er stemmningin hjá Leikni Fáksrúðsfirði þessa dagana?
Stemningin er svona þokkaleg og á bara eftir að batna.
Er mikill fótboltaáhugi á Fáskrúðsfirði?
Já það hefur alltaf verið mikill áhugi en alltaf vantað aðeins upp á til að komast upp úr þessari blessaðri 3. deild
Er leikmannahópurinn mikið breyttur frá því í fyrra?
Já misstum þó nokkra leikmenn bæði erlenda og innlenda en höfum ekki bætt við okkur miklu í staðinn. Hópurinn er mjög lítill og setjum við traust okkar á ungu strákana en nóg er ungum efnilegum drengjum hér á stað.
Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar?
Engan veginn. Ætluðum okkur klárlega að vera með fleiri stig en ekkert.
Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Það er ákveðinn karakter í liðinu sem skítur upp kollinum við og við.
Hvert er markmið liðsins í sumar?
Markmið liðsins var klárlega að vinna alla þá leiki sem við færum í og gæla við að komast í úrslitakeppnina. Það er enn gilt og gott þó ekki hafi gengið eins og við helst hefðum viljað.
Ykkur er spáð fjórða sæti í D-riðli. Er sú spá raunhæf?
Líklega er hún það en auðvitað ætlum við okkur að vera ofar og helst í efstum tveimur sætunum.
Er einhver leikmaður úr ykkar liði sem þú telur að eigi eftir að springa út í sumar?
Það er erfitt að segja en ég held að ungu strákarnir eigi eftir að koma sterkir inn.
Hvaða lið telur þú að sé sigurstranglegast í 3. deildinni í sumar?
Ég er ekki alveg að gera mér grein fyrir því en því er ekki að leyna að miðað við mannskap þá ættu Dalvík/Reynir að vera kandídatar.
Eitthvað að lokum?
Langar endilega að koma því að að Svanur, Baldur, Hilmar og Björgvin eru allir gullfallegir en samt lausir og liðugir.
Eldra úr liðnum hvað er að frétta?
1.deild:
KS/Leiftur(3.apríl)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)
2.deild:
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)
3.deild:
Árborg (17.apríl)
Berserkir (8.apríl)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)



