sun 22.jún 2008 08:45 Þórður Már Sigfússon,
Barcelona lengir sumarfrí Eiðs Smára
Eiður Smári Guðjohnsen
Mynd: NordicPhotos
Forráðamenn Barcelona hafa í hyggju að lengja sumarfrí þeirra leikmanna sem eru ekki í framtíðaráætlunum knattspyrnustjóra liðsins, Pep Guardiola.

Þetta mun verða gert til þess að koma í veg fyrir að þeir verði fyrir óþarfa meiðslum á æfingum og verði fyrir vikið óseljanlegir í sumar. Spænska íþróttablaðið El Mundo Deportivo greindi frá þessu í gær.

Að sögn blaðsins munu flestir leikmenn liðsins hefja æfingar þann 14. júlí en þeir sem eru á sölulista og hafa ekki yfirgefið félagið fyrir þann tíma er frjálst að sleikja sólina eilítið lengur.

Svo virðist sem Eiður Smári Guðjohnsen sé í þessum hópi því hann er sérstaklega nafngreindur í tengslum við þessa ákvörðun félagsins ásamt þeim Ronaldinho, Samuel Eto’o og Deco.

Vilja Eið Smára burt fyrir 30. júní

El Mundo Deportivo greinir ennfremur frá því í dag að það sé von forráðamanna Barcelona að fjórmenningarnir fyrrnefndu verði allir horfnir á braut fyrir 30. júní.

Ástæðan er sú að þann 6. júlí næstkomandi munu meðlimir félagsins kjósa hvort lýsa beri vantrausti á Joan Laporta, forseta félagsins, og stjórn þess, og er honum því mikið í mun að fá nýja leikmenn til félagsins fyrir þann tíma til þess að treysta stöðu sína.

Þar sem töluverðar fjárhæðir eru bundnar í þessum fjórum leikmönnum vonast Laporta til þess að selja þá sem fyrst til þess að fjármagna væntanleg kaup á nýjum leikmönnum.

Nýjustu fréttirnar