Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Ýmir og Augnablik mætast í kvöld í 3.deild karla og því er tilvalið að kíkja á stemninguna hjá þessum Kópavogsliðum. Ýmisliðið er að mestu skipað HK-ingum en lið Augnabliks er að mestu skipað Blikum.
Ómar Ingi Guðmundsson fyrirliði Ýmis svaraði spurningum fyrir hönd þeirra.
Hvernig er stemmningin hjá Ými þessa dagana?
Heyrðu hún er bara mjög góð, við höfum verið að spila nokkuð vel og eru menn alltaf sáttir þegar vel gengur. Það skemmir ekki fyrir að við rústuðum 2.flokki á æfingu í síðustu viku og það létti brúnina mönnum.
Er mikil spenna fyrir leiknum í kvöld?
Já það er nokkuð mikil spenna, í okkar liði eru næstum bara uppaldir HK-ingar og því er mikil spenna fyrir því að spila við blikastrákana. Sammi er meira að segja svo spenntur að hann frestaði utanlandsferð sinni fyrir þennan leik. Zeljko er einnig mjög spenntur og breytti þjálfunar aðferðum sínum fyrir leikinn og í síðustu viku prófuðum við í fyrsta skipti í langan tíma að gera annað en reit og spil.
Má búast við mikilli baráttu í leiknum í kvöld svipað og þegar að Breiðablik og HK mætast?
Já það má fastlega gera ráð fyrir því. Í Ýmisliðinu eru eiginlega allt uppaldir HK-ingar og hatrið er mikið og veit ég um nokkra sem að verða alveg dýrvitlausir þegar þeir sjá grænu búningana og UBK merkið. Við höfum spilað við marga þessara Augnabliks stráka í yngri flokkunum og það hefur alltaf verið mikil barátta. Ég veit samt ekki hvort að þeir séu jafn æstir fyrir leikinn því í þeirra liði eru margir strákar sem hafa spila undir merkjum HK og er ég nokkuð viss um að hálft byrjunarlið þeirra hefur klæðst HK treyju sem er ólíkt okkar liði.
Er leikmannahópurinn mikið breyttur frá því í fyrra?
Já. Í fyrra voru þetta aðallega 2.fl. strákar og þeir sem eldri voru mættu bara í leiki. En í vetur hefur þetta mikið breyst og núna eru um 16 strákar að æfa sem ekki eru í 2.flokki og er það mjög gott því það var of mikið í fyrra fyrir litlu strákana að spila tvöfalt tímabil. Við höfum í staðinn fengið menn eins og Óla Júl sem hefur spilað í úrvalsdeild og einnig fyrrum barnastjörnur sem urðu íslandsmeistarar í 4.flokki og spiluðu unglingalandsleiki.
Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar?
Já þetta hefur verið nokkuð gott. Það var að sjálfsögðu fúlt að tapa fyrir Skallagrím og einnig var tapið í Eyjum mjög svekkjandi. En það var enginn sem bjóst við að við færum taplausir í gegnum þetta enda í hörkuriðli.
Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Það er allavega ekki formið ég held ég geti lofað því. Við höfum flestir verið léttari á okkur en við erum hins vegar helvíti góðir í fórbolta og höldum boltanum vel innnan liðisins
Hvert er markmið liðsins í sumar?
Við forum að sjálfsögðu í hvern leik til að vinna hann og þá hlýtur markmiðið að vera að fara upp. Ég veit ekki um neinn sem að fer með það markmið inní mót að lenda ekki í efsta sæti, nema kannski Ejub hjá Víking. Ó.
Er einhver leikmaður úr ykkar liði sem þú telur að eigi eftir að springa út í sumar?
Við eigum tvo fyrrum landsliðsmenn sem að hafa ekki verið að spila á fullu þá Hermann Hanssen og Pál Palomares og ég tel að þeir eigi eftir að verða sterkir. Einnig bindum við vonir við að Óli Júl skori jafn mörg mörk og hann gerði síðast í 3.deildinni
Ykkur er spáð efsta sæti í C-riðli, telur þú að sú spá sé raunhæf?
Við unnum náttúrulega C-deild Lengjubikarsins og menn hafa sennilega byggt spár sínar út frá því auk þess sem að ég veit að Bjössi í Augnablik spáði okkur ofarlega til að setja pressu á okkur. En ef að okkar bestu menn mæta í leiki og á æfingar þá eigum við möguleiki á að vinna þennan riðil
Hvaða lið telur þú að sé sigurstranglegast í 3. deildinni í sumar?
KB tapaði bara 1-0 fyrir KR og það eru sennilega bestu úrslit sem að 3.deildarlið nær í sumar þannig að þeir eru sterkir. Einnig eru hin “varaliðin” sterk og ég býst við að eitthvað “varalið” fari upp í 2.deildina
Eitthvað að lokum?
Ég vil hvetja alla til að mæta á leiki Ýmis og Augnablik í sumar því það verða hörku leikir, einnig vil ég skora á Ómar Stefánsson Vallarstjóra í Kópavogi að leyfa þessum liðum að mætast á Kópavogsvelli í sumar.
Áfram Ýmir og HK
Eldra úr liðnum hvað er að frétta?
1.deild:
KS/Leiftur(3.apríl)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)
2.deild:
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)
3.deild:
Árborg (17.apríl)
Berserkir (8.apríl)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Leiknir Fáskrúðsfirði (17.júní)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)



