banner
   mán 23. júní 2008 19:53
Davíð Örn Atlason
BEINT - Fram 2-1 Breiðablik
Heiðar Geir Júlíusson kom heimamönnum í 1-0, en þurfti síðan að fara meiddur af leikvelli.
Heiðar Geir Júlíusson kom heimamönnum í 1-0, en þurfti síðan að fara meiddur af leikvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Fram 2-1 Breiðablik
1-0 Heiðar Geir Júliússon ('9)
2-0 Ívar Björnsson ('20)
2-1 Guðmundur Kristjánsson ('45)



21.54: Valgier Valgeirsson hefur flautað leikinn af .

21.45: Halldór Hermann Jónsson fékk prýðis tækifæri til þess að tryggja sigur heimamanna þegar að hann fékk sendingu frá Ívari Björnssyni inn í teig, en skot hans fór í stöng og framhjá.

21.32 Rautt spjald ! Prince Rajcomar var að fá rautt spjald fyrir að gefa Auðni Helgasyni olnbogaskot.

21.18: Seinni hálfleikurinn er ekki jafn fjörugur og sá fyrri og liðin eru ekkert að skapa sér.

21.08: Heiðar Geir Júlíusson að fara meiddur af velli. Inn fyrir hann kemur Joseph Tillen.

21.07: Arnór Sveinn Aðalsteinsson átti mjög góðan sprett úr vörn Blika að vítateig Framara og átti skot sem að fór yfir markið.

21.04: Seinni hálfleikurinn er hafinn.

20.51: Hálfleikur er kominn í þessum fjöruga leik.

20.50: MARK! Guðmundur Kristjánsson var að jafna metin fyrir Breiðablik og ekki var markið af ódýrari gerðinnni. Hann fékk knöttinn út til sín lengst utan af velli og lét vaða, boltinn söng í netinu.

20.40:Nenad Petrovic var nærri því búinn að skora núna rétt í þessu þegar að Jóhann Berg Guðmundsson átti hornspyrnu út í teig og boltinn barst til Petrovic, sem að þrumaði boltanum í samskeytinn. Framarar heppnir að vera ennþá í tveggja marka forystu.

20.38: Blikar eru smátt og smátt að koma sér inn í leikinn, en þó hafa engin alvöru færi myndast á þeim bænum.

20.22: MARK! Ívar Björnsson var að koma Frömurum í 2-0 með skallamarki og aftur var það Paul McShane sem að átti sendinguna rétt fyrir utan vítateiginn.

20.17: Magnús Þórisson, dómari leiksins þarf að fara af velli vegna einhverja ástæðna og inn fyrir hann kemur Valgeir Valgeirsson, varadómari.

20.10: MARK! Heiðar Geir Júlíusson var að koma heimamönnum í 1-0 eftir sendingu frá Paul MCShane af vinstri kantinum.

20.04: Hjálmar Þórarinsson fékk fyrsta fri leiksins þegar að hann fékk sendingu frá Ívari Björnssyni inn í teiginn en gott úthlaup Caspers Jacobsen í marki Blika bjargaði þeim.

20.00: Leikurinn er hafin og það eru Blikar sem byrja með boltann.

19.54: Byrjunarliðin eru klár, Ingvar Þór Ólason og Reynir Leósson koma inn í byrjunarlið Framara eftir leik gegn Fjölni í síðustu umferð og hjá Breiðablik er aðeins ein breiting, Kristinn Jónsson kemur inn í stað Árna Kristins Gunnarssonar.

Fram:Hannes Þór Halldórsson (M), Ingvar Þór Ólason, Paul McShane, Auðun Helgason, Reynir Leósson, Daði Guðmundsson, Heiðar Geir Júlíusson (Joseph Tillen '50), Samuel Lee Tillen, Hjálmar Þórarinsson (Henrik Eggert Hansen '82), Halldór Hermann Jónsson, Ívar Björnsson.
Varamenn: Ögmundur Kristjánsson (M), Henrik Eggert Hansen, Örn Kató Hauksson, Grímur Björn Grímsson, Joseph Tillen, Guðmundur Magnússon, Jón Orri Ólafsson, Ögmundur Kristinsson.

Breiðablik:Casper Jacobsen, Srdjan Gasic, Nenad Petrovic,Arnar Grétarsson, Prince Rajcomar, Olgeir Sigurgeirsson (Steinþór Freyr Þorsteinsson '68), Guðmundur Kristjánsson, Jóhann Berg Guðmundsson (Magnús Páll Gunnarsson '79), Marel Baldvinsson, Kristinn Jónsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Varamenn: Magnús Páll Gunnarsson, Vignir Jóhannesson, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Nenad Zivanovic, Alfreð Finnbogason, Haukur Baldvinsson, Finnur Orri Margeirsson.

19.53:Komið þið sæl og blessuð! Hér verður fylgst með leik Fram og Breiðabliks í Landsbankadeildar karla.

Slapp
banner