Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 27. júní 2008 07:00
Magnús Már Einarsson
1.deild: Hvað er að frétta af KA?
Almarr Ormarsson.
Almarr Ormarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Rúnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Pedromyndir
Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.

Þór og KA mætast í grannaslag á Akureyrarvelli í fyrstu deildinni í kvöld og því er tilvalið að kíkja á stöðu mála hjá þessum félögum í dag.

Almarr Ormarsson fyrirliði KA svaraði nokkrum spurningum og svörin eru hér að neðan.


Hvernig er stemmningin hjá KA þessa dagana?
Stemningin er mjög góð, mjög góður mórall í hópnum og allir í toppstandi. Síðasti sigurleikur var svo ekki til að skemma ástandið.

Er mikil spenna fyrir leiknum í kvöld?
Að sjálsögðu er mikil tilhlökkun í leikmönnum. Leikirnir við Þór eru með þeim stærstu á sumrin og ekki annað hægt en að vera spenntur fyrir þeim.

Er rígurinn á milli þessara lið meiri eða minni nú en áður?
Ætli hann sé ekki bara alltaf svipaður. Allavega þau ár sem ég hef verið að spila.

Má búast við fjölmenni á Akureyrarvelli í kvöld?
Já það vona ég innilega. Vinir Sagga mæta að sjálsögðu og rífa upp stemninguna KA megin og svo eru Þórsarar komnir með Mjölnismenn sem vonandi gefa Söggunum ekkert eftir. Það hefur líka verið þannig í gegnum tíðina að þetta eru lang best sóttustu leikirnir svo maður vonar bara eftir fullri stúku.

Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar?
Já og nei. Við höfum oft á tíðum spilað góðan fótbolta en því miður höfum við einnig verið klaufar og tapað dýrmætum stigum.

Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Samheldnin, krafturinn og leikgleðin í hópnum

Hvert er markmið liðsins í sumar?
Fá 3 stig úr hverjum einasta leik

Er einhver leikmaður úr ykkar liði sem þú telur að eigi eftir að springa út í sumar?
Við erum með fullt af efnilegum mönnum og ég býst við því að flestir eigi eftir að bæta sig enn betur þegar að líður á sumarið.

Hefur eitthvað komið þér á óvart í byrjun 1.deildarinnar?
Deildin er jafnari en ég bjóst við og það virðist ómögulegt að tippa á úrslit leikja.

Eitthvað að lokum?
Ég vil biðja alla KA menn að mæta á völlinn í kvöld og SYNGJA með Vinum Sagga, fólk hlýtur að vera farið að þekkja lögin!



Eldra úr liðnum hvað er að frétta?

1.deild:
KS/Leiftur(3.apríl)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)

2.deild:
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)

3.deild:
Árborg (17.apríl)
Augnablik (24.júní)
Berserkir (8.apríl)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Leiknir Fáskrúðsfirði (17.júní)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Ýmir (24.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)
Slapp
banner