Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 27. júní 2008 07:00
Magnús Már Einarsson
1.deild: Hvað er að frétta af Þór?
Hreinn Hringsson.
Hreinn Hringsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Pedromyndir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Guðmundur Karl
Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.

Þór og KA mætast í grannaslag á Akureyrarvelli í fyrstu deildinni í kvöld og því er tilvalið að kíkja á stöðu mála hjá þessum félögum í dag.

Hreinn Hringsson fyrirliði Þórsara svaraði nokkrum spurningum og svörin eru hér að neðan.


Hvernig er stemmningin hjá Þór þessa dagana? Stemningin hjá okkur er mjög fín þessa dagana eins og alltaf hérna í góða veðrinu á Akureyri.

Er mikil spenna fyrir leiknum í kvöld? Það er alltaf spenna fyrir þessa leiki, það hefur engu skipt í gegnum tíðina í hvaða deild Þór og KA eru, þetta eru alltaf hörkuleikir sem hafa að vísu oftar en ekki snúist meira um baráttu og tæklingar, gul og rauð spjöld heldur en áferðafallega samba knattspyrnu. En þetta er sennilega einn af tveimur skemmtilegustu leikjum sumarsins hjá okkur maður er í fótbolta fyrir svona leiki hrikalega skemmtilegt að taka þátt í þeim.

Er rígurinn á milli þessara lið meiri eða minni nú en áður? Held að rígurinn hafi nú verið meiri áður fyrr, en hann lifir nú alveg góðu lífi enn í dag þó svo hann sé ekki alveg jafn heitur, menn skiptast í fylkingar í bænum sem er gaman, enda þýða úrslit leiksins einfaldlega það að annar helmingur bæjarins getur labbað um götur bæjarins með höfuðið hátt og brosað allan hringinn á meðan hinn svona læðist með fram veggjum og lætur fara lítið fyrir sér. Það er akkurat þetta sem gerir þetta skemmtilegt og mikilvægt fyrir okkur leikmenn að reyna að ná góðum úrslitum úr þessum leikjum.

Má búast við fjölmenni á Akureyrarvelli í kvöld? Já ég vona það bæði félög komin með góð stuðningsmannafélög sem láta mjög vel í sér heyra á leikjum. Held að það verði ekki síður spennandi að sjá hvort stuðningsmannafélagið komi til með að hafa betur í stúkunni í kvöld. Held að sem flestir Akureyringar verði að láta sjá sig í kvöld það er nú ekki oft sem fólki er boðið upp á baráttu upp á líf og dauða inná vellinum og baráttu upp í stúku milli stuðningsmanna um betri textasmíð og söngva og bara hávaða almennt, það er bara ávísun á góða skemmtum og svo spillir nú ekki fyrir að leikurinn sé á föstudegi fín upphitun fyrir menningu næturinnar hérna á AK.

Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar? Nei ekki alveg það vantar betri stöðugleika hjá okkur við erum að spila alltof oft mjög góðan leik en strax í næsta leik lítum við út eins og byrjendur. Þetta er hlutur sem við erum að reyna að laga og finna út ástæðu hvers vegna þetta gerist. En vonandi þá fer þetta að lagast og menn sem við höfum saknað vegna meiðsla fari að koma til baka þá held ég að þetta fari að smella mjög vel saman, enda nóg eftir af þessu móti.

Hver er helsti styrkleiki ykkar? Samheldur hópur með mikið af hrikalega efnilegum strákum sem eru að stíga upp í sumar, takandi ábyrgð og eru að fá fína reynslu, í sambland við gamla refi með mikla reynslu og keppnisskap sem skilar sér í mjög frambærilegu knattspyrnuliði sem verið er að byggja upp fyrir framtíðina þar sem grunnurinn eru uppaldnir Þórsarar.

Hvert er markmið liðsins í sumar? Gera betur en í fyrra halda áfram þessu uppbyggingarferli sem við erum í, það tekur því miður kannski of langan tíma að mati okkar stuðningsmanna en við erum með góða sanna stuðningsmenn sem skilja að þetta tekur tíma og þegar þessu ferli verður lokið þá verðum við vonandi komnir með sterkt lið sem fer að gera tilkall til úrvalsdeildar ásamt því að vera komnir með mjög fjárhagslega sterka knattspyrnustjórn.

Er einhver leikmaður úr ykkar liði sem þú telur að eigi eftir að springa út í sumar? Já ég á von á því að einn ef ekki allir þrír af okkar kjúklingum(Tinky Winky, Dipsy, Laa-Laa ) sem hafa verið að spila og koma við sögu í okkar leikjum eigi eftir að vekja mjög mikla eftirtekt í sumar þessir drengir hafa allt nema kannski reynsluna og bringuhár en þeir eiga eftir á fá mjög mikla reynslu í sumar sem á eftir að nýtast þeim vel á næsta ári

Hefur eitthvað komið þér á óvart í byrjun 1.deildarinnar? Bara það hve liðin virðast vera jöfn allir virðast geta tekið stig af hvor öðrum.

Eitthvað að lokum? Áfram Þór!!!!!!!!!!! Allir að mæta á völlinn og hvetja sitt lið þetta fer að verða síðasti sjens að heimsækja Akureyrarvöll áður en Vitleysingarnir í bæjarstjórninni taka hann undir Litla búð sem selur allt á uppsprengdu verði eða byggir síki í gegnum hann miðjan svona bara upp á grin ………þannig mætum og hvetjum rétt lið!!!



Eldra úr liðnum hvað er að frétta?

1.deild:
KS/Leiftur(3.apríl)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)

2.deild:
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)

3.deild:
Árborg (17.apríl)
Augnablik (24.júní)
Berserkir (8.apríl)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Leiknir Fáskrúðsfirði (17.júní)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Ýmir (24.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)
Slapp
banner
banner